Vinnan og verkalýðurinn - 15.12.1954, Blaðsíða 49
Tátokvæði
Táta, Táta
teldu þína bræður!
Einn og tveir
inn komu þeir,
þrír og fjórir
furðu stórir,
fimm og sex
og sjö og átta
svo fóru þeir að hátta,
níu, tíu, ellefu og tólf
lögðu plöggin sín á gólf
svo fara þeir að sofa
sína drauma að lofa.
En um miðjan morgun
hún mamma vakti þá,
þrettán, fjórtán, fimmtán, sextán
fætur stukku þeir á.
Svo fara þeir að smala
suður fyrir á,
seytján, átján,
lambærnar fundu þeir þá,
nítján voru tvílembdar
torfunum á,
tuttugu sauðirnir
suður við sel,
teldu nú áfram
og teldu nú vel.
(Heimild: Guðrún Jónsdóttir frá
Hóli, Önundarfirði)
GRÝLA
Grýla kemur á hverjum vetri.
Hún er í skorpnu skinnstakks tetri.
Sú er ekki sagan betri,
sinn í belg hún fá vill jóð.
Valka litla vertu góð
og vendu þig af að ýla,
senn kemur að því hún sækir þig
heim hún Grýla.
i--—-------——---------------
GLEÐÍLEG JÓL!
GOTT OG FARSÆLT
NÝTT ÁR.
Sveinafélag
Netagerðarmanna
—-------------------------1
i—---------------------------
„Vinnan og verkalýðurinn“
óskar öllum lesendum sínum,
nœr og fjær,
GLEÐILEGRA JÓLA
OG GÓÐS ÁRS
—-------------—----------->
VINNAN og verkalýðurinn
231