Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 45
B E R G M Á L
1 95 6 ------------------------
„Já, ég held nú iþað. Auðvit-
að,“ svaraði hún. „Þú varst al-
veg olræt. En það var bara svo
andstyggilega hált á götunni að
þú rannst til þess vegna og
komst harkalega niður, vinur
minn. En, hamingjan sanna og
sæla, slíkt getur komið fyrir
hvern sem er.“
„Vafalaust,“ sagði hann.
„Drottninguna af Saba hvað þá
aðra. — Svo að ég hlassaðist
niður á gangstéttina? Það er
kannske skýringin á því hvernig
heilsa mín er núnal Ja-há,
þarna kemur það! En þú vildir
ef til vill vera svo góð að segja
mér hvað svo gerðist eftir
þetta?“
„Nei, heyrðu nú, Gummi —
þú ætlar þó ekki að segja mér,
að þú munir ekki hvað svo
gerðist? Það getur verið að
mér hafi fundizt þú vera búinn
að fá einum of mikið á meðan
’setið var undir borðum — ekki
þess vegna samt, að þú varst
alveg olræt, en þú varst óneit-
anlega kominn, í góða stemmn-
ingu. En þú varðst svo alvarleg-
ur eftir að þú datzt. — Ég vissi
alls ekki, að þú gætir verið
svona — manstu ekki að þú
sagðir mér, að ég hefði aldrei
. séð þinn innri mann fyrr? Ó,
Gummi, ég' myndi ekki geta
afborið það ef þú myndir ekki
eftir langa, yndislega bíltúrn-
um, sem við fórum í, á eftir!
Segðu að þú munir eftir hon-
um, segðu það! Ég er viss um
að ég myndi deyja á stundinni
ef þú manst ekki eftir honum.“
„Ju-ú, jú, auðvitað,“ sagði
hann.
„Bíltúrinn — jú, auðvitað man
ég eftir honum — mjög langur
bíltúr í .... hm?“
„Ekki veit ég hve marga
hringi við ókum í kringum
lystigarðinn,“ sagði hún. „En
hvað trén glitruðu í tungsljós-
inu. Og þú sagðir að þú hefðir
aldrei vitað af því fyrr, að þú
hefðir sál.“
„Já,“ sagði hann, „ég sagði
það. Að ég hefði sál.“
„Þú sagðir svo margt fallegt
við mig,“ sagði hún. „Og hugsa
sér annað eins, allan þennan
tíma, sem við höfum þekkzt,
hefir mig aldrei grunað að þú
bærir þessar tilfinningar í
brjósti til mín, og ég hefi ekki
þorað að láta þig sjá ihvernig
ég hefi hugsað til þín. Og svo
brauzt það út í gærkvöldi — ó,
elsku, yndislegi Gummi, ég held
að þessi bíltúr verði örlagastund
í lífi okkar.“
43