Skógræktarritið - 15.12.1998, Blaðsíða 49

Skógræktarritið - 15.12.1998, Blaðsíða 49
ars staðar. Aðalóvinur ásætu- gróðurs á birki eru þurrir stormar, þar með taldir þurrir frostvindar að vetrum og þurrkar á sumrin. Ahrifa þessara vinda gætir að sjálfsögðu meir, þegar megin- skógurinn er fallinn, en stað- bundnar skógarleifar standa eftir. Valda fléttur skaða á trjánum ? Oft kemur það fyrir, að menn vilja kenna fléttum um, þegar skógur er á undanhaldi, trén að drepast °g orðin lauflaus, en greinarnar löðrandi af fléttum. Eftir því sem best er vitað eru flétturnar hins vegar aiveg saklausar af því að skaða trén. Þær eru ásætur en ekki sníkjuplöntur, þ.e. þær nota börkinn sem undirlag, en taka useringu fyrst og fremst úr and- rúmsloftinu og regnvatni sem rennur eftir greinunum. Svepp- þræðir þeirra vaxa aðeins um ytri *ög barkarins, en fara ekki inn í vaxtarlagið. Hins vegar hleypir það oft meira lífi í flétturnar, þegartré hætta að laufgast, enda er þá bjartara á fléttunum. Eins virðast þær oft miklu þroskameiri á trjám sem eru orðin veikluð og vaxa miög hægt, þ.e. hafa lítinn sem engan ársvöxt. Þá geta þær náð miklum þroska alveg fram á grennstu greinarnar. Það er vegna þess, að fléttur eru annars svo hægvaxta, að þær eru lengi að komast á legg á berki trjáa sem mikið vaxa, vegna hraðari endurnýjunar barkarins. Raunar er líflegt birki ekki gott undirlag fyrir fléttur, vegna þess ysta lag barkarins (næfrarnar) endurnýj- ast of ört. Landnemar í nýjum skógi A nýjum trjám sem gróðursett eru koma fléttur yfirleitt ekki fram fyrr en eftir mörg ár þegar trén eru orðin nokkuð gömul. Á barr- trjám ertegundafjölbreytnin venjulega mun minni en í göml- um birkiskógum, en þargeta hins vegar komið fram aðrar tegundir en vaxa á lauftrjám. Þvf má gera ráð fyrir að eitthvað bætist við af fléttum á íslenskum trjám, þegar barrskógar eru komnir á legg. Ekki hafa verið tök á að fylgjast vel með þeim breytingum á fléttuflórunni enn sem komið er, þótt vissulega væri áhugavert að gefa þeim gaum. Oftast eru hrúðurfléttur fyrri til að nema land á trjáberki en blað- fléttur. Ég hef nokkuð fylgst með slíku landnámi á bolum gamalla alaskaaspa í Eyjafirði. Þar mynd- ast smátt og smátt samfélag nokkurra tegunda hrúðurfléttna (23. mynd). Þará meðal eru skærgular merlur (Caloplaca), Ijós- gular toppaglætur (Candelariella vitellina), gráar viðardoppur (Amand'mea punctata) með svörtum askhirslum, og törgur (Lecanora) með Ijósrendum askhirslum. Sumt eru þetta tegundir sem einnig eru algengar á gömlum, veðurbörðum spýtum sem legið hafa úti í mörg ár. Skógarbotninn Á fúnum sprekum í skógarbotnin- um vaxa oft sérstakar fléttur sem ekki vaxa að jafnaði á lifandi trjám. Mélubikar (Cladonia fimbri- ata) er oftast á slíkum stöðum, og oft einnig álfabikar eða álfastaup (24. mynd, Cladonia chlorophaea), en sú tegund er annars mjög al- geng um allt land í mólendi. Báðar þessar fléttur bera bikar eða staup á enda langra stilka sem vaxa upp af smábleðlum sem þekja undirlagið. Bikarinn er áberandi duftkenndur að innan og utan af hraufukornum sem gerð eru af sveppþráðum og þör- ungum, en upp af þeim geta vax- ið ný sambýli ef þau ná að dreifast um. Dreifing þeirra fer gjarnan fram með regndropum sem endurkastast frá staupunum og bera hraufukornin með sér. Mélubikarinn er greindur frá álfa- bikarnum á fíngerðari, mélkennd- um hraufukornum, og einnig er lögun bikarsins frábrugðin. Álfa- bikarinn hefur grófari, korn- kenndar hraufur. Á fúnum sprekum í skógar- botninum vaxa einnig sprek- broddar (25. mynd, Cladonia coni- ocraea). Þeir vaxa einnig sem sí- valir stilkar upp af fíngerðum bleðlum, en þeir enda oftast í bikarlausum broddi, eða hafa aðeins örmjóan bikar sem ekki er breiðari en stilkurinn. Hér hefur aðeins verið minnst á hluta af þeim fléttum sem vaxa á trjám í íslensku skógunum. Margar fléttur sem venjulega vaxa á klettum eða jarðvegi koma að sjálfsögðu oft einnig fyrir á sama undirlagi í skógarbotninum Alls er nú vitað um rúmlega 600 tegundir fléttna á íslandi, og enn er alltaf að bætast í þann hóp. Einkum eru hrúðurfléttur, bæði á trjám, jarðvegi og steinum enn illa þekktar. Ritaskrá Degelius, Gunnar 1957. The epi- phytic lichen flora of the birch stands in lceland. Acta Horti Gotoburgensis 22,1: 51 bls. Deichmann-Brandt, ).S. 1903. Lichenes Islandiae. Bot. Tidsskr. 25: 197-220. Gronlund, Christian 1870. Bidragtil oplysning om Islands flora. I. Laver (Lichenes). Bot. Tidsskr. 4: 147-172. Gronlund, Christian 1895. Tillæg til Islands Kryptogamflora indehold- ende Lichenes, Hepaticae og Musci. Bot. Tidsskr. 20: 90-115. Hörður Kristinsson, Sigríður Bald- ursdóttirog Hálfdán Björnsson 1981. Nýjar og sjaldgæfar fléttu- tegundir á birki í Austur-Skafta- fellssýslu. Náttúrufræðingurinn 51: 182-188. Lynge, Bernt 1940. Lichens from lce- land collected by norwegian botanists in 1937 and 1939. Skrift- er utg. av det Norske Vidensk,- Akad. i Oslo 1. Mat.-Naturv. Klasse No. 7, 56 bls. SKÓGRÆKTARRITIÐ [998 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Skógræktarritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.