Skógræktarritið - 15.12.1998, Side 102

Skógræktarritið - 15.12.1998, Side 102
Og það er ekkert leyndarmál, að skólastjórinn ungi, þá ný- kvæntur, fékk ekki leigða íþúð annars staðar en þar, sem kýr var undir palli og fjóshaugurinn und- ir svefnherbergisglugganum. En í húsinu bjó úrvalsfólk og við vöndumst fjósalyktinni furðu fljótt. Sauðféð gekk því um allan bæ- inn, þegar ástæða þótti til að hleypa því út og beit hvert strá, sem þar var að finna eða brum á smárunnum, ef þeir voru þá nokkurs staðar til. Af þessum ástæðum voru nær engir girtir garðar með runnum eða trjám við heimiiin. Það var líka alveg þýðingarlaust, því að sauðféð beit allt upp samstundis, og eng- um hafði dottið í hug að planta trjám á víðavangi. Umgengni á Húsavík var þá raunar vægast sagt léleg, þó að ég lengi ekki mál mitt nú með því að ræða um hana sérstaklega. En það var einmitt þetta: Friðun og ræktun á víðavangi, friðun og gróðursetning heimilis- lóða og stórbætt umgengni, sem ég sá strax að þurfti að fá al- menning til að sameinast um að bæta. f sambandi við þessar athugan- ir mínar fyrst eftir að ég kom til Húsavíkur 1940, og ég hef hér að- eins lauslega drepið á, komst ég að þeirri niðurstöðu, að Húsvfk- ingar hefðu af einhverjum ástæð- um dregist um tíma aftur úr öðr- um héruðum ívissum málum, m.a. í þeim atriðum, sem ég hef hér nefnt. En þessi kyrrstaða stóð ekki lengi, og nú eru Húsvíkingar fyrir löngu í fremstu röð á ýmsum sviðum. V. Skal nú að lokum sagt með nokkrum orðum frá stofnun skóg- ræktarfélagsins, viðbrögðum Hús- vfkinga við þeirri starfsemi og fyrstu framkvæmdum í þeim mál- um. Árið 1940 var í ýmsum héruð- um að vakna töluverður áhugi meðal landsmanna á skógrækt og að rækta upp landið, sem var víða orðið svo átakanlega bert. Skógræktarfélag fslands hafði verið stofnað á Þingvöllum árið 1930 og kosinn skógræktarstjóri til að vinna að framkvæmd þeirra mála. Og skömmu seinna voru stofnuð nokkur skógræktarfélög í vissum hreppum og sýslum. En árið 1935 verða algjör straumhvörf f þessum málum. Þá var Hákon Bjarnason kjörinn skógræktarstjóri. Hann hafði þá nýlokið háskólanámi í skógrækt fyrstur allra íslendinga. í þvf starfi vann hann að framgangi skóg- ræktará íslandi, íkrafti menntun- ar sinnar, af slíkum krafti og eld- móð að ekki á sér aðra hliðstæðu. Flestir vita, að þar var fyrst lengi við ramman reip að draga, því að nær allir höfðu fyrst litla eða næstum enga trú á mögu- leikum til skógræktar, og sama var þá líka að segja um skilning manna á gróðurvernd og upp- græðslu landsins. Þessu gjörbreytti Hákon öllu á starfstíma sínum með fágætri færni og viljastyrk, - og auðvitað líka með samhug ýmissa góðra manna, sem trúðu á bjartsýni hans og sjónarmið. Og nú mun vart sá maður til í landinu sem ekki trúir því og er sannfærður um að hægt sé að græða upp landið og klæða það skógi, einnig sums staðar nytja- skógi á stórum svæðum. Um þetta má nú síðari árin sjá alls staðar augljósar sannanir, - gjörbreytt, skógiklætt land, gróð- urklædd svæði, þar sem áður var auðn, og fjöldi manns að vinna við þessi ræktunarstörf vor og sumar. Einnig vinnur fjöldi manns á öðrum tímum mánuðum saman í stórum, hlýjum gróðurhúsum við uppeldi milljóna trjáplantna, sem gróðursettar eru í litlum plastbaukum, þroskast þar betur og verða síðar miklu öruggari í gróðursetningu. Er þetta allt mik- ið fagnaðarefni, sem flýtir mjög fyrir ræktun landsins. Og flest er þetta að þakka áhuga og færni eldhugans og brautryðjandans, Hákonar Bjarnasonar. Ég hlaut aðeins að minnast hans hér með örfáum orðum, en vfsa að öðru leyti til ágætrar sögu hans útgef- innar af Skógræktarfélagi fslands. Ég drap á það í síðasta kafla, að á Húsavíkárið 1940 hefði nær ekkert sem heitið getur verið unnið að ræktunarmálum, hvorki á heimalóðum né á berangri. Engin áhrif frá Hákoni Bjamasyni voru þar enn sjáanleg. í þorpinu var það heldur raunar alls ekki hægt, eins og fyrr getur, þar sem flestir íbúðareigendur áttu nokkr- ar kindur, sem gengu óhindraðar um þorpið og ógirtar lóðir, og bitu hvert strá og brum er þær fundu. Og þessu fengust Húsvfk- ingar ekki til að breyta fyrr en löngu seinna. Ég drap einnig á það, að um- gengni í þorpinu hefði þá verið ábótavant á ýmsan hátt, þótt ég ræði ekki frekar um það nú. Sfðla árs 1941 hittust drjúga stund fjórir áhugasamir menn um ræktun, - menn sem allir höfðu mótast af anda ungmenna- félaganna og höfðu unnið nokk- uð að skógrækt, fylgst með stofn- un Skógræktarfélags íslands 1930 og síðan nokkurra skógræktarfé- laga hér og þar um landið. Þeir höfðu allir hugleitt það vandræðaástand, sem ríkti hér í þorpinu í ræktunarmálum, og ég hef hér lauslega drepið á, og undruðust margir það áhuga- leysi, sem hér ríkti í þeim málum og þá ekki síst meðal ráðamanna í þorpinu, sem frekast höfðu að- stöðu til að fá því breytt. Ætíð er við hittumst, þessir fjórir félagar, minntumst við jafn- an á, að nú væri vissulega kom- inn tími til að fá menn til að sameinast um að breyta ófremd- 100 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1998
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.