Skógræktarritið - 15.05.2004, Síða 80

Skógræktarritið - 15.05.2004, Síða 80
Frá Chugach National Forest. Mynd: Einar Gunnarsson. irvara um túlkun á kvæmishug- takinu. Þá er rétt að taka fram, að vegna fjölmargra skammstafana kann að vera nokkurt ósamræmi í stafsetningu. Rauðgrenikvæmin eru langflest eða um 90, hvftgreni 50, skóg- arfura og stafafura 48 hvor, sitka- greni 44, fjallaþinur 30, blágreni 27, evrópulerki 27, fjallaþöll 24, svartgreni 24, bergfura 22, douglasgreni 19, sibirísk lindifura 18, rússalerki 17, sibiríulerki 15, balsamþinur 14, alpalindifura 10 og ýmsar aðrar tegundir 1 -9 kvæmi hver. Fræskrá 11. Lauftré er 34 síð- ur, alls 1190 línur. Þar eru 27 teg- undir og 100 kvæmi, sem skiptast þannig á tegundir: Gráelri 25, ala- skabirki 16, vörtubirki 14, íslenskt birki og sitkaelri 10 kvæmi hvort, og 1-6 kvæmi af ýmsum öðrum tegundum. Af íslenska birkinu eru það aðallega 3-4 kvæmi, sem koma við sögu. Þau eru Hall- ormsstaður, Vaglir og Skaftafell - Bæjarstaður. Af sjálfu leiðir, að þau lauftré, sem nánast eingöngu er fjölgað með græðlingum eru ekki tekin með í fræskrána. Þar vantar einnig tegundir, sem venjulega eru taldartil garðtrjáa, eins og t. d. reynivið. 2. Um breytingar og lagfær- ingar Áður en fræskrárnar voru færð- ar inn á heimasíðu Skógræktarfé- lags íslands voru þær endurskoð- aðar lið fyrir lið. Fáein frænúmer og tegundanöfn voru lagfærð, nokkrum staðarnöfnum breytt og víða bætt inn hnattstöðu, auk ýmissa minni háttar lagfæringa. Talsvert efni hafði bæst við Fræ- skrá I. Barrtré, frá því hún var gef- in út f fjölriti árið 1994. Mest fer þar fyrir viðauka, sem var felldur inn í heildarskrána. Meðal þeirra atriða, sem ástæða þótti til að gera sérstaklega grein fyrir hér, eru breytingar á tveimur kvæma- nöfnum. Einnig er minnst á fræ- söfnun, uppeldi í gróðrarstöð og gróðursetningu. Þá þótti ástæða til að útskýra lerkinöfn, þar sem nokkurrar ónákvæmni hafði gætt við fyrri skráningar. Allar breyt- ingar og lagfæringar hafa verið færðar inn í fræskrárnar, og þær uppfærðar á heimasíðunni. í Skógræktarritinu 1995 er hug- að að uppruna douglasgrenis, sem var sáð í gróðrarstöðinni á Hallormsstað árin 1934 og 1936 og gróðursett í skóginum árið 1941. í greininni eru leiddar líkur að því, að douglasgrenið á Atla- víkurstekk, sé af tveimur kvæm- um. Fundist höfðu heimildir um uppruna fræsins frá 1936, en þeg- ar áðurnefnd grein var tekin sam- an, var enn óvíst um uppruna fræsins frá 1934. í Skógræktarriti 2000, 2. tbl., er sagt frá leitinni að uprunanum og hvernig henni lyktaði. Verður það ekki endurtek- ið hér, en aðeins rifjað upp, að skráningu á douglasgreni, Pseud. men., frænúmer 343004, hefir verið breytt þannig, að í stað Bandar, kemur Kanada, í stað Colorado kemur Vernon, og Br.Col. er bætt inn í svæðisdálk. Árið 1933 var sáð á Hallorms- stað 500 g af hvítgreni frá I. Rafn (Skogfrokontoret) í Kaupmanna- höfn. í fræskrá Picea gla., fræ- númer 333002. Þessu fræi var safnað í Danmörku, sennilega af trjám af kanadískum uppruna, eftir því sem ráða má af verðlist- um fræsölunnar. Sáningin á Hall- ormsstað virðist hafa tekist vel, því árið 1936 voru dreifsettar þar 3.500 3/0 plöntur og ári seinna 2.700 4/0 plöntur. Árið 1934 var aftur sáð hvítgreni á Hallorms- stað, frænúmer 343002, Voru það 25 g Black HiIIs Spruce eins og skrifað stendur í skýrslu skógarvarðarins (Guttormur Páls- son 1935). Kunningi Guttorms, )oseph. J. Myres, í Norður-Dakota hafði sent honum fræið ásamt fleiri tegundum. Black Hills Spruce er skilgreint sem sérstakt afbrigði af hvítgreni vestast í út- breiðslusvæði þess, aðallega í Al- berta og British Columbia. Það gengur einnig undir nöfnunum Western White Spruce og Alberta Spruce (Carl Mar: Muller 1965). Fræðiheiti Black Hills Spruce er Picea glauca var. albertiana (S. Brown) Sarg. Nálarnareru styttri og könglar gildari en á venjulegu hvítgreni. Krónan er 78' SKÓGRÆKTARRITIÐ 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.