Ársskýrsla Kvennasögusafns Íslands ... - 31.12.1975, Blaðsíða 41
38
dóttur í mars og Drífu Vióar x október.
Á fundi Norðurlandaráðs í fehrúar var m.a. samþykkt tillaga frá
Ragnhildi Helgadóttur, forseta ráðsins, um að Norðurlandaráð efndi
til farandsýningar um sögulega þróun stöðu kvenna á Norðurlöndum.
Sýningin verðixr á vegum RiksutstSllningar í Svíþjóð og með aðstoð
dr. Asta Ekenvall, eins af stofnendum kvennasögusafnsins í
Gautaborg.
Ríkisutvarpið, bækur, falöð o.fl.:
1975 Allmörg erindi og þættir voru í útvarpinu í tilefni kvennaársins.
T.d. voru erindi að tilhlutan Kvenstúdentafélags íslands, og Rauð-
sokkahreyfingin hafði þrjá þætti, sem nefndir voru 1101 - ellefu
hundruð og eitt.
Ötvarpsstöðvar á norðurlöndum höfðu samvinnu um að gera hálftíma
dagskrá frá hverju landi og eina sameiginlega. Allar dagskrárnar
voru með ensku tali. Sigríður Thorlacius sá um íslenska hlutann.
(Júlí/ágúst).
Sjónvarpið sýndi m.a. kvikmynd í mörgum þáttum um kvenréttinda-
baráttuna í Englandi. (Ágúst/september).
"Jafnrétti kynjanna" kom út í júnímánuði. Bókin er skýrsla um niður-
stöður af rannsókn, sem Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir gerði á
vegum Námsbrautar í þjóðfélagsfræðum við Háskóla íslands, og pró-
fessor ólafur Ragnar Grímsson bjó til prentunar. Þingsályktunar-
tillaga, sem lögð var fram á Alþingi 1971, lá til grundvallar þess-
ari rannsókn.
Ritgerðasamkeppni fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára um "stöðu
konunnar í þjóðfélaginu" var auglýst á vegum menntamálaráðuneytis-
ins í júní. Verðlaunin, vikudvöl í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna
í New York, hlaut María Haraldsdóttir, 18 ára. (Desember).
Menntamálaráðuneytið lét þýða á íslensku yfirlýsingu Allsherjar-
þings sameinuðu þjóðanna 7. nóvember 1967 um afnám misréttis gagnvart
konum.
Jafnréttisnefndir til að vinna að jafnstöðumálum kvenna og karla
voru settar á stofn í nokkrum sveitarfélögum: í Kópavogi í júlí,
síðan í Garðahreppi (Garðabæ) og Hafnarfirði í desember, og í Nes-
kaupstað er nefnd væntanleg. í Reykjavík var á borgarstjórnar-
fundi í nóvember tillögu um að skipa jafnréttisnefnd vísað frá.
Frímerki var gefið út í tilefni kvennaársins. Verðgildi 100 krónur.
Myndin er af listaverki eftir Nínu Tryggvadóttur. (Ötgefið 15.
okt. 1975).
Framkvæmdanefndin um kvennafríið á Akureyri setti á laggirnar í
nóvember nýja nefnd kvenna og karla - eða jafnréttissamtök - með
fjölbreytta verkefnaskrá.
ðtgefendur virtust taka mið af kvennaárinu með vali jólabóka sinna.
Karlmenn, sem skrifuðu í blöð eða minntust opinberlega á kvenna-
árið og kvennafríið, gerðu það yfirleitt af skilningi og sanngirni,
en nokkrar illgirnisraddir vöktu athygli. Nokkrar hjáróma kven-
raddir heyrðust einnig.
Samvinnunefndir á norðurlöndum ætla að rannsaka, hvernig hlutur
kvenna í þjóðfélaginu kemur fram í fjölmiðlum. íslenska nefndin
"Fjölmiðlanefnd" var stofnuð í nóvember.
Kvenfélagið Framtíðin á Akureyri hafði í tilefni kvennaársins mynd
af Aðalbjörgu Sigurðardóttur á jólamerki sínu 1975.
Fyrrverandi þingskrifarar, konur, stefna Alþingi vegna þess að karl-
þingskrifari fékk hærri laun en þær. Málið kom fyrir borgardóm
Reykjavíkur í fjnrsta skiptið í desember.