Ársskýrsla Kvennasögusafns Íslands ... - 31.12.1975, Blaðsíða 47
44
aftur á næsta þingi og vísað til ríkisstjórnarinnar og nefndar
sem vann að endurskoðun almannatryggingalaga, en án árangurs.
1961 Lög um launajöfnuð kvenna og karla, nr. 60 29. mars 1961. Launa-
jöfnuðurinn á að komast á á 6 árum, 1962-1967. Lögin koma x kjöl-
far alþjóðasamþykktarinnar nr. ÍQQ, en þó án nokkurs ákvæðis um
sömu laun fyrir jafnverðmæt störf. Varhugavert, skv. greinargerð.
1962 Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 55 28. apríl 1962.
Launalögin 1955 að mestu afnumin. K.R.F.Í. gerir kröfur um að
kona verði í kjararáði. (Fulltrúaráðsf. 1962).
1963 Auglýsing um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar nr. 111, er varðar misrétti til atvinnu og starfa, nr. 14
2. okt. 1963. (Stjórnartíðindi C 2).
1970 Eftir verkfall tókst að fá frá atvinnurekendum fæðingarstyrk handa
verkakonum, einnar viku dagvinnukaup. Seinna var annarri viku^
bætt við og nú á fæðingarstyrkurinn að vera dagvinnukaup í þrjár
vikur (1975).
Tillaga til þingsályktunar um rannsókn á jafnrótti þegnanna í
íslensku þjóðfélagi, einkum með tilliti til þess hvernig háttað
er raunverulegu jafnrétti karla og kvenna. Að rannsókn lokinni
verði niðurstöður birtar. - K.R.F.Í. sendi bréf til allra alþing-
ismanna 20. nóv. 1970 með áskorun Um að samþykkja tillöguna.
(Samvinnan, 6. h. 1971, bls. 71-73).
1971 Svava Jakobsdóttir flytur frumvarp um jafnlaunadóm. Þar eru í
fyrsta sinn í frumvarpi ákvæði um sömu laun til kvenna og karla
fyrir jafnverðmæt störf. An árangurs.
1972 Landsfundur Kvenréttindafélags íslands (K.R.F.Í.) 1972 tók undir
samþykktir fundar sambands norrænu kvenréttindafélaganna í
Noregi sama vor. Nokkrar þeirra skulu nefndar:
1. Að í stjórn allra landanna verði sett ákvæði um jafnstöðu
kvenna og karla.
2. Að tekið verði til athugunar að setja á stofn jafnstöðuráð
(líkt og í Noregi).
3. Að meginreglan um jöfn laun verði lögfest.
4. Að tekið verði til athugunar að setja í lög ákvæði um, að
foreldrar eigi kost á styttum vinnutíma og sömuleiðis að
foreldrar hafi leyfi frá vinnu í samtals 12 einstaka daga á
ári vegna sjúkra barna eða ættingja (eins og reglur eru um
fyrir ríkisstarfsmenn í Svíþjóð).
5. Að löggjöf verði sett, sem tryggi öllum börnum vist á dag-
heimili, rétt eins og í skóla. (19. júnx 1972, bls. 28).
1973 Lög um jafnlaunaráð, nr. 37 24. aprxl 1973. (Flm. Svava Jakobs-
dóttir og fl.):
1. gr. "Konum og körlum skulu greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt
og að öðru leyti sambærileg störf."
2. gr. "Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir
kynferði. Gildir þetta ekki aðeins um launagreiðslur
heldur um hvers konar greinarmun, útilokun eða forréttindi
vegna kynferðis. óheimilt er að skerða jafnrétti kynjanna
til atvinnuráðningar og skipunar í starf, hlunninda og
hækkunar í starfi."
Jafnlaunaráð á m.a. að taka við áhendingum um brot á ákvæðum lag-
anna, rannsaka málið af því tilefni og senda að rannsókn lokinni
málskjöl til þeirra aðila, sem málið snertir. í jafnlaunaráði
eru: Guðrún Erlendsdóttir, form., Áslaug Thorlacius, Haraldur
dlafsson, ólafur Jónsson og Þórunn Valdimarsdóttir.
Lög um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri dagvistunarheimila,
nr. 29, 21. apríl 1973.
Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 57 27. apríl 1973, Ákvæðin um