Áfram Ísland - 01.06.1980, Blaðsíða 1

Áfram Ísland - 01.06.1980, Blaðsíða 1
Kjarkmaður í kjöri Einn er sá hópur manna, sem hefur lagt áherslu á að embætti forseta landsins sé vettvangur stjórnmála. Það eru stuðnings- menn Alberts Guðmundssonar. Stjórnmál eru staðreynd, sem hver maður býr við, og það er ekki annað en flótti undan stað- reyndum að álíta að efsta þrep stjórnunar landsins geti verið undanþegið andrúmi stjórnmál- anna. Albert Guðmundsson var kjörinn fyrst á þing fyrir Reykjavík árið 1974. Hann var áður búinn að skólast í stjórn- málum sem borgarfulltrúi í Reykjavík og borgarráðsmaður. Allir þræðir í stjórnmálum landsins og sveitarstjórnarmál- um eru honum kunnir. Reynsla hans á sviði stjónmála hlýtur að vera honum ómetanleg verði hann kjörinn forseti. Augljóst er hverjum manni, að varla verður nokkur sá kallaður til nýtilegrar verkstjórnar yfir flóknum störfum í margvís- legum greinum atvinnuvega, nema hann viti deili á þeim verkum sem hann á að stjórna. Ein er um forsetaembættið. í þau skipti sem forsetinn verður í senn valdamesti maður landsíns og verkstjóri forustumanna stjórnmálaflokka við stjórnar- myndanir, er þýðingarmikið að hann gjörþekki hið flókna völ- undarhús stjórnmálastarfsem- innar. Geri hann það ekki lendir valdið að mestu í höndum stjórnmálaforingjanna, sem geta eftir atvikum ákveðið hve langan tíma tekur að mynda ríkisstjórn. Á tímum mikils óróa í efnahagslífi getur stórfelldur dráttur á stjórnarmyndun bein- línis orðið skaðlegur úr hófi fyrir þjóðina. Þetta ber að hafa í huga, þegar valið er á milli stjórnmálamanns í embætti for- seta og annarra, sem ekki hafa nýtilega þekkingu til að bera á sviði, sem hlýtur að teljast þýðingarmest í starfi forseta á örlagastundum. Þótt Albert Guðmundsson hafi verið fulltrúi í borgarstjórn og borgarráði Reykjavíkur og þingmaður fyrir kjördæmið, hef- ur hann sýnt hvað eftir annað að hann hugsar út fyrir flokksmörk og þrönga flokkshagsmuni. Stefnu sína hefur hann mótað eftir samvisku sinni í hverju máli. Hann hefur litið á sig sem þingmann íslendinga. Þess vegna hafa pólitískir andstæð- ingar fylkt sér um hann nú, þegar hann er í framboði við forsetakjör. Slíkan stuðning fær enginn stjórnmálamaður nema hann hafi sýnt og sannað að starf sitt vinnur hann af heilind- um fyrir heildina hverju sinni með jafnræði og virðingu fyrir andstæðingunum í huga. Að stjórnmálum slepptum hafa örlögin haslað Albert Guð- mundssyni völl á sviði atvinnu- lífsins. Hvar sem hann hefur verið til kvaddur hefur hann staðið að hagræðingu og eflingu fyrirtækja og stofnana. Má í því efni minna á forgöngu hans við stofnun Tollvörugeymslunnar. Það er því augljóst mál að verði Albert kjörinn forseti mun hann freista þess að efla markaði landsins út á við eftir því sem virðing embættisins leyfir og tilefni gefast, til hagsbóta fyrir launþega, fyrirtæki og stofnanir. Þetta er kannski eitt af þýð- ingarmestu þáttunum, sem gera framboð Alberts svo glæsilegt. Árangur þess vilja hans býr í skauti framtíðarinnar. Sjálfur hefur Albert Guð- mundsson orðið að vinna sig til þess veraldlega vegs og þeirra mannvirðinga, sem hann nýtur. Hann er ekki fæddur með silfur- skeið í munni. Föður sinn missti hann ungur. Eftir það ólst hann að mestu upp hjá ömmu sinni á Smiðjustíg 6 í Reykjavík. Hann stundaði verkamannavinnu við höfnina, og aðra vinnu sem t*il féll. Hann menntaðist í verslun- arfræðum í Samvinnuskólanum og síðar í Skotlandi og London, en varð upp úr því fyrstur Norðurlandamanna til að gerast atvinnumaður í knattspyrnu í Bretlandi, Frakklandi og Ítalíu. Það tímabil í ævi hans varð einn samfelldur stjörnuleikur. Dvöl Nú er þörf fyrir stjórnmálamann í embætti forseta. Þess vegna kjósum viö Albert Guðmundsson Nú þurfa atvinnuvegirnir aö eiga sérstakan talsmann, þar sem er forseti landsins. Þess vegna kjósum við Albert Guðmundsson. Enginn einn maður hefur borið hróður íslands eins víða og meða! eins margra. Þess vegna kjósum viö Albert Guðmundsson. Enginn hefur eins afdráttarlaust fylgt samvisku sinni við ákvörðun mála. Þess vegna kjósum viö Albert Guðmundsson. Enginn ber fremur sæmdarheitið maður fólksins. Þess vegna kjósum viö Albert Guðmundsson. hans með erlendum þjóðum varð mikilsverð viðbót við ágæta skólamenntun. Eftir að Albert Guðmundsson fór að hafa afskipti af borgar- málum, og einnig eftir að hann tók sæti á Alþingi, hefur hann gert sér sérstakt far um að sinna málefnum aldraðra. Með þeim hætti vildi hann minnast þeirrar konu sem fóstraði hann ungan. Annars eru honum líknarmál mjög huglæg, og hann hefur verið athafnasamur við að koma mörgum þeirra í höfn. Það kunna þeir að meta og þakka, sem nú njóta verka hans á þessum sviðum. Albert Guðmundsson er kvæntur Brynhildi Jóhannsdótt- ur. Þau eiga þrjú uppkomin börn, eina dóttur og tvo syni, sem nú eru að mestu teknir við fyrirtæki föður síns. Jafnræði er með þeim hjónum. Brynhildur er gáfuð og skáldmælt kona, enda á hún til þeirra að telja, dóttir Þóru Jónsdóttur, skáldkonu, frá Kirkjubæ. Brynhildur hefur tek- ið að sér hlutverk eiginkonu athafnamannsins og vakað yfir velferð hans, heimili og börnum. Brynhildur er sérstaklega vel máli farin, mælt á sex erlendar tungur, en tungumál lærðu þau hjón meira en almennt gerist vegna langdvala erlendis. Þegar leið á knattspyrnuferil eigin- mannsins var það Brynhildur sem ákvað hvenær skyldi haldið heim, svo börnin færu ekki á mis við land sitt og þjóð. Svo mikilsvert og afrekasamt hefur líf Alberts Guðmundsson- ar þótt, og svo mjög þótti mönnum til um frama hans erlendis, að Jónas Jónsson frá Hriflu fann sig knúinn til að rita ævisögu hans um það leyti sem Albert var að hefja nýjan ævi- þátt hér heima og ekki ómerkari. Frímann Helgason skrifaði einn- ig um hann bók, og annan frægan íþróttamann, Hermann Jónasson, forsætisráðherra. Um þá Albert og Hermann má segja, að báðir teljast stjórn- málamenn í anda íþróttanna, enda þarf gáfur og áræði við hvorttveggja. Sem íþróttahetja og stjórn- málamaður er Albert Guð- mundsson maður fólksins í land- inu. Frá því er hann kominn og því vill hann vinna allt það sem hann má. Til þess hefur hann sótt þrótt sinn og viðurkenningu, og fólkinu í landinu vill hann þakka langar og giftudrjúgar samvistir með því að takast á hendur að gegna æðsta embætti þjóðarinnar. Þar ræður sami viljinn og réði því, að hann vildi greiða gamalli konu uppvöxtinn með því að láta sér annt um aldrað fólk strax og hann komst til nokkurra mannaforráða. Þannig hefur hann reynst góður sonur íslands, og svo mun enn verða. Því er það, að 29. júní skulum við, góðir Íslendingar, láta sann- ast að það sé vilji meirihluta þjóðarinnar að hennar víðfræg- asta syni verði búin vist á Bessastöðum. Albert til Bessastaóa

x

Áfram Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Áfram Ísland
https://timarit.is/publication/1999

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.