LEB blaðið - 01.04.2019, Blaðsíða 36

LEB blaðið - 01.04.2019, Blaðsíða 36
3 6 l a n d s s a m b a n d e l d r i b o r g a r a - a p r í l 2 0 1 9 lEB 30 áRA 1989-2019 Formenn aðildarfélaga Landssambands eldri borgara eru sammála um að Landssambandið gegni mikil- vægu hlutverki í réttindabaráttu eldra fólks. „Landssambandið er styrkur og hvatning félögunum sem starfa um allt land. Sumum félögum verður það alltaf meiri styrkur en öðrum þar sem félögin eru misstór og -öflug fyrir. Samskipti við landssambandið eru mikilvæg fyrir félögin. Með góðu og nánu sambandi, miðlun á efni og upplýsingum til félaga um stöðu mála hverju sinni, hvetur það til frekari meðvitundar um málefn- in, umræðu og niðurstöðu,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði. „LEB vinnur að hagsmunagæslu félaga sinna á breiðum grundvelli, bæði gagnvart ríki og sveitarfélög- um. Þar ber hæst kröfu um annars vegar bætta aðstöðu í hjúkrunar- og dvalarheimilum ásamt því að nægt framboð verði á húsnæði sem hent- ar öldruðum. Þá er rétt að benda á að eldri borgarar hafa hvorki verk- fallsrétt né samningsrétt um kjör sín. Þess vegna veltur það á miklu að þannig sé haldið á málum að al- menningur og þá ríkisvaldið telji rétt og skylt að eldri borgarar hafi samb- ærilegar tekjur og aðrir hópar samfé- lagsins og að enginn þurfi að líða skort á ævikvöldinu,“ segir Haukur Halldórsson, formaður Félags eldri borgara á Akureyri. „Landssambandið hefur mikla þýðingu til að yfirfara og fylgjast með og hafa eftirlit með þeim lögum og reglugerðum sem varða eldri borgara og Alþingi setur. Það þarf að fylgja vel eftir öllum málum er varða okkar réttindi og eins að koma því til okkar á mannamáli,“ segir Gyða Vigfúsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Egilsstöðum. Þorsteinn Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Stykkishólmi, segir að LEB stuðli að sameiningu eldri borgara um land allt. Það verji hagsmuni eldra fólks og fari með málefni eldri borgara gagnvart hinu opinbera svo sem Sjúkratrygging- um og TR. Gyða segir að LEB hafi hlutverki að gegna þegar kemur að gerð kynningar- og fræðsluefn- is, eins og t.d. þáttanna sem sýndir voru á Hringbraut. „Allt efni sem kemur í sjónvarpi nær mjög vel til okkar aldurs- hóps. Blaðið Listin að lifa er einnig mjög gott blað og er lesið upp til agna þegar það berst inn um bréfalúguna. Ég veit að margir bíða eftir næsta blaði og hafa jafnvel gengið í félagið til að fá blaðið,“ segir hún. Þorsteinn er ánægður með auglýsingaherferð Gráa hersins. „Þar sést hvað við getum, og mörg okkar erum enn fullfær á almennum vinnumarkaði. Auglýsingarnar eru skemmtileg áminning um að við kunnum ýmislegt þó gömul séum og getum verið fullnýtir þjóðfélagsþegnar.“ Öll eru þau sammála um að hlutverk LEB verði mikilvægt í framtíðinni þótt það kunni að breytast í takt við breytta tíma. „Framtíð Landssambands eldri borgara byggir á nútíðinni þar sem baráttan fyrir bættum lífskjörum er í forgrunni,“ segir Valgerður. Hauk- ur telur að LEB muni gegna enn mikilvægara hlutverki í framtíðinni en í dag. „Margir telja að fjórða iðnbyltingin sé fram undan, og víst er að hún mun ekki fara fram hjá garði aldraðra, því verða þeir að búa sig undir hana eins og aðrir. Væntanlega mun hún framkalla hækkun meðalaldurs og meiri frítíma. Þar mun velferðartækni í ýmsum myndum halda innreið sína með sífellt meiri kröfu um tölvulæsi, þar verður verk að vinna LEB gegnir mikilvægu hlutverki

x

LEB blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: LEB blaðið
https://timarit.is/publication/1994

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.