Ný menntamál - 01.06.1994, Page 26
( '.........)
skólastarfs í heimalandi sínu. I
rannsókninni voru bornar saman
fjórar ólíkar leiðir sem stuðlað gætu
að bættu skólastarfi og þá sér í lagi
aukins námsárangurs nemenda.
— Aukinn kennslustundafjöldi
— Færri nemendur í bekk
— Kerfisbundin notkun tölvu-
tækni í kennslu
— Nemendur sem „ressurs“ -
nemendur í hlutverki aðstoðar-
kennara
Rannsóknin leiddi í ljós að nýt-
ing nemenda sem aðstoðarkennara
gaf bestan árangur. Það var níu
sinnum árangursríkara en aukinn
kennslustundafjöldi og fjórum
sinnum árangursríkara en fækkun
nemenda í bekk og notkun tölvu-
tækni við kennslu. Þess má einnig
geta í þessu sambandi að norskar
rannsóknir hafa sýnt fram á að eldri
nemendur fá aukinn áhuga á eigin
námi þegar þeir fá tækifæri til að
kenna og leiðbeina yngri nemend-
um. Þessar niðurstöður hafa verið
skýrðar þannig m.a. að nemend-
urnir eigi auðveldara með að sjá til-
gang og notagildi eigin náms þegar
þeir nota námið beint til kennslu
sér yngri nemenda.
Mikilvægasti afrakstur kennslu í
aldursblönduðum hópum er þó tví-
mælalaust að kennarinn neyðist til
að haga kennslunni eftir þörfum
hvers einstaks nemenda. Banda-
ríkjamaðurinn John Goodlad
(1989) staðhæfir að kennsla í ald-
ursblönduðum hópum sé besta
kennslufyrirkomulagið tii að mæta
náms- og félagslegum þörfum nem-
endanna.
Samstarf heimila og skóla
A undanförnum árum hefur auk-
in áhersla verið lögð á samstarf
heimila og skóla, bæði hér á landi
og í nágrannalöndum okkar. Um
nauðsyn og ágæti samvinnu milli
Nemendur í 7. bekk ásamt kennaranemum.
heimila og skóla eru flestir sam-
mála. Þegar að framkvæmdinni
kemur renna hins vegar á okkur
tvær grímur. Hvernig komum við
þessari samvinnu á? Oft heyrum
við kennara kvarta yfir áhugaleysi
foreldra og þá sér í lagi foreldra
þeirra barna sem mest eru háð
slíkri samvinnu. Nýlegarrannsókn-
ir við Möreforskning hér í Sogni
hafa leitt í ljós að í fámennum skól-
um í strjálbýli er samvinna og sam-
skipti heimila og skóla betri en í
öðrum skólum. Þetta á bæði við um
formleg samskipti sem skólarnir
eiga frumkvæðið að, svo sem for-
eldrafundi fyrir heila bekki, foreld-
raviðtöl við einstaka foreldra, sam-
eiginlega fundi fyrir allan skólann
og óformleg samskipti þar sem
frumkvæðið er hjá báðum aðilum.
Þetta eru atriði sem að mínu mati er
vert að hafa í huga í umræðunni um
að leggja niður fámenna skóla í
strjálbýli.
Fámennu sveitaskólarnir eru
ífjörunni er margt að finna. Skammdegissól á Askerova.
26