Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 7
er metið hvernig til hefur tekist. Líkan Tylers sem var
það fyrsta sinnar tegundar hefur verið mikið notað í
námskrárgerð og er ennþá nýtt víða en hefur þó þann
megingalla að endurspegla illa hvernig námskárgerð fer
að öllu jöfnu fram.
Walker (1990) rannsakaði hins vegar raunverulega til-
burði manna við námskrárgerð í Bandríkjunum upp úr
1960 og setti fram lrkan sem á að sýna hana. Samkvæmt
Walker mæta námskrárgerðarmenn til leiks með kollinn
fullan af viðhorfum, kenningum, væntingum um
námskrárgerð, verkefnið sem glíma á við svo og mark-
mið menntunar (grunnur). Fyrstu skrefin í námskrár-
gerðinni eru því að komast að einhvers konar samkomu-
lagi um þær hugmyndir sem menn búa yfir og slíkt get-
ur kostað tíma og átök. Um leið og námskárgerðarmenn
eru að komast að samkomulagi um meginlínur þurfa
þeir að fara að kljást við hagnýt atriði eins og möguleg-
ar útfærslur markmiða og leiða, velta fyrir sér afleiðing-
um ákvarðana og gera sér grein fyrir hvar nánari grein-
ingar er þörf (ígrundun og útfœrsla). Síðasta skrefið er
svo endanleg ritun og útgáfa námskrár (hönnun).
Ef endurskoðun aðalnámskránna er borin saman við
líkan Walkers mætti segja að í meginatriðum hafi sam-
(
Efvel tekst til við skólanámskrárgerð ættu
markmið skólastarfs að vera skýrari og þannig
auðveldara fyrir starfsmenn skóla að meta
hvaða markmiðum er náð og hverjum síður.
Þannig sjálfsmat er svo forsenda fyrir bættu
skólastarfi og skólaþróun.
komulagi verið náð með hugmyndum stefnumótunar-
nefndar sem aftur endurspeglast í starfi forvinnuhópa.
Næstu skref eru að vega og meta tillögur hópanna og
skoða hvaða hugmyndum þeirra er vænlegt að hrinda í
framkvæmd. Það er meginhlutverk samráðsnefndar.
Nýlega lagði menntamálaráðherra fram drög að
skólastefnu og í framhaldi þess munu vinnuhópar sjá um
útfærslu hennar í aðalnámskrám.
En eitt er orð og stefna og annað athafnir og fram-
kvæmd. Breytingar á skólastefnu og þar með aðal-
námskrá þurfa að ná inn í kennslustofur áður en þær fara
að hafa áhrif á árangur nemenda. Skólastarf liðinna ára-
tuga hefur án efa mótast af aðalnámskrám hvers tíma
enda endurspeglar námskráin yfirleitt þær kennslufræði-
Lok
Finna hvaða
upplýsinga er
þörf til að
ákvarða markmið
og leiðir
Leita mögu-
legralausna
og kanna
stöðu mála
íhuga afleið-
ingar mis-
munandi leiða
/
Meta kosti
og afleiðingar
mismunandi leiða
Ferli
Velja
vænlegustu
leiðir
Hugmyndir Kenningar Markmið Viðhorf Aðferðir
Upphaf
Úr Marsh, C & Willis, G. 1995
7