Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 14

Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 14
C " ^ á nemendur að tjá sig og skilja aðra. Upp úr 1970 var skipt um áherslur í kennslu erlendra tungumála og alll lagt í að kenna nemendum talmál 'Communicative Competence'. Þessi aðferð var fljótlega tekin upp í sér- stakri enskukennslu. Nemendum gekk þá betur að tjá sig þar til kom í Ijós að þeir gátu ekki fylgst með í nám- inu, áttu erfitt með lestur og árangurinn varð sá að nem- endur flosnuðu upp úr námi. Þannig er staðan víðast hvar í dag og slík tilfelli eru ekki óþekkt á íslandi (Jón Gunnar Bernburg et al, 1997). (Hér er ekki verið að gagnrýna þessa ágætu kennsluaðferð en hún reyndist ekki, ein og sér, vera við hæfi í nýbúafræðslu). Nýjar langtíma rannsóknir sem báru saman framvindu nemenda sem fá tvítyngiskennslu og þeirra sem fengið hafa hefðbundna kennslu í ensku sem seinna máli hefur varpað skýrara ljósi á skilvirkni tvítyngiskennslu og sér- stakrar enskukennslu. Þar kemur sérstök enskukennsla rnjög illa út. Vegna óánægju með sérstaka ensku- kennslu, tregðu yfirvalda til að víkka lögin um tvítyngis- kennslu og erfiðleika, fjárhagslega og í framkvæmd, við að koma upp tvítyngiskennslu fyrir öll börn, hafa fræði- menn farið að kanna nýjar leiðir til að bæta hlut yngri nemenda sem stunda nám á máli sem þeir eru á sama tíma að læra. I fyrsta lagi hafa þarfir nemenda með ann- að móðurmál verið aðskildar frá þörfum nemenda sem læra erlend tungumál í skóluin en búa annars í sínu upp- hallega málfélagi (s.s. nemendur sem læra dönsku á ís- landi). Meiri gaumur hefur verið gefinn að fylgni móð- urmálsþroska og máltöku seinni mála annars vegar og vitsmunaþroska hins vegar og hvernig megi sjá til þess að nemendur verði ekki á eftir í námsefninu meðan þeir eru að læra nýja málið. Verður vikið að þessum rann- sóknum hér að neðan. Námsframvinda eftir kennsluaðferðum Arið 1991 kom út í Bandaríkjunum skýrsla sem greindi frá langtímarannsóknum á framvindu barna með annað móðurmál en ensku eftir því hvort þau fengu tví- tyngiskennslu eða sérstaka enskukennslu. Fylgst var með 1054 spænskumælandi nemendum í 46 skólum í Kaliforníu sem fengu eina af þremur tegundum kennslu: 1) öll kennsla fór fram á ensku með aðstoð tvítyngis- kennara (sérstök enskukennsla), 2) kennsla var í upphafi TOLD-2 P og TOLD-2 I rjoW' Málþroskaprófin sem marka tímamót í greiningu á málhæfni barna Nú er tækifærið komið til að panta: námskeið, handbækur, myndabók og skráningarblöð m,i‘"»k.Prét Handbók RANNSOKNASTOFNUN UPPELDIS- OG MENNTAMÁLA Suðurgata 39 - 101 Reykjavík - Sími 551 0560 - Fax 551 0590 14

x

Ný menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.