Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 20
3
C
þróa hugmyndir sínar áfram í sam-
einingu. I upphafi gegnir kennarinn
lykilhlutverki í því að leiða samræð-
una inn á frjóar brautir en þegar vel
tekst til getur hann smám saman
dregið sig út úr því hlutverki. I góðu
samræðufélagi er enginn stjórnandi
heldur eru allir samtaka í því að láta
orðið ganga og stefna að því að ná
auknum skilningi og víðari sýn á
heiminn.
Hefðbundinn tími í barnaheim-
speki fer þannig fram að byrjað er á
því að lesa kafla úr sögu sem er sér-
samin til þess að gefa fyrirmynd að
samræðum eins og nemendurnir
sjálfir eiga að taka þátt í. í sögunni
er varpað fram ýmsum hugmyndum
sem kveikja spurningar og eru hrá-
efni í pælingar og umræður nem-
enda. Að lestri loknum segja nem-
endur hvað það er sem þeir skildu
ekki, hvað þeim fannst athyglisvert
eða annað sem þeim finnst að taka
þurfi til frekari umræðu. I samein-
ingu er ákveðið hvar byrja skuli
samræðuna og síðan fer hún í gang
og þar með mótun á hugarheimi
amræðan eykur skilning
barna á efni sem til wnræðu
er hverju sinni.
hvers einstaklings sem tekur þátt í
henni.
Samræðan eykur skilning barna á
því efni sem til umræðu er hverju
sinni. En auk þess þjálfast þau í
ýmsum leikniþáttum sem oft vilja
verða útundan í hefðbundinni
kennslu. Þau þjálfast í að átta sig á
eigin skoðunum, rökstyðja þær og
setja skipulega fram. Með því að
hlusta á aðra og bera þeirra skoðan-
ir saman við sínar eigin öðlast þau
betri skilning á umræðuefninu um
leið og þau kynnast samnemendum
sínum á nýjan hátt. Heimspekinem-
arnir þjálfast í röklegri hugsun með
því að fást við afmarkaðar rökfærsl-
ur og tengsl af ýmsu tagi. Dæmi um
slík viðfangsefni eru:1
• ef-þá: Ef Jón mætir á réttum tíma
þá hefur hann ekki sofið
yfir sig.
Jón svaf ekki yfir sig.
Þess vegna ...(Er hægt að
draga einhverja ályktun
í þessu dæmi?)
• hluti-heild: Hafið er biátt, en er vatns
dropi þá líka blár?
Ef Fríða hefur fallega and
litsdrætti, hlýtur hún þá
að vera sæt?
• stigsmunur-eðlismunur: Er stigs-
eða eðlismunur á
þyngd Tona borinni saman
við þyngd Ara?
42 kg þyngd Jónu borinni
saman við 155 cm
hæð Ásu?
Ef samræðufélag væri að fást við
hugtakið fasi gæti það tekist á við
spurningar á borð við:
• Er stigs- eða eðlismunur á vatnsgufu
og ís?
• Er stigs eða eðlismunur á ís og
gullstöng?
• Ef vatn hefur hitastigið 0-100°C þá
hefur það fljótandi fasa.
Vatn er -15°C.
Þess vegna...
• Eru tengsl vatns og klaka sambærileg
við:
- tengsi vatns og gufu?
Endur- og símenntun fyrir:
1-EIT Af>
EFNII
EHLENDUM
TÍMARITUM
þroskaþjálfa,
íþróttaþjálfara,
íþróttakennara,
leikskólakennara,
grunnskólakennara,
framhaldsskólakennara
og aðra sem áhuga hafa
á menntun og uppeldi.
Frœðslufundir, lengri og styttri nómskeið. Staðbundin námskeið og netnámskeið.
KENNARA
HÁSKÓLI
ÍSLANDS '
Endurmenntunardeild Kennaraháskóla íslands
sími: 510 3702 fax: 510 3701
netfang: ed@khi.is
veffang: http://www.khi.is/ed/
20