Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 21
- tengsl vatns og fisks?
- tengsl rjómaíss og mjólkurhristings?
- tengsi grjóthnullungs og fljótandi
hrauns?
- tengsl föður og sonar?
Heimspekileg samræða getur ein-
nig þjálfað börn í að takast á við sið-
ferðileg álitamál, kennt þeim að
skoða ólíkar hliðar á málunum og
bent á leiðir til að gera upp á milli
þeirra raka sem fram koma. Allir
þessir þættir eru síðan liður í því að
þjálfa gagnrýna hugsun; að nemend-
Ur láti sig varða hvað er á seyði í
umhverfinu, taki fullyrðingum með
fyrirvara, hlusti eftir rökum og setji
eigin skoðanir fram á skýran og
skipulegan hátt.
Heimspekileg náttúrufræði-
kennsla
Síðastliðið haust samdi ég drög að
kennsluefni í anda barnaheimspek-
innar sem ég hugsaði mér að hægt
væri að nota til að dýpka og bæta
náttúrufræðikennslu í grunnskólum.
I samvinnu við Hrein Pálsson próf-
aði ég efnið á einum hópi nemenda
hans í Heimspekiskólanum. Hópur-
inn samanstóð af 8 nemendum á
uldrinum 12-14 ára, þar af var 1
stúlka. Flest höfðu þau talsverða
þjálfun í heimspekilegri samræðu
eftir nokkurra ára nám við Heim-
spekiskólann. Þeir nemendur sem
komu nýir inn áttu þó ekki í vand-
ræðum með að aðlagast vinnuað-
ferðinni og urðu nánast strax full-
gildir þátttakendur í samræðunum.
Hreinn prófaði efnið líka í hópi 10-
11 ára nemenda og samræður sem
þar spunnust voru alveg jafn áhuga-
verðar og með þeim eldri.
Kennslan í Heimspekiskólanum2
fór fram við aðstæður sem eru tals-
vert frábrugðnar almennu skóla-
starfi. Hópurinn var lítill og nem-
endur höfðu sjálfir ákveðið að þeir
vildu taka þátt í starfinu. Þótt hluti
hópsins hafi komið úr sama grunn-
skóla þá höfðu nemendur ólíkan
bakgrunn hvað varðaði náttúru-
fræðinámið og því gat ég ekki tengt
kennsluna ákveðinni yfirferð í
námsefni eins og ég hafði í upphafi
hugsað mér. Þessi prufukennsla var
þó mjög lærdómsrík og gaf mér
góðar vísbendingar um hvernig best
er að móta kennsluefni af þessu tagi
til þess að það gagnist í náttúru-
fræðistofunni.
Tilgátur og kenningar
Flokkaðu eftirfarandi fullyrðingar:
Tilgáta Kenning Hvorugt
1- HIV veiran veldur alnæmi.
2. Einhvern tíma var líf á Mars.
3. Með hjálp erfðatækni má ákveða
hvort ófætt barn verði drengur eða
stúlkur.
4. Fart'uglar rata með hjálp segulsviðs
jarðar.
5. Katla mun gjósa innan 10 ára.
6- Blóð flytur súrefni um líkamann.
2. Jólasveinninn býr í Esjunni.
8- Vatn er undirstaða lífs á jörðinni.
9- Alheimurinn er óendanlegur.
Hvað er efni?
Eru eftirfarandi fyrirbæri efnisleg?
Hvernig vitum við hvort þau eru það eða
ekki?
1. Steinn
2. Tré
3. Hundur
4. Hugsun
5. Andrúmsloftið
6. Sólin
7. Ljós, birta
8. Tilfinning
9. Frumeind
10. Sársauki
Hvað varðveitist og hvað ekki?
Hver af eftirfarandi fyrirbærum eru
óendanleg, glatast aldrei og hver eyðast
og hverfa?
1. Epli
2. Sólin
3. Minning unt skemmtilega mann-
eskju
4. Hitinn í herberginu
5. Vatnið á jörðinni
6. Efnið á jörðinni
7. Alheimurinn
8. Olíubirgðir jarðar
9. Orkan í Jökulsá á Fjöllum
10. Ljósmynd
11. Skáldsagan „Benjamín dúfa“
21