Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 31

Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 31
) Rannsóknir atferlisvísindanna sýna að eins og annað í náttúrunni lýtur hegðun tilteknum reglunr og breytist samkvæmt þeim. Sú reglufesta gerir okkur kleift að kynna stjórnendum, kennurum og höfundum náms- gagna þá tækni sem þekkt er og best hefur reynst til stjórnunar, kennslu og náinsgagnagerðar. Samræmt vinnuferli Almennt falla skólaskrifstofur, heilsugæsla og félagsþjónusta við fjölskyldur undir aðskilin kerfi stjórnsýslunnar. Einu samræmdu vinnuferli milli skóla- skrifstofa og annarra þjónustustofnana er ekki til að dreifa. Vinnuferlið verður þ.a.l. nokkuð flókið og afgreiðsla máls getur ráðist af því hver fær það í hendur. I ljósi þessa aðskilnaðar getur á II. mynd að líta hug- mynd að verkferli sérfræðiþjónustu skólaráðgjafa í átt að aukinni yfirsýn, einföldun og samræmi. Ferlið hefst þegar tilvísun berst á skólaskrifstofu og sýnir röð helstu aðgerða ferlisins, þ.e. upplýsingaöflun, ráðgjöf, samstarf ráðgjafans við sérfræðinga utan skóla- kerfisins og starf þverfaglegs teymis um málefni barns- ins, bekkjarins og fjölskyldunnar. c s A.n árangursríkrar þjónustu sérfrœðinga á skólaskrifstofum flytjast mál lítið eða óunnin beint út í heilbrigðis- og félagskerfið. Þegar ráðgjafi skólaskrifstofu fær mál í hendur (1, 2), fer hann á vettvang til að afla upplýsinga (3). Hann fundar með kennara, skólastjóra og öðrum sem að máli barnsins koma. Hann talar við barnið og foreldra þess og fær ítarlegar upplýsingar um sögu fjölskyldunnar, heilsufar og aðra hagi hennar, auk þroskasögu bamsins, daglega hegðun þess og samskipti við aðra. Ráðgjafinn situr í kennslustund og gerir lauslega greiningu á hegð- un barnsins og samskiptum þess við kennarann og bekkjarfélagana. Hann kannar félagslega stöðu þess og skoðar gaumgæfilega gögn frá kennurum um stöðu barnsins í námi. Til þess að ráðgjafarferlið sem hér er lauslega lýst taki sem stystan tíma er mikilvægt að þegar sé búið að afla flestra þessara upplýsinga heima og í skólanum. Það má HUGMYND AÐ VINNUFERLI RÁÐGJAFARÞJONUSTU VIÐ GRUNNSKOLA UPPLÝSINGAÖFLUN RÁÐGJÖF INN1 SKÓLANA ÞVERFAGLEGT TEYMI SKÓLI Hegðun °g N á m TILVÍSUN 1. SKOLASKRIFSTOFA Teymisfundur sérfræðinga Atferliskráning: Skoðun, gátlistar og hegðunarmælingar. Viðtöl: Heilsufars- og fjölskyldusaga. Kannanir / próf: Námsstaða, félagsstaða. ATFERLISMOTUN BEKKJARSTJÓRNUN KENNSLUTÆKNI NÁMSGAGNAGERÐ 4. kennslurádgjafi TILVISANIR Sérfrœöingar uían skólakerfisins atferlisrádgjafi Iójuþjálfun Sjúkraþjálfun Greiningarstöð ríkisins UMSJONARKENNARI SKÓLASTJÓRNANDI SÉRKENNARI AÐRIR, EFTIR ATVIKUM FORELDRAR ATFERLISRAÐGJAFI KENNSLURÁÐGJAFI SÁLFRÆÐINGUR FELAGSRAÐGJAFI B ARN AGEÐLÆKNIR AÐRIR, EFTIR ATVIKUM Rádeiafadeild Félagsmálastofnunar barnageölœknir 7. Sívirk viðgjöf um framvindu máls Mynd II 31

x

Ný menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.