Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 33
c
)
og fjölskyldunnar er meðhöndlað í heild og samræmt út
frá mörgum sjónarhomum í senn. A teymisfundum er
ákveðið hvaða skref skuli stigið næst og koma þeir í stað
ótal annarra funda á mörgum stöðum sem annars þyrfti
að halda um eitt og sama atriði málsins. Teymisfundir
spara mikinn tíma, símtöl, pappír og ferðir.
Eitt meginatriðið í teymisvinnunni er að teymið er
ekki fastur hluti af formgerð í skipuriti skólans. Teymið
verður til við upphaf málsins og starfi þess lýkur þegar
tölulegar upplýsingar sýna að þær breytingar hafa orðið
á hegðun barnsins sem stefnt var að. Þá er hlutverki
skólaskrifstofu í málinu lokið. Nú sem endranær er
vandi okkar hins vegar sá að hlutlœg viðmið og töluleg-
ar upplýsingar um árangur eru ekki til. Af því leiðir að
mjög erfitt verður að meta hvort breytt verklag sérfræði-
þjónustu í grunnskólum sé í raun síðra en það sem áður
var. Hitt er svo aftur annað að til þess að starfsfólk
skólaskrifstofa geti veitt þá þjónustu í grunnskólunum
sem ný reglugerð mælir fyrir verður að bjóða þessu
sama fólki menntun og þjálfun í nýjum vinnubrögðum,
þannig að það geti rækt skyldu sína samkvæmt breyttu
hlutverki sem því er sett. An árangursríkrar þjónustu
sérfræðinga á skólaskrifstofum flytjast mál lítið eða
óunnin beint út í heilbrigðis- og félagskerfið.
Skilvirkara vinnuferli
Öllu einfaldara vinnuferli fæst ef sérfræðiþjónustan er
veitt frá þverfaglegri miðstöð skóla-, heilbriðgis- og fé-
lagsmála, eins og sýnt er á IV. mynd.
Þegar grunnþjónusta fjölskyldunnar er undir einum
hatti, verður aðeins um eina skráningu hvers máls að
ræða, óháð tilvísunaraðila. Upplýsingaöflun allra sem
að hverju máli koma getur hafist strax samhliða, og
þannig llýtt fyrir samræmdum aðgerðum og árangri
málsins. I slíkri miðstöð eru tilvísanir afgreiddar með
þverfaglegum fundum, og ræðst það af eðli málsins
hverjir þaðan sitja í væntanlegu vinnuteymi (sjá dæmi á
mynd). Sameining ein og sér dugir þó ekki til. Hvort
sem grunnþjónustan er skilin að í stjórnsýslunni eða rek-
in í þverfaglegri miðstöð næst árangur aðeins með
breyttum og bættum vinnubrögðum. Þá mun aukin
þekking og færni foreldra og kennara reynast fyrir-
byggjandi og nýtast sem sjálfsagður hluti daglegs upp-
eldis og kennslu.
Samningar um gagnkvæma skuldbindingu
Þrátt fyrir að hlutverk skólaskrifstofa hafi breyst með
tilkomu nýrrar reglugerðar, koma sérfræðingarnir að
þjónustunni með svipuðum hætti og áður var. Skoðum
þetta aðeins nánar. Beiðni til skólaskrifstofu berst í
langflestum tilvikum sem vandamál tiltekins einstak-
lings. Þessir einstaklingar geta orðið æði margir. Hugs-
um okkur einfaldað dæmi. Á þjónustusvæði skólaskrif-
stofu eru 30 skólar. Einn þeirra er mjög stór með 840
nemendur í 10 árgöngum og í hverjum árgangi eru 3
bekkir með 28 nemendum hver. Ef sú fullyrðing reynist
rétt að í hverjum bekk sé að jafnaði 1 til 3 nemendur sem
Mynd IV
MIÐSTÖÐ ÞVERFAGLEGRAR GRUNNÞJÓNUSTU FYRIR FJÖLSKYLDUR
Tilvísunar- Vandi Fundur tengla Teymi heimils, skóla Öflun
aðilar sérfræðinga heilsugæslu, og þjónustumiðstöðvar, upplýsinga
félags- og skólakerfis skipað eftir eðli máls
Aðgerðir
Skóli
og/eða
Lögregla
og/eða
Foreldrar
og/eða
Aðrír
, TILVISUN
með grunnvallar_
' upplýsingum
Ein skráning
J
Tími:
T 1
> T 2 ------------------► T 3 -——► T 4
33