Ný menntamál - 01.04.1998, Blaðsíða 46
C )
Þeir halda að fólk menntist á því að
vera matað, að sjá og heyra. Sann-
leikurinn er sá að nám er vinna,
skapandi starf. Menn læra lítið nema
þeir geri hlutina sjálfir. Við lærum
ekki stærðfræði af því að sjá reikni-
formúlur, ekki skrift af því að sjá
letur og ekki sund af því að sjá sund-
tök heldur lærum við þessa hluti
með því að æfa þá sjálf. Við getum
að vísu lært mikið af lestri bóka en
til að bóklestur mennti menn verða
þeir sjálfir að vinna mikið hugar-
starf, mun meira en neytendur marg-
miðlunarefnis og þeir sem lauga
sjónir sínar í fjölmiðlafroðu gera
svona almennt og yfirleitt.
Það sem nemendur skóla hafa lært
af margmiðlun hafa þeir lært með
því að búa sjálfir til margmiðlunar-
efni. Mér vitanlega hefur enginn
aukið við menntun sína svo heitið
geti með því að gramsa í geisladisk-
um eða vafra um veraldarvefinn,
þótt vissulega geti heimildaleit á
þessum miðlum gegnt hlutverki t.d.
við ritgerðasmíð og ýmsa verkefna-
vinnu.
*
Hvaða lærdóma má draga af þess-
ari sögu? Hvernig á að nota tölvur í
grunn- og framhaldsskólum? Það
má fullyrða að nemendur grunn og
framhaldsskóla þurfi að venjast á að
nota tölvur sem verkfæri við ýmis
algeng verk sem kennd eru í skól-
um, einkum ritun og textavinnslu,
en líka reikning, tónsmíðar, teikn-
ingu o.fl. Einnig má fullyrða að á
skólasöfnum þurfi að vera aðgangur
að veraldarvefnum og ýmsu
fræðsluefni á geisladiskum, alveg
eins og þar eiga að vera til hljóm-
diskar, myndbönd, litskyggnur og
fleira efni auk bóka. I ýmsum grein-
um kann að vera skynsamlegt að
nota kennsluforrit. Þótt reynslan af
þeim sé almennt ekki mjög góð hafa
allmörg forrit gagnast t.d. við sér- t
kennslu og þjálfun á afmörkuðum
sviðum.
Tölvur eiga erindi í skólana bæði
sem verkfæri, kennslutæki og upp-
lýsingabrunnar. En hvorki er þar
með sagt að dýrar margmiðlunar-
tölvur þurfi að vera í hverri kennslu-
stofu né að ástæða sé til að sjá of-
sjónum yfir möguleikum tölvutækn-
innar. Hún getur ekki reist skóla-
kerfið úr öskustónni, en í góðum
skóla þar sem vel er unnið er hægt
að vinna enn betur með góðum
verkfærum. Ef skólar kaupa allt það j
nýjasta nýtt af tölvusölum bara til að
tolla í tölvutískunni þá er hætt við að
peningar sem mætti nota til að þjóna
mikilvægum námsmarkmiðum fari
fyrir lítið.
1. Heimild: Shenk, David: „Plug in Utopias“ í Brown
Alumni Magazine Vol 98, nr. 1, sept./okt. 1997
Atli Harðarson er kennari við
Menntaskólann á Laugarvatni.
ORKA
Ný bók í flokki námsefnis
um almenn náttúruvísindi
Vandaðar kennsluleiðbeiningar
fylgja efninu og mappa með
verkefnum, könnunum og glærum
er væntanleg
NÁMSGAGNASTOFNUN
Laugavegi 166 • 105 Reykjavik • Sími 552 8088 • Bréfasimi 562 4137
46