Leikskrár Þjóðleikhússins - 20.04.1950, Qupperneq 11

Leikskrár Þjóðleikhússins - 20.04.1950, Qupperneq 11
D R A U M U R I N D R I Ð A EINARSSONAR Þenna dag verður mörgum liugsað til Indriða Einarssonar, leikritaskálds, er varð aðal hvatamaður þess, að Þjóðleikhús Islendinga er nú risið upp og tekið í notkun. Hann barðist fyrir þessu áhugamáli sínu af brennandi áhuga og kom því fram, með aðstoð góðra manna, að lög voru samþykkt á Al- þingi um skemmtanaskatt, er varið skyldi til þess að koma leikhúsinu upp. Það var í janúarblaði Óðins 1915, að Indriði birti hina merku grein sína „íslenzkt leikhús.“ Hann ræðir þar um framfarir þær, er orðið hafi á Islandi síðan 1875, og minnist á það, er gert hefur verið til að styðja listir og vísindi, en enn vanti mæninn á þá byggingu, er þurfi til að halda við íslenzkri tungu og íslenzku þjóðerni. Þessi mænir er, að áliti Indriða, leikhúsið. „Leikhúsið sameinar í sér allar listir í einu, ef það er fullkomnara en við höfum átt að venjast. Það er efsta loft menningarinnar í hverju landi.“ Síðan heldur hann hugleið- ingum sínum áfram og krefst leikhússbyggingar fyrir 250.000,00 kr., en til samanburðar má geta þess, að Safnahúsið kostaði 210.000,00 kr. Hann sækir í sig veðrið eftir þessar hugleiðingar og segir: „I nafni listarinnar, vegna íslenzks þjóðernis, og vegna heiðurs þjóðarinnar, krefst ég þess, að hér verði reist sæmilegt leikhús.“ Hann hefur farið mjög nærri um leikhúsþörf fslend- inga á næstu áratugum. Hann gerir ráð fyrir leikhúsi með 750 sætum og að 12 fastir leikendur, að minnsta kosti, verði ráðnir. Honum er ljóst, að leikhús þetta verði að reisa fyrir opinbert fé, og að ríkissjóður verði að leggja til árlegs rekstrarkostnaðar 24—30.000 kr. Þegar menn hafa í huga, að allar tekjur land- sjóðs 1913 reyndust 2þ4 millj. króna og að flest var þá ógert í þessu landi, ldýtur stórhugur Indriða á þessum árum að vekja aðdáun vora. En honum ofbauð ekki að nefna háar tölur. Hann var hagfræðingur að menntun og endurskoðandi landsreikning- anna og sagði í þessu sambandi: „Það er enginn efi á því, að landið getur veitt 24—30.000 kr. til leikhússins. Það getur veitt fjórum sinnum meira en það, ef þess þyrfti.“ C 9 ]

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.