Leikskrár Þjóðleikhússins - 20.04.1950, Síða 14

Leikskrár Þjóðleikhússins - 20.04.1950, Síða 14
J Ó H A N N SIGURJÓNSSON Fjalla-Eyvindur, þriðja leikritið, sem prentað var eftir Jóhann Sigurjónsson, kom út á dönsku í Kaupmannahöfn haustið 1911 (Bjærg-Ejvind og hans Hustru). Bókinni var ágætlega tekið, og Georg Brandes lauk sérstaklega á hana svo miklu lofsorði, að það hlaut að vekja athygli. Frú Johanne Dybvad, sem þá var frægasta leikkona Norðurlanda, hafði lesið handritið vorið 1911 og óskað þess að fara með hlutverk FIöllu. Leikurinn hafði í Reykjavík veturinn 1911—12 notið frábærrar aðsóknar og undirtekta. Miklar vonir stóðu því til, að vel mundi líka fara, er hann væri sýndur í Höfn. En eigi að síður voru þær við- tökur, sem Fjalla-Eyvindur hlaut mánudaginn 20. maí 1912, þegar hann var frumsýndur í Dagmar-leikhúsinu, enn glæsi- legri en nokkur maður gat verið viss um fyrir fram. Fáir munu reynast óskeikulir, svo sem mörg dæmi sanna, að spá um örlög sjónleiks, fyrr en á sjálft leiksviðið kemur og gengið verður úr skugga um, hver tækifæri hann gefur leikendum og hverjum tökum hann nær á áhorfendum. Þarna mátti búast við miklu vandfýsnari leikhúsgestum en í Reykjavík, og meira var í húfi, því að undir þessu kvöldi var að mestu komið, hvort sótt yrði eftir leikritinu til sýningar annars staðar á Norðurlöndum og víðar. En af frumsýningunni lagði þegar í stað óvenjulegan ljóma. Frú Dybvad voru nokkuð mislagðar hendur, eins og mörgum listamönnum með snilligáfu. Því fór fjarri, að hún ynni eintóma sigra eða gæti ein bjargað hverju leikriti frá skip- broti. En þetta kvöld hef eg tvímælalaust séð hana leika af mestri andagift. Hlutverkið lyfti henni engu síður en hún því. Um sigurfarir Fjalla-Eyvindar í öðrum löndum skal eg ekki fjölyrða, en minna á það eitt, að þær hefðu orðið enn meiri, einkum á Þýzkalandi og meginlandi Norðurálfu, ef heims- styrjöldin fyrri hefði ekki skollið á rúmum tveim árum síðar og allt gengið úr skorðum. Þessi fyrsti sjónleikur eftir íslenzkan mann, sem kom fram á erlendum vettvangi, reyndist þar ekki aðeins hlutgengur, heldur ruddi sér í einni svipan til slíkrar frægðar, að Jóhanni var t. d. í Frakklandi jafnað til þeirra [ 12 ]

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.