Alþýðublaðið - 05.02.1926, Page 1
1926.
Mimlð eftir átsSlunnt á taiilrátiisii
á morgun í afgreiðsln Álafoss,
Siml 4114«, Hafnarstrðeti 17. Símf 4114»
Erlend simskeyti.
Khöfn, FB., 4. febr.
Sameining Þjóðverja.
Frá Berlín er símað, að Seipel,
fyrrverandi ríkiskanzlari Austur-
ríkis, sé nýkominn þangað, og
hafi honum verið tekið með kost-
um og kynjum af æðstu embættis-
mönnum ríkisins. Kvisast hefir,
að ferðalag hans standi í sambandi
við leyndar og ljósar tilraunir til
þess að sameina Þýzkaland og
Austurríki.
Belgingurinn i Mussolini.
Frá Rómaborg cr símað, að
Mussolini hafi sagt, að þessi öld
muni verða kölluð ítalska öldin.
Hefir hann skipað sérstaka nefnd
til þess að rannsaka, hvað heppi-
legast sé að gera til þess að
styrkja afstöðu ítalíu út á við, og
hvernig hægt veröi að ná yfirráð-
um yfir landssvæðum í Asíu og
Afríku.
Khöfn, FB„ 5. febr.
Upptaka Þýzkalands i Þjóða-
bandalagið.
Samkvæmt hraðskeyti frá Berlín
hefir utanríkismálanefnd Ríkis-
þingsins samþykt með 18 atkv.
gegn 8 aö gefa stjórninni umboð
til þess að gera nauðsynlegan
undirbúning undir upptöku Þýzka-
lands í Þjóðabandalagið.
Uppreist í Lissabon bæld niður.
Frá Lissabon er símað, að tvær
stórskotaliðsdeildir hafi gert upp-
reist og skotið á borgina. Herinn
kom til varna og lenti í hörðum
bardaga. Uppreistartilraunin var
bæld niður.
20 ára afmæli Dagsbrúnar
Vegna þess, að margir félagsmðnn liafa ekki liaft tækifæri til að sækja
afmælishátiðina undanfarin kvöld, verður hún endurtekin næstkomandi
mánudagskvöld kl. 8 i Iðnó.
Skemtiskrá verður sú sama og auglýst
hefir verið áður.
Aðgöngunliðar verða afhentir i gamla Alpýðuhúsinu, smmudaginn
7. p. m. frá ki. 2 — 7 fyrir alla þá félaga, sem ekki hafa verið áður.
Ariðandi er, að allir þeir, sem ætla sér að vera á skemtuninni, sæki
aðgöngumiða á sunnudag.
Verði eitthvað eftir af miðum, pá verða þeir
seldir á mánudag eftir kl. 1 á sama stað.
Félagsmenn sýni skýríeini.
Munið það féiagar, að skemtunin verður ekki
háldin fleiri kvöld. Skemtinefndin.
Jafnaðarmannafélag íslands.
Aðalfundair
verður haldinn laugardaginn 6. tebr. 1926 kl. 8 siðd. i kaupþingsalnum.
Dágskrá:
1. Aðalfundarmál samkvæmt félagslögunum.
2. Pétur G. Guðmundsson talar um koosningar.
Félagar f jölmennið! S t j ö r n i n.
Eggert Stefánsson
syngur í síðasta sinn í Frikirkjunni sunnud. 7. febr. kl. 8Va siðd.
Emil Thoroddsen aðstoðar.
Aðgöngumiðar fást hjá frú Viðar, Bókaverzlun ísafoldar og Sigfúsar
Eymundssonar og Hljóðfærahúsinu og kosta kr. 3,00.
L 0 UI T-siðnsðkkilaði.