Alþýðublaðið - 06.02.1926, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 06.02.1926, Blaðsíða 5
ALÞ.ÝÐUBLAÐID 5 Um tSafjjlH&sfl ©n weglam. Næturlæknir er í nótt Ólaíur Þorsteinsson Skólabrú, sími 181, og aðra nótt M. Júl. Magnús, Hverfisgötu 30, sími J410. Tvö ping voru sett í dag, alþingi og fiski- þingið. Við alþingissetninguaa predikaði séra Árni Sigurðsson frikirkjuprestur. Sagði hann út af fríkirkjuprestur. Lagði hann út af orðum spámannsins: „Vökumaður! Hvaö líður nóttunni?" „Morgunninn kemur, og pó er nótt.“ ísfiskssala. Belgaum seldi í fyrra dag afla sinn fyrir 1276 sterlingspund, en Valpöle fyrir 774 sterlingspund. Ágúst Flygenring, fyrrv. aiþingismaður, dvelur í Kaupmannahöfn tli að leita sér heilsubótar. Er lionuin talin góð batavon. t Hjúskapur. t gærkveldi gaf séra Bjami Jóns- son saman í hjónaband ungfrú Thesi Zeitner og Ouðmund Einarsson lista- mann frá Miðdal. Þýzkur togari kom inn í morgun með mann, sém hafði mist þrjá fingur af annari hendi. Togararnir. Baldur kom frá Englandi í gær, en Skallagrímur af veiðtím í nött með 1400 kassa. Línubáíarnir hafa fiskað vel undanfarna daga. Skipaferðir. Goðafoss fór vestur í gærkveldi. Lagarfoss kom í nótt. Varðskipið „Fylla" kom hingað' i dag. Þingmálafundur auðvhaldssinna. Auðvaldsþingmenn Reykjavíkur boðuðu „kjósendur sína“ á þing- málafund í Nýja Bíó í igær. Var fundurinn fásóttur, svo sem von- legt var, þvi að fæsfir viija kannast við það opinberlega, að þeir séu kjósendur þeirra. Til málamynda urðu þingmennirnir að halda sína ræðuna hver, en lítið varð um aðrar iölur, og var fundurinn daufur mjög. „Dagsbrúnar“-skemtunin. Síðustu forvöð að fá aðgöngumiða að henni eru á morgun kl. 2—7 í gamla Alþýðuhúsinu. Munið það! Næturvörður er næstu viku i Reykjavíkur-apó- teki. Messur á morgun: 1 dómkirkjunni kl. 11 séra Friðrik Hallgrímsson, kl. 5 séra Bjarni Jónsson. i fríkirkjunni kl. 2 séra Árni Sigurðsson, kl. 5 Haraldur próf. Nielsson. í Landakotskirkju kl. 9 f. m. hámessa, kl. 6 e. m. guðs- þjónusta með predikun. í aðvent- kirkjuiini kl. 6 j/g e. m. séra O. J. Olsen. Eggert Stefánsson syngur í fríkirkjunni á morgun kl. 8Va siðdegis. Á söngskrá hans er meðal annars hið ágæta lag Good bye eftir Tosti. Verður sjálfsag^ mörgum vorvitni á að heyra það j meðferð hans. Míðunarsíöð. í fréttum frá aðalfundi Fiskifé- lagsins er getið úin miðunarstöð. Slikar stöðvar eiga að geta leiðbeint skipum um, hvar þau eru stödd, og gefið þeim til kynna stefnur af á- kveðnum stöðum. Mál þetta er enn í undirbúningi og ekki fullrannsakað, hvort stöð á Vesturlandi getur kom- ið að fullum notum. Brunaliðið var gabbað inn að Laugavegi 76 ! nótt kl. tæplega 2. Maður, sem grunaður er um gabbið, var tek- inn fastur og fangelsaður. Aðgöngumiðar að söngskemtun Eggerts Stefáns- sonar, sem eftir kunna að verða í dag, verða seldir í Gcod-Templara- húsinu eftir kl. 2 á morgun. Þetta er allra síðasta tækifæri til þess að heyra þenna ágæta söngmann Veðrið. Hiti mestur 5 stig; minstur 5 st. frost. Átt víðast austlæg. Snarpur vindur í Vestmannaeyjum. Annars staðar lygnara. Loftvægislægð fyrir sunnan land. Veðurspá: Suðaustlæg, sí|Bar austlæg átt. I nótt: allhvöss austanátt og úrkorna á Suður- og Suðvestur-landi. Hægur á Norður- og Vesturlandi. Sunnudagsblaðið hefir stækkað á þann hátt, að það er nú 6 siður á hverri helgi (2 síður eingöngu myndir). Jafnaðarmannafélag íslands heldur aðalfund í kvöld kl. 8 í kaupþingssalnum. Félagar, fjöl- mennið! Dánarfregn. Gunnlaugur Magnú,sson sjómaður og kona hans, Soffía Bjarnadóttir, ,á Skölavörðustíg 16 hafa orðið fyrir þeirri sorg að missa dóttur sína, „SKDTCLL“ blað alþýðumanna og jafnaðar- manna á ísafirði, kemur út einu sinni í viku. Skemtilegar og ágætar árásargreinar. Fræðandi greinar o. fl. o. fl. — Blaðið kostar kr. 5,00 árg. Gerist áskrifendur! Lftið hús til sölu í Hafnarfirði. Upplýsingar um söluskilmálana gefur Júlíus Sigurðsson, Sjómannaskrif- stofan, simi 170. Nýtt hús til sölu í Hafnarfirði á ágætis stað. Uppl. á skrifstofu Sjó- mannafélags Hafnarfjarðár, sími 170. Bjarneyju Gíslínu, 15 ára gamla. Hún dó á Vífilsstöðum í gær. Er þetta 5. barn þeirra hjóna, sem þau missa á fáum árum Um kaup stýrimanna á skipum Eimskipafélags Islands varð samkomulag rétt áður cn Gull- foss fór til útlanda. Samið er til þriggja ára. Kaupið lækkaði nú um 2,35 prósent. Eiga þá vélstjórarnir einir ósamið af þeim, sem vinna á skipunum. „Fleygur gestur“. Greinin er eftir Ó. Sv. frá Sandi, vitavörð á Reykjanesi. Hið isl. náttúrufræðifélag heldur aðalfund sinn kl. 5 í dag í Safnahúsinu. Sjö pingmenn eru enn ókomnir, en koma aneð íslandi í nótt eða á morgun. Gengu sumir þeirra af Goðafossi á Akur- eyri. — Slíkir eru hinir þjóð- ræknu þingmenn, að ganga af ís- lenzku skipi á danskt, og verða fyrir bragðið of seinir til þings. Alpýðublaðið er sex síður í dag 1— meðfram til uppbótar óhjákvæmilegri seinkun, sem verið liefir á útkomu þess und- anfarna daga og hér með er beiðst afsökunar, um leið og vonandi cr séð- fyrir endann á slíku. Kappteflið norsk-íslenzka. (Tilk. frá Taflfélagi Reykjavíkur.) Borð I: 42. leikur íslendinga (hvítt), a 4 — a 5. 42. leikur Norðmanna (svart), R c 5 — b 3. Borð II: 40. leikur íslendinga (svart), H d 1 — c 1. 41. leikur Norðmanna (hvítt), R c 4 — d 6.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.