Fregnmiði - 21.05.1962, Page 1
KJSRUMÁLIÐ U N N I Ð ;
Meirihluti bæoarstjórnar fær áminn-
ingar frá FÉLAGSMÁ'LARÁÐUNEYTINU.
Raöunejrtiö leggur fyrir bæjarstjórn, að hun láti leiðrétta bæjarreikningana
Af bréfi Relagsmálaráðuneytisins kemur fram, að bæjarstjérn
fær áminningu um eftirtalin atriöi;
1. Að Framkvæmdasjóðurinn sé ekki sjálfstæður og tilvera hans fremur
villandi en leiðbeinanhi.
2. Að koma þurfi reikningsfærzlu vegna m.b. Bjarna Jonssonar á hreinan
grundvöll og færa skuli reikninga bæjarins til samræmis við þá
niðurstöðu.
3* Raðuneytið gefur bæ^arstjórn fyrirmæli um að upplýsa Jpurfi, hvers-
vegna kr. 150.000,00 lán hafi fallið niður af skuldaskrá Hitaveitu
Sauöárkróks. Ekki hefur verið gerð grein fyrir því ennþá.
4. Að ekki hafi verið gerður efnahagsreikningur fyrir Hafnarsjóð
fyrr en á árinu 1960.
5. Að ekki sé fullkomlega ljóst hvernig eign bæjarins í Piskiveri
Sauðárkróks h.f. só variö, hvort hlutabréfin hafi verið yfirkeypt
um kr. 1.082.400,00, sem verði að teljast óeðlilegt, eða hvort hér
sé um að ræöa venjulega viðskiptaskuld, sem þá ætti aö sjást á
efnahagsreikningi Piskivers. Reikningsfærslan er svo óglögg, að
ráðuneytið verður að gizka á tvær hugsanlegar leiðir um réttmæti
færzlunnar.