Fregnmiðinn - 01.12.1945, Page 1

Fregnmiðinn - 01.12.1945, Page 1
LÁTIÐ ALLA Á HEIMILINU LESA FREGNMIÐANN. HIN NÝJA ÚTGÁFA SIGNI Félag manna í Reykjavík hefir hafizthanda um útgáfu íslendingasagna. Verður þetta mjög vönduð og ódýr útgáfa. Lögð verður megináherzla á vandaðan pappír og skýrt letur. Einn kunnasti fornritafræðingur landsins, hr. magister Guðni Jónsson, hefir verið ráðinn ritstjóri útgáfunnar. Þótt skammt sé síðan málum þessum var ráð- ið til lykta, hafa undirtektir manna verið með eindæmum góðar og sýna bezt, að ís- ltndingar kunna enn að meta þennan bókmenntafjársjóð sinn og sitja sig ekki úr færi að eignast íslendingasögurnar, þegar þeim býðst smekkleg og handhæg útgáfa. — Þessi útgáfa telur, sem fyrr er getið, það vera meginskyldu sína og setur metnað sinn í það, að inna útgáfustarfið sem allra bezt af hendi. Um það verður ekki deilt, að einmitt í þessar gömlu sögur hefir þjóð vor sótt þrek sitt, merg og manndáð. Og þeim eigum við fyrst og fremst að þakka sjálfstæði vort og íslenzkt mál. 12 bindi verða í hinni nýju útgdfu. Eru það ekki aðeins allar þær íslendinga- sögur, er birzt hafa í eldri heildarútgáfum, heldur að auki um 25 sögur og þættir, sem öllum þorra manna eru lítt eða ekki kunnir. Verður ritinu að forfallalausu skilað til kaupenda fyrir lok næsta árs, fyrir 300 krónur óbundnu eða 372 kr. í skinnbandi. —

x

Fregnmiðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnmiðinn
https://timarit.is/publication/2032

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.