Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Side 5
tilL
eóen
Ekki veit ég, lesandi góður, hváöa hugsanir bærast í liuga
þínum, þegar þú lest blaS sem þetta. Þœr eru sjálfsagt tnjög
margar og mismunandi. Svo er ætiö, þegar Guös orö fær aö tala
til einstaklingsins. í huga minn kemur setning, sem nokkuö oft
heyrist. — Iss, þeir sem eru áÖ prédika, eru nú ekki betri en við,
þótt þeir haldi þdð. — Það er alveg rétt, við erum ekkert betri
en annað fólk, og hinn lifandi kristni maður veit það. En það
er nokkuð sem hann á, sem þú átt ef til vill ekki, lífið í Kristi.
Tilgangur þessa blaðs er einmitt sá að flytja vitnisburð og reynslu
margra ungra manna, sem eiga lífið í Kristi. Það, sem vakir fyrir
öllum þessum ungu mönnum, er, að þeir vilja vekja aðra til um-
hugsunar um sitt andlega ástand og benda þeim á veginn, sem
þeir liafa fengið náð til að ganga, veginn til lífsins. Heitasta þrá
hvers einasta kristins manns er að fá fleiri til áð veita hjálpræði
Krists viðtöku, og hvar sem kristinn maður er, reynir hann áð
vera til blessunar. í öðru lagi hefur tilgangur blaðsins verið að
frœða lesendur um kristilegt starf og kristilegt efni.
TJm stærð blaðsins er það að segja, áð það er lieldur stærra
en í fyrra. Efnið er mestmegnis frá skólanemendum sjálfum, hug-
leiðing eða vitnisburður um Guðs orð, og þakka ég þeim fyrir
framlag sitt. Samstarfsmönnum mínum í ritnefnclinni flyt ég
beztu þakkir fyrir gott starf í þágu blaðsins. Hinum mörgu fyrir-
tœkjum og einstaklingum, sem styrkt hafa bláðið með auglýs-
ingu, flyt ég beztu þakkir. Jafnframt þakka ég starfsmönnum
prentsmiðjunnar fyrir ánægjulegt samstarf.
Það er svo ósk mín og bæn, að Kristilegt skólablað mætti
vera sem Ijósgeisli Krists í skammdegismyrkri vantrúarinnar. Að
einhver mœtti finna, að Jesús er lifandi Drottinn.
Náð, friður og kærleiki Drottins vors Jesú Krists sé með
öllum lesendum blaðsins.
Guðmundur Þ. Agnarsson.