Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 18
DR. 0. HALLESBY PRÓFESSOR
Jl
veró
Dr. O. Hallesby
Mörgum virðist sá leyndardómur vera auðveld-
ur úrlausnar: Vér eigum auðvitað að biðja til þess
að fá Guð til að veita oss gjöf.
Já, það virðist ofur einfalt.
En örlítil nmhugsun mun sannfæra oss um, að
sú skoðun á bæninni er heiðin, en ekki kristin.
Og svo mikið af heiðingjanum bærist enn með
oss, að oss hættir til að skoða bænina sem meðal
til að gera Guð svo ljúfan og góðan, að hann verði
við bæn vorri. En öll opinberun Guðs sýnir oss,
að þetta er algerður misskilningur: bæði á Guði
og bæninni.
Guð er góður í eðli sínu, frá eilífð til eilífðar,
vecina eiaum vér a cf [iÍia
með öðrum orðum, áður en nokkur maður hafði
tækifæri til að biðja nokkurrar bænar. Ritningin
kennir oss einnig, að Guð er jafn elskuríkur og
góður, hvort sem hann verður við bæn vorri, eða
ekki. Verði hann við bæn vorri, þá er það af kær-
leika. Verði hann ekki við henni, þá er það einnig
af kærleika.
Ennfremur svara aðrir: „Nei, ástæðan til þess
að vér eigum að biðja er auðvitað sú, að vér eig-
um að láta Guð vita um þarfir vorar.“
En þessi ráðning gátunnar fær heldur ekki stað-
izt, þegar um kristna bæn er að ræða. Vér, kristn-
ir menn, höfum, fyrir opinberun Guðs, hlotið full-
vissu um, að Guð þarfnast þess engan veginn, að
vér skýrum fyrir honum þarfir vorar. Þvert á
móti erum vér þess fullviss, að það er GuS einn,
sem skilur til hlítar, hvers vér þörfnumst í hinum
einstöku kringumstæðum, þar sem oss sjálfum
hins vegar skjátlast sífellt, og vér biðjum hann um
hluti, sem yrðu oss til tjóns, ef vér fengjum þá.
ingu þess. Hve mjög þráir hún ekki barnið? Þannig
þráir Drottinn þig, því að hann sér eymd þína.
Hann benti mér einnig á hana, er hann birtist
mér, og bað mig að hjálpa þér eftir leiðsögn sinni.
Þú ert dauðans matur, en getur eignast lífið, þú
átt að velja sjálf(ur). Hvort viltu velja? Spurn-
ingin er aðeins: „Viltu?“ — ekki: „Geturðu?“ eða
annað þess háttar, því að þú getur, ef þú aðeins
vilt. Hagar fékk vatn frá Drottni og gaf barninu
að drekka og það lifði.
„Við höfum fundið vatn“. Komdu og drekktu af
því, og þú munt eiga lífið fram undan. Þú þarft
ekki að borga svo mikið sem einn eyri, Jesús hefur
borgað fyrir þig. Ekki með gulli eða silfri, heldur
með dýrmætu blóði sínu. Hann, Jesús Kristur,
getur frelsað þig til fulls, ef þú gengur fram fyrir
hann, því að hann lifir til þess aS bi'Öja fyrir þér.
Beygðu holdsins og andans kné frammi fyrir
Drottni, því að þú hlýtur að sjá það, er þú lítur
náð Drottins, að þú ert aðeins maður af moldu
kominn, og enginn getur gefið þér líf, nema Jesús.
Komdu til frelsarans, dragðu það ekki lengur.
I orði sínu vísar hann þér veginn. Hlustaðu eftir
raustu hans, er hann kallar á þig og segir: Komdu,
og vertu svo hygginn að hlýða. Það er ekki
erfitt að trúa, því að Jesús er með þér, þú lifir
aðeins í honum.
Að trúa er að leiða frelsarann þétt við hönd, og
láta hans trúfasta anda bera þig himins að strönd.
16
KRISTILEGT SKÓLABLAÐ