Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 28
1 Vatnaskógi
FRÁ STARFI K.S.S.
»
/ VindáshlíS
A
Við stöndum nú fyrir utan skálann og virðum fyrir okkur hvernig frítímanum er
varið þessa stundina. Nokkrir eru að búa til snjókerlingu, aðrir eru í snjókasti á flötinni
rétt hjá skálanum. Inni í skála er verið að tefla eða í tennis, spila Lúdó og fleiri spil.
Nokkrir hafa safnazt saman í kringum orgelið og eru að syngja. Þeir, sem hafa með sér gítar,
spila undir. Þannig liður timinn óðfluga. Við vitum ekki fyrr en komið er kvöld.
Um kvöldið safnast allir saman við. arineldinn til kvöldvöku. Það er samfelld dagskrá
og komið víða við.
Föstudagurinn langi er alltaf með sérstökum hátíðarblæ. Allir reyna að snyrta sig eftir
beztu getu. Fyrir framan skálann blaktir fáninn í hálfa stöng. Kl. 2 er blásið til guðsþjónustu
í borðsalnum. Það hvílir heilög alvara yfir hópnum. Við syngjum: Ó, höfuð dreyra drifið.
Ungur piltur les úr Passíusálmunum:
Svoddan aðgættu, sála mín,
sonur Guðs hrópar nú til þín,
hvað þér til frelsis þéna kann,
það er fullkomnað, segir hann.
Enn einu sinni heyrum við þessa gömlu hrífandi sögu:
En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og
vor harmkvæli, er hann á sig lagði. (Jes. 53, 4).
Þessi alvarlegu orð grópast djúpt í hugann. Það er ekki
hægt að ganga út og gleyma:
Hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á hon-
um, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir. (Jes. 53, 5).
Og við syngjum:
Vist ertu, Jesú, kóngur klár,
kóngur dýrðar um eilíf ár.
Um kvöldið er svo kvöldvaka, er þá orðið gefið laust.
Segja þá margir frá reynslu sinni í samfélagi við Guð.
Klukkan langt gengin í tólf er kvöldversið sungið:
Ó, vef mig vængjum þínum
til verndar, Jesú, hér. —
Hópurinn tínist út úr salnum. Sumir fara beint í hátt-
inn, aðrir leita einverunnar úti í skógi eða fá kunningja
smn til að koma í göngutúr. Það er margt, sem ræða þarf,
og um margt að hugsa eftir slíkt kvöld. Allmargir hverfa
inn í kapelluna, þeir þurfa að tala við Guð.
Aðalfundur Kristilegra skólasamtaka (K.S.S.) var haldinn að þessu sinni ll.október
1958. Á þessum fundi var kosið í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár.
Eftirtaldir skólanemendur hlutu kosningu:
Þórir Guðbergsson, Kennaraskóla Islands, formaður,
Hilmar E. Guðjónsson, Verzlunarskóla Islands, ritari,
Guðmundur Þ. Agnarsson, Verzlunarskóla Islands, gjaldkeri,
Helgi Hróbjartsson, Handíða- og myndlistarskólanum, meðstjórnandi,
Stína Gisladóttir, Menntaskólanum í Reykjavík, meðstjórnandi.
Fulltrúi Kristilegs stúdentafélags í stjórninni er Benedikt Arnkelsson, cand. theol.
Starfið í vetur hefur gengið mjög vel. Fundir hafa verið ágætlega sóttir, að meðaltali
60—70 fundargestir. Auk venjulegra funda var haldinn útbreiðslufundur, jólafundur og árs-
hátíð, sem allt var mjög fjölsótt, rúmlega 100 fundargestir.
Efni fundanna er reynt að hafa þannig, að sem flestir geti haft ánægju ag blessun af.
Markmið K.S.S. er að benda framhaldsskólanemendum á Jesúm Krist sem frelsara mann-
anna frá glötun. Aðalatriðið í öllu starfi K.S.S. er Jesús Kristur. Margir nýir félagsmenn
hafa bætzt í hópinn, og er það merki þess, að starfið er í hendi Guðs.
Einn veigamesti þáttur félagsins eru skólamótin, sem haldin eru. Fyrsta skólamótið
var haldið í Kaldárseli 6.—7. maí 1944. Síðan hafa þau verið haldin einu sinni til tvisvar
á ári, þangað til í fyrra, þá voru þau þrjú: I Vatnaskógi
um páskana, ölver í júní og Vindáshlíð í september.
í Vatnaskógi.
Allan veturinn er beðið um blessun Drottins yfir mót-
in á bænarstundum samtakanna (þriðjudögum kl. 8.30 e. h.).
Á mótunum eru það ungar raddir, sem tala. Það eru yfir-
leitt meðlimir félagsins, sem koma fram til að benda á þá
lifshamingju og þann lífsgrundvöll, sem þeir hafa fundið
í Drottni, Jesú Kristi. Þetta er tilgangur þessara móta. Það
er ekki aðeins til að njóta útiverunnar eftir langa innisetu
yfir bókum, að boðað er til þeirra. Nei, aðaltilgangurinn
er að hugleiða í kyrrð, hvort boðskapur föstudagsins langa
og páskanna eigi nokkurt erindi til islenzkrar æsku í dag.
-K -X -K
Nú fór illa í jakahlaupinu.
t snjókasti
26
KRISTILEGT SKÖLABLAÐ
KRISTILEGT SKÖLABLAÐ
27