Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 31
Ég fæ nú ekki séð neitt heimskulegt við það,
að ljósið sé komið til sögunnar á undan sólinni.
Ljósið er ekki bundið við sólina eina. Ljós verður
til, þótt sortni sól og máni og vetrarbrautir farist.
— En hvernig gátu jurtir sprottið á jörðinni, áður
en sólin kom? Ég held ekki, að skilja beri sköp-
unarsöguna þannig, smbr. það, sem áður er sagt.
En þróunarkenningin, rekst hún þá ekki á sköp-
unarsöguna? Nei, sköpunarsagan segir ekki, að
engin breyting hafi orðið á tegundunum. Tökum
t. d. Adam. Var hann hvítur? Þess er ekki getið.
En Biblían þekkir einnig svarta menn. Litarháttur
manna er með ýmsu móti. Breytingar hafa gerzt.
Biblían segir ekki, að allt sé eins nú og í upphafi.
Hún fer ekki út í allt, en lætur nægja stóru drætt-
ina.
Ég hef reynt að gera grein fyrir því, að Biblían
fari ekki í bága við rétta þekkingu. Vera má, að
greinargerð mín sé slæm, en þá ber að hafa það
heldur, er sannara reynist. Óhræddur er ég um
Biblíuna. En vísindin, þekking mannanna, hafa
tekið margs konar breytingum. Jafnvel Aristó-
teles skjátlaðist.
Heimsmynd Biblíunnar er ekki kenning, held-
ur eðlilegur hlutur: heimurinn séður frá jörðinni
án vísindalegra rannsókna. Sama gerum vér, þeg-
ar vér tölum um sólarupprás og sólsetur, t. d. En
hvernig lízt þér á þessa mynd, sem brugðið er
upp í Biblíunni?
„Hann þenur norðrið út yfir auðninni
og lætur jörðina svífa í tómum geimnum.“
Þessi lýsing Jobsbókar (26, 7) er langtum eldri
heimsmynd nútímans og einnig eldri en djörfustu
heimsmyndir fomaldar.
Gef frið á jörðu, faðir vor,
og fyrirgef oss öllum.
Vér gengið höfum glæpaspor
á glapstig dauðans köllum.
Hvert bam á sök með sér,
hvers sál með ábyrgð fer.
Hver þjóð er sek í synd.
Hver sök er neyðarlind.
Því fram í bæn vér föllum.
Ó, virztu að opna augu vor,
að orsök táls vér sjáum,
og leið oss inn á lífsins spor,
að ljúfum friði náum.
Gef hjörtum helgan frið
og himneskt dýrðar mið.
Gef lýðum líkn og náð
og lífsins hjálparráð.
Þá frið vér höndlað fáum.
Þitt helgist nafn um lög og láð,
þér lúti sérhvert hjarta.
Nú komi skjótt þitt ríki og ráð,
er reisi framtíð bjarta.
Gef dróttum daglegt brauð.
Oss drag úr syndanauð
og freisting frá oss snú
og frelsa lýð þinn nú.
1 dýrð munt, Drottinn, skarta.
M. R
*
o,u roóiivii
Heyrið boðskap himinsala.
Heyrið, börnin jarðardala.
Krossins undraorð.
Heyrið liðnar aldir óma,
aldnar tímans raddir hljóma,
Krossins undraorð.
Hlustið eftir hjartans máli.
Hverfið burt frá tímans prjáli.
Krossins ymur orð.
Innsta þráin er að finna,
enga sál til leitar ginna.
Krossins ymur orð.
Hér er svar við hjartans máli.
Hér er lausn frá skuggans táli.
Krossins undraorð.
Innsta þráin frið skal finna,
frelsi Guðs mun engan ginna.
. Krossins undraorð.
M. R.
KRISTILEGT SKÓLABLAÐ
29