Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 34
samsvörun veruleikans. Ekki eitt hár, felling eða
hrukka er dregin af nákvæmni 1 jósmynd arinnar.
Og samt er ekki að efa, að mynd, sem er máluð
af listamanni, er miklu auðugri og sannari en ljós-
mynd getur nokkru sinni orðið. Listamaðurinn
túlkar persónueinkenni og meginatriði. Hann
handsamar í einni mynd það, sem kemur fram
við ólíkustu tækifæri eða hylst bak við hversdags-
svip mannsins. Þannig gerir listamaður margfalt
raunhæfari, ljósari og sannari mynd en mögulegt
er með hinni fullkomnustu ljósmyndun.
Sama máli gegnir raunar um frásögn í orðum.
Sá, sem sögu segir, er lika listamaður, þótt hann
noti orð en ekki liti. Þegar lýst er einhverju, sem
hefur borið við, hentar ekki altént að tína allt til.
Það verður að velja og hafna. 1 því er einmitt listin
fólgin að ná því, sem máli skiptir, taka megin-
atriði og einkennisdrætti og skipa efninu þannig,
að úr verði mynd, sem sé bæði lifandi og sönn.
ef það, sem fram kemur, er megindrættir og sér-
kennisatriði. Sá, sem segir frá, er líka málari,
ekki ljósmyndari. Ljósmyndun söguefnis er ekki
möguleg.
Nú efast enginn trúaður maður um, að Biblían
flytji þann sannasta vitnisburð, sem fluttur verð-
ur á mannlegu máli, um innsta, dýpsta og sannasta
gildi Krists, lífs hans og verks. Þessa mynd þarf
ekki að yfirmála, endurmála, skýra og hreinsa.
Það þarf ekki heldur að brjóta heilann um, hvort
það, sem frá er sagt, hafi við borið nákvæmlega
í þeirri röð, sem frá er greint, hvort þessi eða hinn
hafi í raun og veru verið viðstaddur þennan eða
annan viðburðinn, hvort eitthvað eigi að skiljast
sem greinargerð raunverulegs söguatburðar eða
sem dæmisaga eða skýring einhverra sérstakra
sanninda. Myndin getur verið bæði stílfærð og
gerð einfaldari, einstök atriði geta verið flutt til.
Kirkjan hefur á öllum tímum vitað þetta. En láti
maður þetta allt samverka og horfi á heildar-
myndina, þá flytur Biblían þann vitnisburð, sem
er sú sannasta og ábyggilegasta mynd af Kristi,
sem hægt er að gefa með orðum og hugtökum
manna. Hitt er annað mál, að þessi mynd felur
ekki i sér allan sannleikann. Hér á jörð er þekking
vor á Guði í molum. Orð vor og hugtök hrökkva
ekki til þess að lýsa hinum eilífa og þríeina. En
sannari mynd en þá, sem Biblían geymir, getum
vér aldrei fengið, og hún nægir oss til hjálpræðis.
Það, sem er fram yfir, fáum vér að vita fyrst, þegar
„hið fullkomna kemur“. Hér á jörð er enginn
annar kristindómur til en kristindómur Biblíunn-
ar, enginn önnur þekking á Guði en sú, sem Hann,
sem „hallast að brjósti föðurins", hefur veitt oss
og enginn annar vegur til hans en hjálpræðisboð-
skapur Biblíunnar.
ViSförli, 1. árg. 3. hefti.
VAKNA ÞÚ.,. Framh. af bls. 29:
Guð, sem knýr okkur til bænar, en það getur
hann ekki nema við séum bljúg og eftirlát, og vilj-
ug til þess að láta hann vita um það, sem okkur
liggur á hjarta. Guð er í okkur, þegar við tölum
við hann, hann er hreyfiaflið, hann er það, sem
gefur heiminum líf. Guð er líka vegurinn og brúin
yfir síkið, sem við svo oft föllum í. Og Guð er tak-
markið, takmarkið, sem við eigum, með einlægri
trú og hreinum hjörtum, að keppa að. Hann á að
vera okkar eina von, bjargið, sem aldrei fellur.
Og hann á að vera okkar eina hjálp í nauðum,
traust og athvarf okkar í hættum og neyð. Enginn
annar en hann getur bjargað okkur úr landi þján-
inganna og erfiðleikanna inn í hina eilífu dýrð. Og
nú býður hann þér að fylgja sér: „Sá, sem heyrir
mitt orð og trúir þeim, sem sendi mig, hefir eilíft
líf og kemur ekki til dóms, heldur hefur hann
stigið yfir frá dauðanum til lífsins."
„Vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum,
þá mun Kristur lýsa þér“. Hann mun lýsa þér
gegnum alla erfiðleikana og vera stoð þín og stytta,
hann mun stýra þér í straumi lifsins með sterkri
hendi sinni.
Þér trúin ein mun hjálpa hér,
já, hljóðlát bæn í trú,
því andlitinu, augunum
mót ásýnd Herrans snú.
0, opna hjartað hljótt og lágt,
og honum taktu nú.
Hér Jesús einn vort athvarf er,
og einn oss hjálpar hann
í hverri freisting, sorg og synd,
er sjónum mæta kann.
Hann heyrir bænir, andvörp, orð,
ó, ákall frelsarann.
32
KRISTILEGT SKÖLABLAÐ