Alþýðublaðið - 11.02.1926, Síða 1

Alþýðublaðið - 11.02.1926, Síða 1
1926. Fimtudaginn 11. febrúar. 36. tölublað. Verðlækkunarsalan heldir áfrai finðm. B.Vikar,Langav. 21. Sími65 Kaupdeilan á Isafirði. Verkamenn standa fast saman. Vinna stöðvuð. (Eftir símtali í gær, rétt eftir að blaðið var afgreitt til prentunar.) Eitt af skilyröum verkamanna fyrir því, að vinnu yrði lialdið áfram við „Mjölni", var, að at- vinnurekendur áttu að svara fyrir kl. 12 á hádegi í fyrra dag, hvort þeir vildu semja við fulltrúa verkamanna. Svar kom ekki, qg var vintia stöðvuð aftur í fyrra dag. f gærmorgun var auglýst eftir verkamönnum í vinnu hjá Jóhanni Eyfirðingi & Co. Ætluðu þeir að greiða karlmönnum 1 kr. en konum 60 aura um kl.st., en Ólafur Benjamínsson í Reykjavík 20 aura uppbót á kl.st. Til vinn- unnar fengust 6 menn^einn verk- stjóri hjá Jóhanni Þorsteinssyni, Ástmar Benediktsson, pakkhús- maður sömu verzlunar, tveir sveitamenn og tveir daglauna- menn. Lögregiustjóri mætti á vett- vangi með einn Norðmann til aðstoðar. Var byrjað á vinnunni, en hætti jafnskjótt eftir að fs- lendingur einn var búinn að leggja Norðmanninn flatan á milli tveggja grútartunna. Kröf- ur verkamanna eru fyrst og fremst þær, að atvinnurekendur geri samninga við fulltrúa verka- manna um kaupgjaldið, en til þess hafa þeir ekki fengist áður. Skipið, sem átti að afgreiða, var farið án afgreiðslu, þegar fréttin var símuð hingað. Flest- um þar vestra blöskrar ókurteisi atvinnurekendanna og eru alveg á bandi verkamanna. — Sama dóm hljóta allir sanngjarnir menn og óvilhallir að leggja á þetta mál. Þetta er ekki í fyrsta sinni, sem ísfirzk alþýða stendur ein- huga samán, Samtökin sigra, þar sem fjöldinn er samlmga og krefst réttar síns með dáð og dugn- aði. Munum það! Eflensl simskeyti. Khöfn, FB., 10. febr. Þjóðverjar og hótun Mussolinis. Frá Berlín er símað, að Strese- mann hafi haldið rnikla ræðu í gær um framkomu Mussolinis gagnvart þýzkum íbúum í Suður- Tyrol. Las hann upp yfirlýsingar ftalskra stjórnaryfirvalda, þar sem því var lofað, að láta íbúana óá- reitta og lofa þeirn að halda siðum sínum. Stresemann benti á, að Mussolini hefði brofið öll þessi loforð, og hótun Mussolinis urn að flytja landamærin lengra norður á bóginn væri í rauninni ögnun um styrjöld gagnvart Aust- urríki og Þýzkalandi. Khöfn, FB., 11. febr. Æsingar í ungverska þinginu út af seðlafölsunarmálinu. Frá Budapest er símað, að um- rÉeðurnar um fölsunarmálið hafi valdið geysilegum æsingum í þinginu. Þingmenn hentu blek- byttum, borðum og stólum í höf- uðin hver á öðrum. Margir særð- ust. íllviðri í norðursjónum. Frá Björgvin er símað, að af- skapleg illviðri hafi geysað yfir Norðursjóinn. Fjöldi skipa hefir leitað hafnar í Björgvin og í aðr- ar hafnir í Vestur-Norcgi. Mörg skipanna eru stórskemd. Kirkjnhljómleibar í Frikirkjunni á föstudaginn kl. 7 Vs. Stjórnandi: Páll ísólfsson. Blandaður kór (40 manns) syngur með undirleik 10 manna blástur- sveitar (úr Lúðrasveit Reykjavíkur) og 20 manna hljómsveitar (strok- og blástur-hljóðfæra). FlsföiH: Emil Thoroödseii. Einsongur: Óskar Norðmann. EFNI: Bach, konzert fyrir tvo flygla. Brahms: Nú látum oss lik- amann grafa. Sigf. Einarsson: Hátt ég kalla. Árni Thorsteinsson: Rósin. Brahms: Hve fagrir eru þeir bústaðir. Aðgöngumiðar fást i bókaverzlun Isafoldar og Eymundssonar, hjá Katrinu Viðar og i Hljöðfærahúsinu og kosta 2 krönur. Kirkjuhljómleikar Páls ísólfssonar í fríkirkjunni í gærkvelrli voru afarfjölsóttir og tók- ust ágætlega. Sérstaklega þótti mönnum mikið koma til lofsöngsins eftir Brahms: „Hve fagrir eru þínir bústaðir'1 og Bach-konsertsins, er þeir Páll og Emil Thoroddsen léku saman af mikilli snild. Línubáturinn Golan kom af veiðumi í gærmorgun með um 40 000 punci fiskjar. f morgun kom Fróði með 60 þús. pund og Freyja með 40 þús. pund. ísfiskssala. I fyrra dag seldu afla sinn í Eng- landi: Hilmir fyrir 972 sterlingspund og Tryggvi gamli fyrir 1446 strpd.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.