Alþýðublaðið - 12.02.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 12.02.1926, Side 1
1926. Föstudaginn 12. febrúar. 37. tölublað. Erlend simskeyti. Khöfn, FB., 11. febr. íbúatalan í Stokkhólmi. Frá Stokkhólmi er símaÖ: Ibua- tala borgarinnar hefir aukist um 4000 á síðasta ári, samtals 443 þús. Fæðingar 12,3 af þúsundi og fer stöðugt fækkandi á síðari ár- um. 11,12 prósent dóu. Hroki Mussolinis. Frá Rómaborg er símað, að Mussolini hafi svarað Stresemann í hrokalegum tóni. Kveðst hann mundu standa við alt, er hann hafi sagt og meira til. Khöfn, FB., 12. febr. Upptökubeiðni Þýzkalands i Þjóðabandalagið afhent. Frá Berlín er símað, að upp- tökubeiðni Þýzkalands í Þjóða- bandalagið hafi verið afhent í Genf. Járnbrautarslys. Frá Berlín er símað, að járn- brautarlest hafi ekið inn í jarð- göng, þar sem 75 verkamenn störfuðu að viðgerð á teinunum. Tíu þeirra biðu bana og 40 særð- ust mjög illa. Morðingjar sýknaðir. „Við gerum það til pess að skjóta verkamönnum skelk i bringu.“ Alls konar sj ó- ogbruna- vátryggingar. Símar 542, 309 (framkvæmdarstjórn) og 254 (brunatryggingar). — Símnefni: Insurance. Vátryggíð hjá' þessu alinnlenda félagi! Þá fer vel um hag yðai'. Seljum i heildsölu: HaSramjol i pökkusn, ágætis tegund. Mjólkurfélag Keykjavikur. Reynið nýju Waverley- slgaretturnarj (með og án korkmunnstykkis. SfflS* Vandfundnar betri. Einkasalar á íslandi. 0 Tóbaksverjlun Islands h.f. Hreins-' stangasápa er seld í pökkum og einstökum stykkjum hjá öllum kaupmönn- um. Engin alveg eins góð. Veggmyndir, fallegar og ódýrar, Freyjugötu 11. Innrömmun á sama stað. Nýlega sýknaði réttur í Miin- chen 2 hermenn, sem voru d hinni alræmdu „frjálsu herdeild“ von Lutzows. Höfðu þeir skotið niður 12 bavaríska verkamenn, er voru póiitiskir fangar þeirra. Fóru þeir með þá í húsagarð ölverksmiðju einnar og skutu þá þar í augsýn allra vinnumanna verksmiðjunnar. Er forstjóri ölgerðarinnar mælt- ist til þess, að hermennirnir fremdu þessi hryðjuverk sín ann- ars staðar, þá svöruðu þeir: Vér gerum það hér til þess að skjóta verkamönnum skelk í bringu. Rétturinn sýknaði hermenn þesa, enda þótt hinn opinberi á- kærandi heimtaði, að þeir yrðu dæmdir í 10 ára hegningarvinnu og það sannaðist í réttinum, að glæpurinn var framinn gegn skip- unum yfirboðara hermannanna og án dóms og laga. Holdsveiki i Sviþjóð. Fregnir frá Stokkhólmi herma, að síðast liðið ár hafi orðið vart 5 nýrra holdsveikistilfella.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.