Bautasteinn - 01.04.2002, Qupperneq 16

Bautasteinn - 01.04.2002, Qupperneq 16
16 Norræn ráðstefna um málefni kirkjugarða var haldin í Åbo í Finnlandi dagana 6. og 7. septem- ber sl. Þangað komu um 400 manns, stjórnendur kirkjugarða, garðyrkju- fræðingar, landslags- arkitektar og fram- leiðendur garðyrkju- áhalda sem notuð eru við hirðingu kirkjugarða. Góð þátttaka var frá Ís- landi, en fimm fulltrúar sóttu fundinn, ásamt mökum. Framlag Íslands var erindi sem Guðmundur Rafn Sigurðsson flutti og sýndi hann myndir frá starfi framkvæmdastjóra skipu- lagsnefndar kirkjugarða. Jóhannes Pálmason, formaður KGRP, flutti ávarp og bauð fundarmenn velkomna til Íslands að fjórum árum liðnum og síðan var sýnd kynningarmynd frá Íslandi. Íslensku fulltrúarnir flugu frá Stokkhólmi þann 11. september og fengu fréttir af hryðjuverkunum í Banda- ríkjunum þegar vélin lenti á Keflavíkurflugvelli. Þá skömmu áður hafði forstjóri KGRP setið frammi í flug- stjórnarklefa og rabbað þar við gamlan skólabróður. Að sögn sérfræðinga er þetta líklega síðasta heimsókn farþega í flugstjórnarklefa í heiminum. Málefni kirkjugarða voru rædd og menn skiptust á skoðunum. Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna og umræður þar, veitir Þórsteinn Ragnarsson, formaður KGSÍ, fyrir þá sem áhuga hafa. Ráðstefna þessi er haldin á fjögurra ára fresti og sú næsta verður haldin á Íslandi árið 2005 og er undirbúningur hennar þegar hafin. Á myndinni eru þeir Íslendingar sem fóru til Åbo. Myndin er tekin í Uppsala í Svíþjóð á leið á ráðstefnuna í Finnlandi. NORRÆN RÁÐSTEFNA UM MÁLEFNI KIRKJUGARÐA Þ. R.

x

Bautasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.