Alþýðublaðið - 15.02.1926, Síða 1

Alþýðublaðið - 15.02.1926, Síða 1
1926. Mánudaginn 15. febrúar. 39. tölublað. Kaupdeilan á ísafirði. (Eftir símtali í gær.) Atvinnurekendur hafa sent til- boð um kr. 1,10 í dagvinnu, 1,30 í eftirvinnu og 1,40 í nætur- og helgidaga-vinnu. Verkamenn hafa sent gagntil- boð um kr. 1,15, 1,40 og 1,60 og enn fremur, að greiðsla vinnu- launa fari fram vikulega og að heimilisfast fólk á fsafirði sitji fyrir vinnu. Olsen (úr firmanu Nathan & Olsen) er milligöngumaður milli verkamðnna og atvinnurekenda. • Fundur í verkamannafélaginu „Baldur" var á laugardaginn. Gengu pá inn 49 nýir félagar. Atvinnurekendur hafa reynt að fá verkamenn úr Bolungavík, Hnifsdal og víðar, en ekki tekist. Önnur tíðindi. Fisktökuskip og saltskip eru væntanleg næstu dagana. Hávarður fsfirðingur hefir aflað vel síðustu dagana. Sviplegt slys. Kona meiðist til bana. í ofviðrinu í fyrra kvöld vildi til sviplegt slys hér í bænum. Það var kl. 6, að Guðbjörg Ingvarsdóttir, ekkja í Bjarnaborg, ætlaði að ganga yfir götuna, en lenti í stormhviðu og hrakti af leið. Kastaðist hún á bifreið, sem hún var komin fram hjá, og fest- ist annar fóturinn milli stýris- ganga og öxuls bifreiðarinnar, og féll konan þá aftur á bak á göt- una, og var fallið mikið. Bifreiðin fór ekki yfir hana, enda var ferð- in hæg, ekið á 2. „gear“, sem svo er kallað, pví að veðrið var mik- ið, en petta var stór kassabifreið og farþegar margir. Var konan jafnskjótt flutt í sjúkrahús, en Tilbftin sængurver, koddaver, svuntur og morgunkjóla fáið þér hvergi ódýrari. REGNKÁPUR frá kr. 16,20. Niðursett verð. Verzlunin Edinborg. Leikfélag Reykjavikur. Gluggai*. Sjónleikur i premur páttum eftir John Galsworthy verð- ur leikinn i kvöld kl. 8 siðd. Að eins þetta eina sinn. Aðgöngumiðar seldir i Iðnó i dag kl. 10 ■— 1 og eftir kl. 2. Simi 12. Simi 12. var dáin um kl. 7, — klukku- stundu eftir að slysið varð. Málið var pegar tekið til rannsóknar, og voru áhorfendur alveg sam- mála um, að bifreiðarstjóranum yrði ekki um kent. Líkið verður nánara rannsakað, — að líkindum í dag. Bifreiðarstjórinn var Sigurjón Pétursson, og var pað Álafoss- bifreiðin stóra, sem hann stýrði. Guðbjörg heitin átti tvær dæt- ur. Er önnúr 16 ára, en hin innan fermingar. Hefir Sigurjón boðið peim að veita peim ásjá sína. iB8n Smára" sm|oB*líkIð, pví sii það es* efnisbetra en alt annað smjörlíld.. Nýjustu fregnir. Til pess að gera sjómönnum og verkamönnum hægara fyrir um kaup á fögrum og- nytsömum hlutum, hefi ég undirritaður á- kveðið að veita peim sérstök kostakjör: Þeir geta fengið hjá mér með vægum afborgunarskil- málum bæði úr, klukkur, sauma- vélar, reiðhjól og annað, er peir girnast. Alt eftir nánara sam- komulagi. Virðingarfyls. Sigurþór Jónsson, Aðalstræti 10. Sigurður Sigurðssom ráðunautur andaðist kl. 1 í gær. Hann var fæddur 1864. Hann varð starfs- maður Búnaðarfélags Suðuramts- ins 1892 og Búnaðarfélags fslands frá stofnun pess 1899 og í mörg ár var hann pingmaður Árnes- inga. Hann var um eitt skeið for- maður verkamannafél. „Dagsbrún- ar“. Aðaláhugamál hans var land- búnaðurinn. Sigurður var drengur góður, og flestum, sem pektu hann, mun hafa verið vel til hans.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.