Alþýðublaðið - 17.02.1926, Síða 1

Alþýðublaðið - 17.02.1926, Síða 1
Gefid út af Alpýðuflokknum 1926. Miðvikudaginn 17. febrúar. 41. tölublað. Kaupdeilan á ísafirði. Samningar gerðir. (Eftir símtali við milligöngu- manninn, Olsen.) Samningar komust á í gær, og er dagkaup karla við út- og upp- skipun við áætlanaskip, vöru- flutningaskip og botnvörpunga kr. 1,15, en 1,10 í annari dagvinnu. Kvöldkaup frá kl. 6—10 er 1,35 við sömu skip, en 1,30 í annari vinnu. Nætur- og helgidaga-kaup 1,70 við sömu skip, en 1,65 í ann- ari vinnu. Dagkaup kvenna er 70 aurar um kl.st. Fiskpvottarkaup er sama og áÖur, 1,50 og 1,25 fyrir hundraðið. Hafa atvinnurekendur þannig gengið að síðustu kröfu verkamanna (sbr. símfréttina í gær). Erlend simskeytl. Khöfn, FB., 13. febr. Þráðlaust firðtal yf ir Atlantshaf. Frá Lundúnum er símað, að á föstudaginn hafi farið fram sam- töl á milli loftskeytastöðvar í bænum Rugby í Englandi og ame- rísku stöðvarinnar á Long Island. Er sagt, að þetta hafi gengið á- gætlega. Upptökubeiðni Þýzkalands i Þjóðabandalagið. Frá Berlín var símað á föstu- dag, að vegna undirróðurs þeirra Þjóðabandalagslima, sem krefjast ótímabundins sætis í ráðinu sam- tímis Þýzkalandi, sé ekki ósenni- legt, að Þýzkaland afturkalli upp- tökubeiðni sína. Frá Genf er símað, að Þjóða- bandalagsráðið hafi ákveðið, að koma saman 8. marz til þess að ræða upptökubeiðni Þýzkalands. Khöfn, FB., 15. febr. Greifafrú bönnuð landganga. Frá Washington er símað, að yfirvöldin hafi bannað brezkri greifafrú landgöngu vegna þess, að hún hafi skilið við mann sinn. Þykir það smánarblettur á sið- ferði hennar. Brezki sendiherrann ætlar að gera tilraun til að miðla málum. Atburðurinn vekur afar- mikla eftirtekt í heimsblöðunum. Egiftum gefið störfé. Frá Cairo er símað, að Rocke- feller yngri hafi gefið egipzku þjóðinni 10 milljónir dollara til byggingar safnhúss og sjóðstofn- unar til þess að kaupa þjóð- mynjar fyrir. Khöfn, FB., 16. febr. 44 stunda vinna á viku. Frá Lundúnum er símað, að þingið í Ástralíu hafi nú í vik- unni samþykt 44 klukkustunda vinnu í öllum atvinnugreinum, íiema lögreglunni. Úlfar nærgöngulir. Frá Stokkhólmi er símað, að vegna vetrarhörku séu úlfar á- kaflegá nærgöngulir víða í porður hluta Svíþjóðar. V er sala-f rið ar samningnum breytt? Frá Berlín er símað, að samn- ingagerðir fari fram meðal Banda- manna um að breyta ákvæðum Versala-friðarsamningsins hvað snertir settar takmarkanir fyrir þjóðverja um stærð og útbúnað loftskipa og flugvéla. Sennilegt er, að Þjóðverjum verði leyft að byggja eftir eigin geðþótta, nema í hernaðarskyni. Riff-menn ökyrrast. Frá Madrid er símað, að Riff- menn séu aftur farnir að gerast órólegir. Þó er talið, að engin ástæða sé til að óttast þá, þar sem fjöldi ættkvísla hefir sagt upp bræðralagi við þá. Störkostlegt námuslys. Frá New-York-borg er símað, að afskapleg sprenging hafi orð- ið í námu i ríkinu Ohio. Sjö hundruð menn voru inniiuktir í námunni. Tókst að bjarga sex hundruðum. Örlög hinna óviss. Khöfn, FB., 17. febr. Þýzkaiand og Þjóðabandalagið. Frá Berlín er símað, að aðal- ritari Þjóðabandalagsins, Eric Drummond, sé komlnn þangað til þess að ræða við Stresémann um upptöku Þýzkalands í Þjóðabanda- lagið og afstöðu framkvæmdar- ráðsins gagnvart beiðnum ýmissa þjóða í bandalaginu um, að þau fái sæti í ráðinu, ef Þjóðverjar fái það. Kaupdeilan í Hafnarfirði Verkakvennafélagið „Framtíðin" í Hafnarfirði hélt fund í Hjálp- ræðishershúsinu þar í fyrra kvöld kl. 8V2. Formaður félagsins skýrði frá kaupdeilunni. Samþykt var, að kvenfólk tæki ekki upp vinnú fyr- ir minna kaup en 85 aura um kl.st. Húsið var troðfult. Auk ræðukvenna í Hafnarfirði töluðu Davíð Kristjánsson bæjarfulltrúi þar og frú Karólína Siemsen og Björn Blöndal Jónsson héðan úr Reykjavík. Voru konur mjög á- kveðnar og líklegar til að halda fast á málum sínum. Hæsta tilboð atvinnurekenda er 80 aurar í dagvinnu. Laun Mnssolmis. Nýlega var í Bandaríkjaþing- inu minst á fjárhagsástæður Mussolinis. Varð þar upplýst, að Mussolini hefir 70 þús. dollara eða um 350 þús. krónur í árslaun, sem menn vita um. Góður skiid- ingur fyrir ekki göfugra starf.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.