Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 39

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 39
Guðmundur G. Þórarinsson: Heimsmeistara- einvígið 1972 Vangaveltur Nú eru liðin rúm 12 ár frá því að heimsmeistareinvígið í skák fór fram í Reykjavík 1972 og mikið vatn runn- ið til sjávar. Þegar Þráinn Guðmundsson, varaforseti Skáksambandsins, kom að máli við mig og bað mig að skrifa dálitla grein um einvígið á þessu 60 ára afmælisári S.í. fann ég glöggt hve langur þessi tími er orðinn. Myrkur gleymskunnar færist óðum yfir atvik og atburði, fjarlægðin verður meiri og meiri og því æ erfið- ara að draga fram ýmis tilvik, sem hvergi hafa komið fram, en hafa sitt gildi og jafnvel höfðu áhrif á gang mála á sínum tíma. Margir munu segja að meira hafi verið rætt og ritað um Heimsmeist- araeinvígið 1972 en flesta aðra skák- viðburði. Atburður þessi varðveitist því betur en flestir aðrir. Um einvígið voru ritaðar margar bækur í mörg- um löndum auk fjölmargra greina, sem víða hafa birst. Þetta má allt til sanns vegar færa. Hins vegar finnst okkur mörgum, sem upplifðum þetta einvígi, tókum beinan þátt í atburðunum og tókumst á við vandamálin, að flestar þessar frá- sagnir séu aðeins yfirborðið, aðeins reykurinn af réttunum. Ekki þarf það nú endilega að vera rétt, því sínum augum lítur hver á silfrið, en hitt væri áreiðanlega ávinningur, ef þeir, sem beinlínis tengdust einvíginu, settust niður og rituðu á blað blað frásagnir af atvik- um, sem þeim lifa í minni. Nú er rétt að fram komi, að þeir Guðlaugur Guðmundsson og Þráinn Guðmundsson hafa dálítið skrifað um einvígið en of lítið. Reyndar batt ég alltaf miklar vonir við, að Guðlaugur mundi skrifa meira. Vafalaust er hann ritfærastur okkar, sem sátum í stjórn Skák- sambandsins á þessum tíma. Hann er raunar þjóðkunnur af bókum sín- um, sem hann hefur ritað á þeim fáu stundum, sem hann hefur getað slitið lausar frá annasömu starfi á öðrum vettvangi. Guðlaugur hefir því bæði hæfnina og þekkingu á málefninu til þess að geta ritað um einvígið. Þráinn hefur svipsinnis drepið niður penna en of sjáldan. Þráinn hefur nú unnið meira að málefnum skáklistarinnar á íslandi en flestir aðrir og þekkir sögu einvígisins mjög vel. Því gæti hann margt um þetta vel ritað. En Þráinn gæti líka haft frum- kvæði að því að safna í útgáfu Skák- sambandsins greinum um einvígið frá þeim ýmsu aðilum sem að einvíg- inu komu. Mér dettur strax í hug að nefna nokkur nöfn. Væri t.d. ekki ávinn- ingur að fá menn eins og Ásgeir Frið- jónsson, Hilmar Viggósson og Guð- jón Stefánsson til að skrifa nokkur orð? Allir þessir menn gjörþekktu gang mála. Þessir menn voru meðal þeirra, sem mestan hita og þunga báru í dagsins önn. Hvað með Guðmund Arnlaugs- son? Mig minnir nú reyndar, að hann yrði að gangast undir þau skilyrði þegar hann tók að sér aðstoðardóm- arastarfið að skrifa ekki um einvígið. Hvað með Friðrik Ólafsson, Jó- hann Þóri Jónsson, Baldur Möller, Hómstein Steingrímsson, Feystein Jóhannsson, Sæmund Pálsson, Kristínu Benediktsson, Gísla Gests- Menntamálaráðherra Magnús Torfi Ólafsson setur heimsmeistaraeinvígið í Þjóðleikhúsinu að öðrum keppandanum R. Fischer fjarverandi. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.