Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Síða 49

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Síða 49
Einar S. Einarsson: Aprílgabbið Árið 1977 var viðburðaríkt í íslensku skáklífi. Alla vega var í nógu að snúast hjá svokallaðri skákforystu. Lengi framan af ári stóð yfir áskorendaeinvígi þeirra Boris Spasskys og Vlastimil Horts með alls kyns uppákomum. Um haustið eignuðust íslendingar sinn fyrsta heimsm- eistara er Jón Loftur Árnason vann frækinn sigur á keppinautum sínum á heimsmeistaramóti sveina (17 ára og yngri) suður í Cagnes Sur Mer í Frakklandi. í öðru sæti varð Gary nokkur Kasparov. Þá var ráðist í kaup á nýjum aðalstöðvum fyrir Skáksambandið að Laugavegi 71 og Friðrik Ólafsson tilkynnti um framboð sitt til for- setaembættis í FIDE. Áskorendaeinvíginu voru gerð mikil og góð skil í fjöl- miðlum enda hið sögulegasta. Framlengja þurfti það tví- vegis, þar sem keppendur voru jafnir að vinningum, bæði að loknum 12 og 14 skákum. Um tíma mátti segja að hvorugum teflenda vegnaði betur, heldur báðum ver, því baráttan var heldur bragðdauf og svo var eins og þeir kepptust við að leggjast í rúmið. Mátti varla á milli sjá hvor var hinum drenglundaðri keppnismaður, einkan- lega utan skákborðsins. Meðan á frestun einvígisins stóð, þann 1. apríl, birtist stór forsíðufrétt í DAGBLAÐINU, j.ess efnis að þá síðar um daginn byði stórmeistarinn Hort 400—500 íslending- um til fjölteflis í Laugardalshöll. Hygðist kappinn freista þess að setja þar fjórfalt heimsmet á sviði skáklist- arinnar. Tefla við fleiri í einu, fleiri alls, á styttri tíma og með hærra vinningshlutfall en áður hafði þekkst. Fylgdi sögunni að ýmsir fyrirmenn myndu tefla í fyrsta hópi. Skáksambandið var sagt standa fyrir þessu til að hressa upp á rýra sjóði sína vegna frestunar einvígisins. Þá myndi þessi heimsmetstilraun auka enn á hróður íslands í skákheiminum. Birt var mynd af kappanum í Loftleiða- sundlauginni þar sem hann kvað sig „vel undir átökin búinn“. Allt var þetta mjög trúverðugt, enda hlupu margir skákunnendur apríl daginn þann. Þegar Hort voru sögð þessi tíðindi þótti honum þetta hin athyglisverðasta hugmynd og bað menn trúa því að þetta færi hann létt með ef sá gállinn væri á honum. Nú skipast málin svo að Vlastimil Hort tapar 15. skák- inni í einvíginu mjög slysalega, fellur á tíma með gjör- unna stöðu. Áður hafði hann tapað 3. skákinni sömu- leiðis á tíma í jafnteflisstöðu. Sextánda skákin varð svo jafntefli og þar með hafði Spassky unnið einvígið, eftir um tveggja mánaða viðureign. Að vonum fékk þetta mikið á Hort, en „skák er eins og lífið og lífið eins og skák“, trúiði því, voru hans orð. Nú var um að gera að fá sér viðfangsefni við hæfi til að dreifa huganum og til að sýna hvers hann væri megn- ugur. Hvernig væri að slá nokkur heimsmet í fjöltefli og hvar væri betri aðstaða til þess en á íslandi? Þar myndi vart skorta þátttakendur. Gildandi heimsmet á þessu sviði átti Svíinn Gideon Stahlberg, sem 1940 tefldi við 400 manns á 36 klst. í Buenos Aires og hlaut 379 vinninga eða 94,75%. Heims- metið í því að tefla við flesta samtímis átti Bandaríkja- maðurinn Judy Acres, sem 21. apríl 1973 tefldi við 179 skákmenn í einu í Portland í Oregon. Met þessi voru skráð í heimsmetabók Guinnes. í framhaldi af þessu var haft samband við Jónas rit- stjóra Kristjánsson og spurt hvort þeir Dagblaðsmenn vildu ekki leggja í púkkið, enda væri þetta ansi góð hug- mynd, sem þeir hefðu „fundið upp“ sjálfir. Er skemmst frá að segja að málið komst þegar á fullan skrið og tveim dögum síðar mátti lesa á forsiðu blaðsins frétt undir risafyrirsögn „Setjum heimsmet með Hort! Öllum manngangsmönnum boðið upp á ókeypis tafl við Hort. Stórmeistarinn Vlastimil Hort reynir að hnekkja heimsmeti í fjöltefli í Valhúsaskólanum á Seltjarnarnesi. Stefnt er að þátttöku 500 manns í þessum heimsviðburði, sem fram fer á vegum Skáksambands íslands. Fjölteflið hefst kl. 9 í fyrramálið, laugardag. Dagblaðið greiðir þátttökugjald fyrir alla þá sem taka þátt í fjölteflinu“ Var nú tekið til óspilltra málanna við að skipuleggja Maraþon-fjölteflið og lögðu þar auk Dagblaðsmann- anna nemendur og kennarar Valhúsaskóla hönd á plóg, að ógleymdum Ólafi H. Óskarssyni, skólastjóra. Að- stæður voru hinar ákjósanlegustu, niðurgrafið svið sem í hringleikahúsi þar sem hægt var að koma fyrir 50 borð- um í tvöföldum hring. Auk þess var komið fyrir sam- felldri borðaröð út um alla ganga og inn í nokkrar skóla- 49

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.