V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 4

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 4
SAMSTARF GETUR GERT SMÁÞJÓÐ AÐ STÓRVELDI Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er sölufélag 70 hraðfrystihúsa á íslandi. Sameinað afl hefur gert kleift að byggja upp iðngrein sem talin er einstök, ekki einungis hérlendis heldur á heimsmælikvarða. Framleiðni íslenska hraðfrystiiðnaðarins er mjög mikil og stöðugt er unnið að því að auka hana. í öllum frystihúsum innan vébanda SH fer fram þrotlaust starf sérfræðinga, sem vinna að því að tryggja hámarksgæði framleiðsluvörunnar þannig að halda megi markaðsstöðu erlendis. íslenskur fiskur er seldur á hæsta verði á Bandaríkjamarkaði og víðar. Erlendir keppi- nautar taka íslendinga sér til fyrirmyndar og líkja eftir aðferðum og skipulagi við vöru- vöndun og eftirlit. Einungis með því að halda vöku sinni og vera alltaf á undan getur íslenski hraðfrysti- iðnaðurinn tryggt stöðuna á markaðnum erlendis og um leið tryggt þjóðinni möguleika á góðri lífsafkomu í landinu. Virkt gæðaeftirlit í öllum frystihúsum landsins er hagsmunamál hvers einasta íslendings og einungis með sameinuðu átaki getur þjóðin tryggt stöðu sína sem framleiðandi í þeirri samkeppni sem nú ríkir. Sölumiðstöð Hraðf ry sti húsanna

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.