V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 19

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 19
Á vindasamasta stað veraldar kemur líka fyrir logn og bliða. Hér sjáum við starfsfólk Sjúkrahússins notfæra sér veðurbliðuna. húsaþökum og geymt. Væru lang- varandi þurrkar þurfti jafnvel aö sækja vatn til meginlandsins. En 1968 var lögö vatnsleiðsla úr Land- eyjum út f Heimaey og breyttist ástandið þá í einni svipan til batn- aðar. Þessi vatnslögn stóðst aö mestu ágang hraunstraumsins frá gosinu, aöeins þurfti aö bæta bút í hana á einum stað. Eldgosið 1973 er örlagaríkasti at- buröurinn í sögu Eyjamanna, enda liggur viö aö þeir miöi tímatal sitt viö þaö. Gosið hrakti nær alla íbua á brott um stundarsakir, og var allsendis óvíst um endurkomu, um tíma leit jafnvel út fyrir aö byggöasögu væri lokið í Heimaey. En allt fór þó betur en á horfðist, meira aö segja miklu betur, og eru Eyjarnar nú aö sumu leyti betur fallnar til búsetu en fyrir gos. Má þar fyrst nefna höfnina. Um skeió leit út fyrir aö hraunstraumur- inn myndi eyöileggja hana alveg, en meö firna miklu átaki tókst aö stööva hann. Nú myndar nýja hrauniö skjólvegg sem gerir höfn- ina aö einhverri bestu höfn landsis. Næst má nefna varmaveituna sem er ótrúlegt furöuverk. Hraunskjöld- urinn er mjög þykkur og því lengi aö kólna. Einhverjum snillingi datt í hug aö hagnýta þessa varmaorku á þann hátt aö bora djúpar holur í heitt hrauniö, dæla þar niður köldu vatni og fá þaö upp aftur heitt. Þetta var framkvæmt og þannig nota Eyjamenn hraunið sem orkugjafa, mjólka úr því varmann meöan hann endist, en enginn veit hve lengi þaö verður. Vonandi veröur það næsta áratug eöa lengur og kannski finna menn ný ráö þegar þetta dugar ekki lengur. Þegar gosinu lauk var bærinn hul- inn þykku öskulagi. Gífurlegt starf var aö koma þessari ösku á brott, bókstaflega þurfti aö grafa bæinn upp úr sökunni. En viö þaö fengu eyjaskeggjar mikla aöstoö. Sjálf- boöaliöar komu jafnvel langt utan úr heimi til þess aö vinna aö hreins- uninni. Þótt ekki muni mikið um hvern manninn viö slík stórvirki, sýn- ir þetta hug manna víöa um heim til endurreisnarstarfsins. En lands- búar allir stóöu þétt viö hlið eyja- skeggja í þessum þrengingum og ekki má heldur gleyma góöri aö- stoö frændþjóðanna á Norðurlönd- um. Nú er kaupstaðurinn í Vestmanna- eyjum risinn úr öskustónni og ber sjálfur furöu lítil merki þess sem yfir hann hefur gengiö. Hann er eins og lítil höfuöborg, þar er læknissetur og lyfjabúö, sjúkrahús og elli- heimili, krikja og prestsetur, byggöasafn, listasafn og náttúru- gripasafn, þar sem meðal annars er ágætt safn lifandi fiska. Þar er dagheimili, barnaskóli og fram- haldsskóli meö fjölbrautasniði. Þar er íþróttavöllur, sundlaug og golf- völlur. Þar eru ýmsir veitingastaðir og samkomuhús. Þar er líka prent- smiöja, og eru þá enn ótalin helstu iöjuver bæjarins, öll tengd fiski og fiskvinnslu. Þar situr bæjarfógetinn og þar er ein af merkari kirkjum landsins, Landakirkja, en hluti hennar var byggöur á árunum 1774—78. Á Heimaey er flugvöllur og þaðan eru flugferöir til Reykjavíkur tvisvar á dag, en stundum kemur fyrir aö veöur hamlar þeim samgöngum, því aö ekki er nema ein flugbraut á vellinum. En þá hafa Eyjamenn samgöngur á sjó til Þorlákshafnar, þangaö eru reglulegar feröir meö skipinu Herjólfi, en hann flytur meöal annars alla þá mjólk sem notuð er í Eyjum. 4. Náttúra í Eyjum. Fagurt er að horfa til Vestmanna- eyja af brún Hellisheiöar í góöu skyggni, og raunar víöa af láglendi Suöurlands. En ekki er síður fagurt aö horfa til lands úr Eyjum á góöum morgni, af Helgafelli eöa einhverj- um öörum útsýnisstaö. Augað spannar í einni sýn hina stórfeng- legu keöju jökla og fjalla allt frá Vatnajökli í austri til Hellisheiöar í vestri. Og í Heimaey sjálfri blasir hvar- vetna viö stórbrotin og mikilfengleg náttúra. Heimaklettur er flestum fjöllum hnarreistari, brúnleitt bergiö rís nærri lóörétt meö grænum kolli, sums staðar eru svo brattar gras- brekkur aö mann sundlar viö að horfa til þeirra, enda sumar vara- samar, eins og Dufþekja sem áöur er nefnd. Heimaklettur er hæstur fjalla í Heimaey, 283 m. Helgafell er vingjarnlegt fjall, grasi gróiö aö sunnan og auövelt upp- göngu. Þaðan er dýrlegt útsýni yfir eyjarnar og til lands. Nýja hrauniö svart og úfiö og hraun- veggurinn viö bæinn eru stórkost- legir minnisvaröar um hamfarir náttúrunnar og baráttu mannsins viö þær. Herjólfsdalur liggur vel viö sólu og þar hafa Vestmannaeyingar haldið þjóöhátíð allt frá 1874, og eru hinir einu sem haldiö hafa tryggö viö upphaflega dagsetningu þjóö- hátíöarinnar. Margt fleira er fyllilega þess viöi aö skoðað sé, meöal annars ýmsir hellar. Kunnastur hella í Eyjum er Kafhellir í klettaeynni Hænu. Sæta veröur sjávarföllum til aö komast inn í hann. Litbrigðin inni í hellinum eru jafnvel enn fegurri en í hinum fræga bláa helli á Caprí, og segja sumir sem í báöa hellana hafa komið aö Blái hellirinn á Caprí jafnist ekki á viö Kafhelli, sé þangaö komiö á rétt- um tíma sólarhrings. 17

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.