V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 20

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 20
KEPPENDUR Á V. ALÞJÓÐASKÁKMÓTI LANDSBYGGÐARINNAR ÍSLENSKU KEPPENDURNIR Jóhann Hjartarson Fæddur 08.02.1963 Skákstig: 2530 Alþjóðlegur meistari 1984 Jóhann Hjartarson er 21 árs gamall lögfræöinemi. Hann vakti strax at- hygli á Skákþingi íslands 1978, þá 15 ára gamall nýliöi. Hann var þá alltaf í toppbaráttunni og heföi náö verðlaunasæti ef ekki heföi komið til óvænt tap í síöustu umferö. Samt var ísinn brotinn og 17 ára gamall varö Jóhann íslands- meistari áriö 1980. Strax áriö eftir náöi hann sínum fyrsta áfanga að alþjóðatitlinum, þaö varásíöasta Lone Pine mótinu. Næstu áfangar aö titlinum létu þó bíöa furöu lengi eftir sér og þaö var ekki fyrr en á heimsmeistaramóti sveita 26 ára og yngri í Chicago 1983 aö næsti áfangi kom. Þá varö aðeins áfanginn á lokuöu móti eftir. í janúar 1984 sannaöi Jóahnn tví- mælalaust rétt sinn til titilsins meö því aö ná ööru sætinu í Gausdal í Noregi. Jóhann hefur þrisvar veriö í ís- lensku Ólympíusveitinni og má nefna aö hann hefur unnið marga 18 sigra meö Búnaðarbankasveitinni sigursælu, en hana hefur Jóhann leitt undanfarin fjögur ár. Alþjóðlega Búnaöarbankamótiö 1984 varö svo mót Jóhanns, þar sigraöi hann meö glæsibrag heil- um vinningi fyrir ofan næsta mann, og tók þar ekki aðeins iokaáfanga aö alþjóðlega meistaratitlinum heldur einnig 1. áfanga aö stór- meistaratitli. En Jóhann lét ekki þar viö sitja heldur hélt sigurgöngu sinni áfram og var í 1.—3. sæti á 11. Reykjavíkurskákmótinu og þá var 2. áfangi aö stórmeistaratitli í höfn og tæplega langt aö bíöa eftir loka- áfanganum. Þaö kom líka í Ijós þegar stigalisti Fide 1984 kom út aö Jóhann haföi heldur betur tekið stór stökk upp á viö og hækkaö um 105 stig og enn hefur Jóhann hækkaö um 10 stig á nýútkomnum stigalista Fide. Jó- hann var íslandsmeistari í skák 1984. Lengi leit út fyrir aö Jóhann næöi lokaáfanga aö stórmeistaratitli á Ólympíumótinu í Saloniki í Grikk- landi 1984 en þátefldi hann allar 14 skákirnar og stóö sig mjög vel, hlaut 8 vinninga, en þreyta í lokin varö vafalítiö til þess aö hann missti af titlinum í þaö skiptið. í janúar sl. tefldi Jóhann á svæöis- mótinu í Gausdal í Noregi. Þar var hann lengi í forystu og lenti loks i 4. sæti meö 6V2 vinning. Á afmælismóti Skáksambandsins í febrúar var Jóhann ekki í stuöi og herslumuninn vantaöi á allsterku móti í Kaupmannahöfn í mars sl. Eftir þaö hefur Jóhann einbeitt sér aö náminu þar til nú aö loknum prófum fyrsta árs í lögfræöi aö hann kemur vígreifur til leiks. Helgi Ólafsson Fæddur 15.08.1956 Skákstig: 2515 Stórmeistari 1985 Helgi Ólafsson er stigahæsti kepp- andinn á Húsavíkurmótinu. Helgi tefldi mikiö og tók miklum framför- um á árunum 1975—1978 og hlaut þá titil alþjóöameistara. Hann varö Skákmeistari Taflfélags Reykjavík- ur haustiö 1975 og Skákmeistari Reykjavíkur 1976. Helgi hefur tví- vegis orðið íslandsmeistari, árin 1978 og 1981. Eftir fyrstu uppgangs- árin var eins og Helgi þyrfti nokkur ár til aö safna í sig veðrinu en er nú kominn á fulla ferö aftur og fer mik- inn. Á þessu ári hefur hann teflt þrotlaust, fyrst í Svæöismótinu í Gausdal í Noregi og síðan í Af- mælismóti Skáksambands íslands sem lauk 24. febrúar sl. Helgi unni sér þá ekki hvíldar fyrir Húsavíkur- mótiö og hélt galvaskur til Kaup- mannahafnar á alþjóölegt skákmót í millitíðinni. Eins og fram kemur hér aö ofan náöi Helgi aö Ijúka sókninni til stór- meistara í Kaupmannahöfn og var þaö reyndar vonum seinna, þótt óneitanlega heföi okkur þótt gaman aö sá atburöur heföi oröiö á íslands stoö.

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.