V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Qupperneq 36

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Qupperneq 36
Skákþrautir í Eyjum Sigurbjörn Sveinsson Frekar sjaldgæft er aö íslendingar leggi fyrir sig aö semja taflþrautir, og má því kalla þaö undarlega tilvilj- un aö þrír hinna fáu er þaö hafa gert skuli vera Vestmannaeyingar eöa minnsta kosti búiö um skeið í Eyjum — nema manni detti sú skýring í hug aö landslag og náttúra í Eyjum sér sérstaklega vilholl hugarstarfi af þessu tagi. En þessir menn eru: Sigurbjörn Sveinsson kennari og skáld, Ragnar Halldórsson tollvörð- ur og Árni Stefánsson póstmaður og skákmeistari. Hér veröur aðeins getiö hins elsta þessara þriggja, Sigurbjarnar Sveinssonar. Sigurbjörn var annál- aö góömenni og barnavinur. Hann var kunnur hverju mannsbarni aö kalla mátti fyrir ágætar barnasögur sínar er út voru gefnar undir nafn- inu BERNSKAN í tveimur bindum. Hann var einnig vel skáldmæltur og liggur meðal annars eftir hann Ijóö sem telja má þjóösöng eyjaskeggja og hefst þannig: Yndislega eyjan mín, en hvað þú ert morgunfögur. Sigurbjörn var mikill skákunnandi og haföi sérlega gaman af skák- dæmum, glímdi oft viö aö leysa skákþrautir og var sífellt aö semja dæmi sjálfur. Hér kemur fyrst eitt kunnasta dæmi hans. 1. Þetta dæmi er gott aö skoða fyrir þá sem eru ekki mjög vanir aö leysa skákdæmi. Þetta er tvíleiksdæmi, hvítur á leikinn og á aö máta í öör- um leik sínum. Þegar leitað er lausnar á skákdæmi getur oft verið gott aö velta fyrir sér hvaöa kosti svartur á, ef hann ætti leikinn. Sú athugun leiöir stundum til lausnar. Hér sjáum viö aö leiki svartur 1. — d6, á hvítur 2. Bf5, leiki hann 1. — b6, á hvítur 2. Ba6, leiki hann 1. — ab3, á hvítur 2. 2. Ha8 og mátaríöll skiptin. Viösjáum líka, aö svarti biskupinn á c5 kemur í veg fyrir Rb6 og Re7 mát, og má sig því hvergi hræra. Þetta gæti bent til þess aö hér sé um svokallað biö- leiksdæmi aö ræöa og vandinn sé sá einn að finna einhvern leik sem engu breytir sem máli skiptir. Og þá kemur hvíti kóngurinn í hug. Hon- um má ekki leika á svartan reit, því aö þá getur svartur skákaö. Ekki má heldur leika honum á c2, því aö þá getur svartur einnig skákaö (ab3í) 1. Ke2 væri samkvæmt þessu lykil- leikurinn, þaö er aö segja fyrsti leikur lausnarinnar, og hún yröi þá á þá leið sem rakiö hefur veriö hér aö framan. En ef nú betur aö er gætt, kemur í Ijós aö einn leikur svarts hefur ekki verið athugaöur enn: 1. — b5. Þá kemst biskupinn ekki á a6 til aö máta. Viö verðum því aö hefja nýja leit aö lykilleik, einhvern leik ser dugar gegn 1. - b5 og heldur hinum mátleiöunum opnum. Einnig er hugsanlegt aö unnt sé aö hindra b5, og þá kemur leikurinn 1. Bb5 upp í hugann. Þá er ekki hægt aö svara 1. — d6 meö Bf5 mát, en í staðinn kemur 2. Re7 mát, nú vald- ar biskupinn d7. Öll hin mátin eru óbreytt. Þarna er þá lausnin komin. © © th 2. Ljúfmannleg glettni Sigurbjarnar sem gamlir lesendur Bernskunnar minnast meö ánægju kemur fram í þessu dæmi sem sagt er aö jafnvel öflugustu skákmenn hafi strandað á. Hverjum dettur í hug hrókun þeg- ar aðeins fimm menn eru á borði. En sé taflstaðan þannig aö kóngur og hrókur séu á sínum staö og ekkert bendir til þess aö þeim hafi veriö leikiö, og engir sýnilegir meinbugir á, þá er hrókun lögmæt- ur leikur, líka í skákdæmi. Þegar þaö er athugað, er lausnin einföld: 1. O—O—O Kxa2 2. Hd3 Ka1 3. Ha3 1. — Ka4 2. Hd5 Ka3 3. Ha5 3. Sum dæmi Sigurbjarnar leyna skemmtilega á sér, eins og þetta 34

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.