V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 39

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Page 39
Hjálmar Theódórsson: Minningar frá Vestmannaeyjum Ég dvaldi í tvö ár í Vestmannaeyj- um, árin 1936 og 1937. Er ég kom til Vestmannaeyja í janúar varö ég þess fljótlega var, aö þar voru marg- ir góöir skákmenn. Svo atvikaðist þaö svo til, aö viö nokkrir aökomumenn fórum þess á leit viö Karl Sigurhansson (þá for- maöur T.V.) aö skákmenn úr Eyjum tefldu viö okkur kappskák á 10 borðum. Þetta gekk aö óskum og fór keppn- in fram á Hótel Borg, og ef ég man rétt þá unnu Eyjamenn keppnina meö einum vinningi yfir. Þessi eini vinningur var nokkuð sögulegur, því í liði Eyjamanna var ein kona, sem tefldi viö Jón Árna- son frá Húsavík og vann konan skákina, og var þaö úrslitaskákin. Þessi kona mun hafa heitið Sigríöur Jónatansdóttir, dóttir vitavaröarins í Stórhöföa. Þaö mun rétt vera aö þann 3. sept- ember 1936 endurvekjum viö nokkrir áhugamenn Taflfélag Vest- mannaeyja, til lífsins, eftir fjögurra ára svefn. Og um haustið héldum viö Skákþing Vestmannaeyja, lík- lega í fyrsta sinn, og varö ég efstur og fékk titilinn Skákmeistari Vest- mannaeyja. En næstir urðu þeir Vigfús Ólafsson og Karl Sigurhans- son. Áriö 1937 tefldum viö svo símskák viö Skákfélag Keflavíkur á 8 borö- um, og uröu úrslit þau, aö Taflfélag Vestmannaeyja vann meö 71/2 vinn- ingum en Keflvíkingar aöeins V2 vinning. Nokkru síöar fengum viö svo sím- skeyti frá Skákfélagi Hafnarfjarðar um aö tefla viö þáá8 borðum. Úrslit uröu þau, aö Taflfélag Vestmanna- eyja vann 3 skákir en geröi fimm jafntefli. Áriö 1937 fékk Skáksamband ís- lands og Taflfélag Reykjavíkur hing- aö til lands einn af sterkustu skák- meisturum Þýskalands, til þess aö tefla viö íslenska skákmenn og kenna þeim. Þessi maður var Ludwig Engels og var atvinnumaö- ur í skák. Reykvíkingar borguöu honum tvö hundruð krónur í kaup á mánuði, frítt fæöi og uppihald. Viö í Taflfélagi Vestmannaeyja vild- um ekki sleppa þessu tækifæri og reynum nú aö fá þennan þýska skákmeistara til Eyja til þess aö tefla og kenna skák. Svo varö þaö úr, aö viö buðum Engels aö koma hingað og dvelja hér í 2 vikur og buðumst viö til aö borga honum tvö hundruö krónur og fríar feröir og uppihald. En meö hverju áttum viö aö borga? Taflfélagið átti enga peninga. Ég ásamt fleirum í félaginu buðumst til þess aö ganga á milli manna og biöja þá um aö styrkja þetta meö fjárframlögum. Ég fórtil Gísla Johnsen og tók hann mér vel og gaf 50 krónur. Þá fór ég til Helga Benediktssonar og spuröi hann hvort hann vildi gefa peninga til þess aö Ludwig Engels gæti komið til Eyja og kennt þar skák og teflt viö Eyjabúa. Helgi tók mér vel, en spuröi mig hvort ég væri búinn aö hitta nokkurn í þessu máli? Ég sagöi honum aö ég væri búinn aö hitta Gísla Johnsen. Og hvaö gaf hann? spuröi Helgi. 50 krónur sagöi ég og sýndi honum peninginn, splunkunýjan 50 króna seðil. Þá segir Helgi: Þá gef ég 100 krónur, og fékk mér splunkunýjan hundrað króna seðil! Ég orðlengi þetta svo ekki frekar, en söfnin hjá mér og öörum í Taflfélag- inu gekk mjög vel og Engels kom og tefldi og kenndi skák og af hon- um lærðum viö mikið. Ég læt hér fylgja meö eina skák er ég tefldi viö Engels, því ég tel þaö fróðlegt aö sjá, hvernig maöur tefldi fyrir 48 árum. Vestmannaeyjum 15. apríl 1937. Hvitt: Ludwig Engeis Svart: Hjálmar Theodórsson Sikileyjarleikur 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd 4. Rxd4 e6 5. Rc3 Bb4 6. a3 Bxc3 7. bxc3 Rf6 8. Bd3 d5 9. Rxc6 bxc6 10. e5 Rd7 11. f4 Db6 12. Df3 Rc5 13. Be3 Rxd3t 14. cxd3 Db2 15. 0—0 Dxc3 16. Hfd1 0—0 17. Hac1 Db3 18. Bc5 He8 19. Hd2 Ba6 20. g4 Db7 21. Hg2 Db3 22. Hcd1 Dc3 23. Bd6 Dd4t 24. Kh1 c5 25. f5 Bb5 26. f6 g6 27. g5 c4 28. Dh3 Kh8 29. Hg4 Df2 30. Hf1 De2 31. Hf3 cxd3 32. Bb4 Hac8 33. Hg1 Hc2 34. Hf4 d4! 35. Gefiö Vestmannaeyjar að vestan. 37

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.