VI. alþjóðamótið, Egilsstöðum - 01.06.1987, Blaðsíða 15
Frá Skáksambandi Austurlands
Skáksamband Austurlands var stofnað á Egils-
stöðum 8. maí 1976. Hugmyndin að stofnun sam-
taka skákmanna á Austurlandi hafði þá oft áður
verið rædd meðal skákmanna. Ég hygg, að á engan
sé hallað, þótt sagt sé, að Trausti Björnsson, þáver-
andi skólastjóri á Eskifirði og landsþekktur skák-
maður, hafi átt drjúgan þátt í stofnun samtak-
anna.
Það var í janúar 1976, að Trausti tók að sér, að
beiðni Skáksambands íslands, að skipuleggja
Svæðismót Austurlands. Sigurvegari í því móti
öðlaðist rétt til þátttöku í áskorendaflokki á Skák-
þingi íslands. Svæðismótið var síðan haldið á
Eskifirði í mars 1976. Þá var ákveðið að halda
sveitakeppni á Egilsstöðum 8. maí og stofna þar
formlega Skáksamband Austurlands.
Á stofnfundinn kom Einar S. Einarsson forseti
Skáksambands íslands. Hann lagði fram drög að
lögum fyir Skáksamband Austurlands, sem
samþykkt voru með lítilsháttar breytingum.
Fyrsta stjórn Skáksambands Austurlands var
þannig skipuð: Trausti Björnsson Eskifirði, for-
maður. Magnús Ingólfsson Egilsstöðum, gjald-
keri. Karl Hjelm Neskaupstað, ritari. Varamenn
voru Jóhann Þorsteinsson Reyðarfirði og Einar
Ólafsson Vopnafirði.
Skákmenn á Austurlandi hafa síðan tekið þátt í
ýmsum mótum undir merki Skáksambands
Austurlands. Vel að merkja: Merki eignaðist sam-
bandið strax. Það teiknaði Árni Helgason kennari
á Eskifirði og gaf Skáksambandi Austurlands.
Þátttaka í deildakeppni Skáksambands íslands
hefur verið fastur liður hjá okkur. Árið 1978 unnu
Austfirðingar 2. deild og fluttust upp í 1. deild. í
fyrstu deild keppa 8-manna sveitir en 6-manna
sveitir í annarri deild. Það reyndist erfitt að halda
svo fjölmennu og sterku liði til lengdar og urðum
við neðstir í fyrstu deild 1981. Við tefldum á Húsa-
vík í 2. deild 1982 og hrepptum 3. sætið (af 10).
Af einhverjum ástæðum tókum við ekki þátt
1983, en við tefldum í þriðju deild 1983—1984, en
vegna vaxandi þátttöku í deildakeppninni voru
deildirnar þá orðnar þrjár. Ekki þarf að orðlengja
það nánar, að við unnum okkur upp úr 3. deild
1984—1985 og höfum haldið velli í 2. deild síðan.
Nú í vor urðum við í 5. sæti (af 8).
Árið 1978 óskaði Skáksamband íslands eftir því
við Skáksamband Austurlands, að það tæki að sér
landskeppni við Færeyinga í samvinnu við Skák-
samband Norðlendinga. Skáksamband íslands
hafði þá séð um þessa keppni í nærfellt áratug.
Þessi landskeppni hefur síðan farið fram annað
hvert ár til skiptis í Færeyjum og á íslandi. Tefld
hefur verið tvöföld umferð á 10 til 12 borðum,
önnur umferðin hér austanlands en hin á Akureyri.
Síðast var teflt í Færeyjum 1985, og sendu Aust-
firðingar 5 manna lið en Norðlendingar 7. íslend-
ingar unnu 13Vi gegn IOV2. Reyndar hafa íslend-
ingar ætíð farið með sigur af hólmi í þessari
keppni.
Næsta landskeppni við Færeyinga verður því
hérlendis á þessu ári, en enn hefur hún ekki verið
tímasett nánar.
Nýlega var haldinn aðalfundur Skáksambands
Austurlands. Þar var kosin stjórn sambandsins.
Hún er nú þannig skipuð: Guðmundur Ingvi Jó-
hannsson Egilsstöðum, formaður. Magnús Val-
geirsson Fáskrúðsfirði, gjaldkeri og Sigurður
Ægisson Djúpavogi, ritari. Varamenn: Sverrir
Unnarsson Eyjum Breiðdal og Ottó Jónsson Egils-
stöðum.
Guðmundur Ingvi Jóhannsson
15