VI. alþjóðamótið, Egilsstöðum - 01.06.1987, Qupperneq 17
Þátttaka Austfirðinga í skák
á þrem síðustu landsmótum UMFÍ
fieim sem sóttu 16. landsmót ungmennafélag-
anna á Selfossi 1978, verður eflaust lengi í huga
hinn frábæri og óvænti árangur Austfirðinga í
flestum greinum.
Skákin var þar ekki undanskilin og var skák-
sveit U.Í.A. harðsnúin með Trausta Björnsson
skólastjóra á Eskifirði í fararbroddi.
Með honum voru í sveit:
Á 2. borði Gunnar Finnsson Eskifirði, á 3. borði
Jóhann Þorsteinsson Reyðarfirði, á 4. borði Viðar
Jónsson Stöðvarfirði.
Þessi sveit vann það afrek að hreppa silfurverð-
laun á mótinu. Aðeins sveit UMSK varð sterkari.
Undirrituðum er enn í fersku minni þegar Jó-
hann Þorsteinsson kom að máli við liðstjórann og
óskaði eftir fríi í 3. umferð, en hann hafði þá
unnið báðar sínar skákir. Svar Trausta var stutt og
laggott: „Þeir sem standa sig svona fá ekkert frí".
Þetta var ekki orðlengt frekar, Jói tefldi báðar
skákirnar sem eftir voru og vann báðar, 100%
vinningshlutfall.
Var þetta einkennandi fyrir þann góða liðsanda
og baráttugleði sem einkenndi Austfirðinga á
þessu landsmóti.
Á landsmótinu á Akureyrí 1981 var sveit U.I.A.
ekki síður sigurstrangleg, enn með Trausta Björns-
son í forystu og Eirík Karlsson Norðfirði á 2.
borði. Á þriðja borði keppti Jóhannes Lúðvíksson
Norðfirði og Viðar Jónsson Stövarfirði á því
fjórða. Einar Már Sigurðarson var varamaður.
Þarna urðu Austfirðingar í 2. sæti, hálfum vinn-
ingi á eftir Bolvíkingum, sem þá höfðu skotist upp
á stjörnuhimininn, þar sem þeir halda sig enn í
dag.
Úrslit á Akureyri:
1. Skarphéðinn 13 V2 stig
2. Bolungarvík 12 stig
3. U.Í.A. 11‘A stig
í Keflavík 1984 höfðu enn orðið mikil manna-
skipti í sveit U.Í.A. Foringinn, Trausti Björnsson
var nú fluttur úr fjórðungnum, en á fyrsta borði
tefldi afar efnilegur Norðfirðingur, Þorvaldur
Logason.
Aðrir í sveitinni voru:
Á 2. borði Eiríkur Karlsson Neskaupstað, á 3.
borði Þór Örn Jónsson Fáskrúðsfirði, á 4. borði
Viðar Jónsson Stöðvarfirði.
Þegar litið var á sveitir andstœðinganna í Kefla-
vík, sýndust þær sterkari en nokkru sinni fyrr, og
var greinilega hörð barátta fyrir dyrum.
Þó náðist sá frábæri árangur að gert var jafn-
tefli bæði við UMSK, sem urðu sigurvegarar og
Bolvíkinga sem hrepptu annað sætið.
Fyrir síðustu umferð gat ekkert ógnað veldi
þessara tveggja í tveim efstu sætunum, en baráttan
um þriðja sætið stóð á milli U.Í.A. og Skarphéð-
ins. Hafði U.Í.A. /2 vinnings forskot.
Voru Austfirðingar bjartsýnir þegar tveir heilir
vinningar höfðu verið innbyrtir og vænleg staða í
þeim tveim skákum sem eftir voru. Það spillti ekki
Á þessari afleitu mynd má greina Jóhann Þorsteinsson þar
sem hann þjarmar að andstceðingi sínum á Selfossmótinu
1978.