1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Síða 9

1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Síða 9
Um keppendur á 1. alþjóðlega Kópavogsskákmótinu Andri Ass Grétarsson FM F. 06. 01.1969 Skákstig 2355 Andri Áss kemur úr þekktri skákfjöjskyldu og er bróðir hans Helgi Áss einnig keppandi á mótinu. Andri hefur teflt á mörgum mótum bæði innanlands sem og erlendis og náð góðum árangri. Hann hóf að tefla ungur og var á sínum unglingsárum í hópi sterkustu unglinga landsins. Andri var m.a. Skólaskákmeistari 1983, unglingameistari Islands 1987 og orðið ofarlega bæði á Haustmóti T.R. og Skákþingi Reykjavíkur. Andri hefur tvívegis teflt í landsliðsflokki árin 1985 og 1993 og náð góðum árangri. Hann hefur einnig teflt töluvert erlendis. Um áramótin 1991- 1992 tefldi hann á tveimur sterkunr mótum í Gausdal, og á Rilton Cup mótinu í Svíþjóð og náði góðum árangri. I fyrra náði Andri einnig mjög góðum árangri á móti í Lapellier og hlaut 5'A vinning af 9. Andri hefur einnig verið áberandi í félagsmálum skákhreyfingarinnar, og sat í stjórn Skáksambands íslands 1992-1993 og var einn af stofnendum Taflfélagsins Hellis, sem m.a. hélt alþjóðlegt skákmót í fyrrasumar. / •• Askell Orn Kárason F. 05.07.1953 Skákstig 2225 Áskell Örn er sálfræðingur að mennt og framkvæmdastjóri Unglinga- heimilis ríkisins. Áskell hefur teflt í landsliðsflokki árin 1974, 1983 og 1987, Sigurvegari í áskorendaflokki varð hann árin 1984 og 1987. Skákmeistari Akureyrar 1981 og 1982. Áskell var alþjóðlegur meistari í bréfskák 1993. Hann hefur tekið virkan þátt í Deildakeppninni, þar sem hann teflir í sveit Skákfélags Akureyrar Benedikt Jónasson F. 13. 03.1957 Skákstig 2245 Benedikt hóf ungur þátttöku í skákstarfi Taflfélags Reykjavíkur, enda alinn upp í nágrenni félags- heimiíis Taflfélagsins. Árið 1969 sigraði hann í unglingaflokki á Haust- móti T.R. Síðan tekur hann jöfnum og stöðugum framförum og árið 1979 vinnur hann áskorendaflokk á Skák- þingi Islands með 8'A vinning af 11 mögulegum. Um haustið teflir hann á Haustmóti T.R. og fær fjóra vinninga. Árið 1980 teflir Benedikt í Lands- liðsflokki á Skákþingi Islands, og fékk þar 3'A vinning. Árið 1981 teflir hann á Skákþingi Reykjavíkur og hlaut 3 vinninga. Á Haustmóti T.R. sama ár verður hann í 5. sæti með 6 vinninga. Árið eftir teflir hann á Skákþingi Reykjavíkur og fær 6 vinninga, einnig tefldi hann á Tíunda Reykjavíkurskákmótinu og fær þar 4 vinninga. Hann teflir í landsliðsflokki þetta sama ár. Árið 1984 varð Benedikt í 2. sæti á Skákþingi Reykjavíkur með 9 vinninga af 11 mögulegum. Á ellefta Reykjavíkur- skákmótinu fékk hann 5 'A vinning eða 50% vinninga sem er mjög góður árangur. Árinu 1984 lýkur svo með því að Benedikt var í 1.-2 sæti á Haustmóti T.R. ásamt Sævari Bjarnasyni, með 8 vinninga af 11 mögulegum. Árið 1987 varð hann í 2.-3. sæti á Haustmóti T.R. með 7 1/2 vinning. Bragi Halldórsson f. 29. 03.1949 Skákstig 2225 Bragi Halldórsson hefur alllengi blótað skákgyðjuna. Hann var mjög virkur í íslensku skáklífi á 7. og 8. ' 9

x

1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið
https://timarit.is/publication/2060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.