Alþýðublaðið - 19.02.1926, Síða 3

Alþýðublaðið - 19.02.1926, Síða 3
ALÞ. ÝÐUBLAÐID því að það eigi að fá 100 þús. kr. eða meira á ári fyrir leyfið: Slík fjáröflun úr vösum lands- manna er þó a. m. k. allmjög varhugaverð. Myndarlegt félag. Á síðasta aðalfundi verkam.fél. „Dagsbrúnar“ samþykti félagið að gefa Alþýðuprentsmiðjunni úr sjóði sínum 1000 krónur og hús- byggingarsjóði Alþýðuflokksins 3870 kr. 1 stjórn „Dagsbrúnar“ eru nú þessir: Magnús V. Jóhannesson form., Guðm. R. Oddss. varaform., Ársæli Sigurðsson ritari, Filippus Ámundason féhírðir og Guðjón Benediktsson fjármálaritari. Dr. SCémgiiisik vssratap! ,,Mrgbl.“ sýnist vanta kónginn he'dur iliilega upp á síðkastið. í fyrra var það alt af öðru hvoru að láta í veðri vaka, að drotningin myndi „ef til vildi“ koma íil að heimsækja Knút prinz, sem þá var á varðskútu hér við iand. Var blaðið meö þessu bersýnilega að leita fyrir sér um þaÖ, hvort noklt- ur „stemning“ væri fyrir að fá hina tignu konu hingað, en svo -reyndist þó ekki, því menn voru búnir að fá nóg af hérvist prinz- ins. Ekki var það þó prinzinum að kenna, því hann báuð af sér góðan þokka, heldur fleðulátum og flaðri sumra íslendinga, sem alt af voru að nudda sér utan í hann og ekki gátu séð hann álengdar án þess að halda ræðu fyrir minni hans — á dönsku. Nú er það kon- ungur, sem að því, er „Mrgbl.“ segir, muni „ef til vill“ koma til landsins í sumar. Er þessum kvitt auðsæilega lostið upp til að sjá, hvernig í það verði tekið. Það geta ekki aðrir verið en hinir ís- lenzku hirðmenn konungs og ein- hverjir hnappagatakláðugir orðu- gemsar, sem eru fíknir í að fá nýja konungsheimsókn. Annars er konungur ráðinn upp á þaÖ að sitja í Kaupmannahöfn, og fer vel á því. Auðvitað er hvorki hægt né rétt að meina honum að koma hingað sem „prívatmaður", en „konungsheimsókn" vilja Islend- ingar enga. Skyldi konungur ann- ars ekki verða felmtraður, ef hann kærni og sæi gína við sér af landi gapandi, glorhungruð hnappagöt- in á sumum? nd. Um daginn og veginn. Næturlæknir er í nótt Guðmundur Guðfinns- son, Hverfisgötu 35, sími 1758. Veðrið. Hiti mestur 3 st. (í Vestm.eyj- um); minstur 1 st. frost (á ísafirði og Akureyri). Átt víðast austlæg. Stinningskaldi í Vestm.eyjum. Ann- ars staðar lygnara. Loftvægislægðir fyrir suðvestan land og við Hjalt- land. Veðurspá: Austlæg átt, frem- ur hæg, lítil snjókoma á norður- og Austur-landi. 1 nótt suðaustlæg átt, sennilega allhvöss við Suður- land. Togararnir. Baldur fór til Englands í gær, en Ari kom af veiðum með 1000 kassa og Karlsefni í nótt með 1100. Cle- mentina kom einnig af veiðum í nótt, biluð, og Grímur Kamban kom £ gærkveldi. í gær kom þýzkur togari með veikan mann og fór þegar aftur. Dálifið snjöaði hér í nótt og er alhvít jörð hér í grend í dag. „Nova“ kom í nótt. Guðspekifélagið. „Septíma" heldur fund í kvöld kl. 8,30 stundvíslega. Efni: Sigurjón Jónsson. skáld: „Um álfa“. Hægri og vinstri. Bæjarfulltrúarnir. hafa nú skift svo sætum með sér, að íhaldsmenn sitja nú allir á hægri hönd forseta nema skrifari þeirra og varaforseti, en jafnaðarmenn til vinstri — eins og í brezka þinginu, en þaðan eru orð- tökin hægrimenn og vinstrimenn um stuðningsmenn stjórnarinnar og and- stæðinga hennar. Frá bæjarstjörnarfundi í gær. Þar voru samþykt þrenn frumvörp til laga, sem bæjarstjórn- in ætlar að leggja fyrir alþingi til samþyktar. Eru þau um viðauka við hafnarlög, svo að hafnarsjóður fái lögveð í skipum fyrir gjöldum, sektuin og skaðabótum, um breyt- ingu á lögum um ellistyrk þannig, að gjaldendaskráin liggi til sýnis frá 1.—7. marz, og um breytingu á lögum um kosningu til alþingis i þá átt að færa aftur tímaákvæði um samningu og framlagningu kjör- skrár. Enn fremur voru. samþyktar allmargar breytingartill. frá bæjar- laganefnd við frumvarp ríkisstjórn- arinnar um kosningu i málefnum sveita og kaupstaða, og verður nán- ara frá því sagt síðar. Aðalfundur Kaupfélags Reykvíkinga verður haldinn á sunnudaginn kernur kl. 5 síðdegis í G.-T.-húsinu. Neðanmálssaga ný byrjar á morgun hér í blað- inu. Er það íslenzk lögreglusaga og heitir „Húsið við Norðurá". Fá „þjóðlegu" blöðin þar með einka- rétt til að flytja eingöngu útlendar raufarasögur. „Stefnis“-félagið hefir nýlega verið skírt upp, og heitir nú utan í .málgagn Krossa- ness-ráðherrans. Hefir Magnús - dó- sent verið látinn taka við for- menskunni, því að Ólafur Thórs gleymdi alt af að halda aðalfundi. Varla glæpast margir á nafnaskift- unum þeim. ísfiskssala. Nú nýlega seldu afla sinn Egill Skallagrimsson fyrir 561 sterl.pd. og Jón forseti fyrir 797 sterl.pd. Til Strandarkirkju. Áheit frá stúlku kr. 5,00.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.