Alþýðublaðið - 20.02.1926, Page 1
Gefid út af AlpýðimoHKnum
1926.
Laugardaginn 20. febrúar.
44. tölublaö.
Ef»Sesfid simskeyfl.
Khöfn, FB., 17. febr.
Fjárreiður Norðmanna.
Frá Osló er símað, að Noregs-
banki hafi nýlega haldið árlegan
fulltrúaráðsfund. Tekjuafgangur
1925 var 13 milljónir, og er þetta
sönnun þess, að jafnvægi sé farið
að komast á í fjármálunum. Hlut-
hafar fengu 8 prósent arð. Rygg
bankastjóri sagði, að 50 banlcar
hefðu orðið að hætta seinustu ár-
in, en nú væri þessi fjárhagslega
vandræðatíð liðin hjá og að bank-
inn ætlaði fyrst um sinn að halda
krónunni kyrri á nú verandi stigi.
Friðun helgidaga i Bandarikj-
unum.
Símað er, að stærstu kirkjufé-
lög Bandaríkjanna berjist fyrir að
lögleiða bókstaflega hlýðni við
orð biblíunnar um að halda hvíld-
ardaginn heilagan, banna allar
skemtanir, blaðaútgáfur og hvers
konar vagnaumferð og jafnvel
símasamtöl.
Khöfn, FB., 18. febr.
Húsbruni í New-York-borg.
F'rá New-York-borg er símaö,
að bruni geysi þar í efstu hæðun-
um á fimmtíu hæða húsi.
Aðalfndir
Kanpfélags 'B0i.kT.fkIn
verður haldinn i Góðtemplarahúsinu sunnudag-
inn 21. þessa mánaðar og hefst kl. 5 lj% siðdegis.
|PP“ Dagskrá samkvæmt félagslögum. "^Hi
Reykjavik, 14. febr. 1926.
Sjómannafélag Reykjavikur.
Fundur
i Bárunni niðri mánudaginn 22. p. m. kl. 87s slðdegis.
Til umræðu: Félagsmál. Kosning lifrarmatsmanns. Björgun-
armál. Tillaga um tryggingu á fatnaði sjömanna, og fleira,
ef timi vinst til.
Félagar! Fjölmennið! Stjórnin.
Sjúkrasamlag Reykjavikur.
Aðalfundur
verður haldinn i Göðtemplarahúsinu sunnudagínn 28. febr.
1926, kl. 8. siðdegis. — Dagskrá samkvæmt félagsiögunum.
Reikningar samlagsins liggja frammi hjá gjaldkera alla
næstu viku. 20. febr. 1926. Stjörnín.
Kvenfélag Frikirkjusafnaðariiis
heldur 20 ára afmælishátíð fimtudaginn 25. þ. m.
kl. 8 V2 á Hötel ísland.
Félagskonur verða að vitja aðgöngumiða til frú Ingibjargar
ísaksdöttur, Holtsgötu 16, eða til frú Lilju Kristjánsdóttur,
Laugavegi 37, fyrir priðjudagskvöld.
Stuttpilsin hneyksla páfann.
Frá Rómaborg er símað, að páf-
inn hafi nýlega haldið ræðu og
fordæmi það, að konur gangi í
stuttum pilsum, og kvað karl-
mennina samseka kvenþjóðinni í
ýmsu, sem ekki horfir til heilla.
Skoraði hann á prestana, að and-
mæla tízkunni.
Stór-morðingi.
Frá Varsjá er símað, að morð-
ingi nokkur hafi játað á sig að
hafa myrt 53 manneskjur.
Kolafundur.
Frá Lundúnum er símað, að
geysistór kolalög séu fundin í
. Kent. Stjórnin hefir veitt 2 millj.
sterlingspunda til vinslunnar. Á-
litið er, að náman innihaldi hálfan
annan milljarð tonna.
Fyrirgpurn
tll Jósiatans Þorsteinssonar.
Vill Jónatan Þorsteinsson gera
svo vel að upplýsa, hvar vikt-
irnar eru, sem hann viktar á o!í-
una út til kaupenda?
Spurull.