Alþýðublaðið - 24.02.1926, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.02.1926, Blaðsíða 1
% Gefid út af Alþýðuflokknum 1926. Möfiaiæli gegn rikislSgpeglu. 138 alþingiskjósendur á Seyðis- firöi hafa sent alþingi mótmæli gegn því, að svo nefnd ríkislög- regla verði sett á stofn hér á landi. Mótmælaskjalið hefir verið lesið upp á alpingi. Erlend símskeyfi* Khöfn, FB., 24. febr. Norskir atvinnurekendur segja upp vinnusamningum. Frá Osló er símað, að atvinnu- rekendafélagið hafi sagt upp ýms- um samningum, sem útrunnir eru í marz-byrjun og snerta 40 000 verkamenn í hvers konar heima- iðnaði. Mussolini rekur sig á páfann. Frá Rómaborg er símað, að af tilefni pess, að Mussolini ætli bráðlega að leggja fyrir þingið lagafrumvörp um kirkjumálefni, hafi páfinn lýst yfir þvi, að lög um slík málefni séu ógild, nema hann sjálfur samþykki þau. Áskoran til alpingis og stjórnar um að afnema nú pegar áfehgisverzl- unina á Siglufirði. 442 alþingiskjósendur í Siglu- fjarðarkaupstað hafa sent áskorun til alþingis og stjómarinnar um að afnema nú þegar útsölu á- íengisverzlunarinnar á Siglufirði. Áskorunin hefir verið lesin upp á alþingi. Hafþór, isfirzki línubáturinn, kom inn í gærkveldi. Miðvikudaginn 24. febrúar. „Á útleið“ Leikfélag Reykjavíkur sýnir í kvöld í annað sinn sjónleikinn „Á útleið“ eftir Sutton Vane. Að- alefni sjónlejksins er ferð nokk- urra manna á skipi frá þessu lífi yfir í annað líf. Leikritið er fyrir margra hluta sakir eitt hið allra merkasta, er sýnt hefir verið á ís- lenzku leiksviði. Aðalhugmynd þess er einstök í sinni röð og ber vott um mikinn frumleik og hug- sæisgáfu höfundar. En auk þessa er meðferð leikendanna á hlut- verkum þeirra yfirleitt svo jafn- góð, að sjaldan mun betur hafa tekist hér, og sama er um út- búnaðinn á leiksviðinu að segja. Alþýðublaðið mun geta sjón- leiks þessa nánara innan skamms. Um daginn og veginn. Næturlæknir er í nótt Ölafur Þorsteinsson, Skólabrú, sími 181. St. „íþaka“. Skemtifundur í kvöld. Jarðarför Sigurðar Sigurðssonar, ráðunaut- ar, fór fram i dag. ísfiskssala. Apríl seldi afla sinn í fyrra dag fyrir 1270 sterlingspund og Snorri goði í gær fyrir 1394 sterlingspund, 1400 kassa. Leiðrétting. Með jöfnum atkvæðum, en ekki „öllum", féll í bæjarstjórninni til- lagan um að undanþiggja kirkjur húsagjaldi. Gyllir, hinn nýi togari Sleipnisfélagsins, kom í gær frá Þýzkalandi. Er hann mjög vandaður að sögn og hið ásjá- legasta skip. Skipstjóri verður Ing- var Einarsson, áður skipstjóri á Glaði. Veðrið. Hiti mestur 5 st.; minstur 0 st. Ált 47. tölublað. suðlæg eða austlæg. Stormur í Vest- mannaeyjum og hvassviðri í Grinda- vík. Annars staðar lygnara. Djú]) loftvægislægð við Suðvesturland og önnur við Suður-Grænland. Veður- spá: Sunnanátt eða suðvestan, hvöss á Suður- og Vestur-landi. Hryðju- veður. Allhvöss suðlæg átt og úr- koma á Austur- og Norður-landi. I nótt útsynningur. Togararnir. Jón forseti kom frá Englandi í gær. Hafði hann kastað vörpu úti fyrir Dyrhólaey og fékk þar 6 poka af þorski í einum drætti. Maí er væntanlegur af veiðum bráðlega. Gullfoss fer til Vestfjarða kl. 12 í nótt. Skip seld. Nýlega voru tvö skip seld á upp- ooði, gufubáturinn Anders fyrir 22 þús. og 700 kr. og m. b. Úlfur fyrir 16 700 kr. Veghefill. Svo er kallaður vélarvagn (mótor- vagn), sem vegamálastjórinn hefir keypt frá Noregi og hafður er til að slétta ójöfnur á vegum. Hefir hann nýlega verið reyndur á veg- inum hér fyrir austan Reykjavík og virðist gefast vel. Dagsbrúnarmenn! Berið félagsmerki yðar ávalt, er þið vinnið við höfnina. Látið engan vinna með ykkur, sem stendur utan við samtökin. Félagið stendur öllum verkamönnum opið. Notið merkið til þess að sýna ut- anfélagsmönnum, að það sá skaði að vera ekki i félaginu. Meðan þið gerið það ekki, eruð þið áhrifalaus- ir við höfnina. Ykkur er í lófa lagið að fá aila hafnarverkamenn í félagið, ef þið að eins eruð scimtaka. Félagi nr. 1256. Tll mtnnis. Þeim, sem glata tækifærinu, fá guðirnir eigi hjálpað.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.