Alþýðublaðið - 01.03.1926, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐID
ina, að leggja fram á næsta þingi
frv. um endurbætur á fátækralög-
unum, en hann bætti við: „En
vitaskuld get ég ekki ábyrgst
það.“ Benti Magnús Torfason þá
á, að þetta væri ekkert loforð hjá
M. G. Sagðist hann vænta þess,
að ef frv. yrði mót von sinni felt,
þá kæmu þeir þingmenn, sem
treystu á ellistyrktarsjóði, fljót-
lega fram með frv. um að efla
þá. Jörundur kvað það verið hafa
skemtiiegra, að meiri hluti allshn.
hefði tekið það fram í dagskrártil-
lögunni, ef hann ætlaðist til að
réttarbót frumvarpsins kæmi samt
sem áður bráðlega aftur fyrir al-
þingi til samþyktar. Kvað hann
það mælikvarða á skilning deiid-
arinnar á þessu mannréttinda-
máli og á réttlæti hennar, hvað
hún gerði við frumvarpið. Dag-
skrártillagan um að vísa því frá
var þá samþ. og frv. þar með
felt með 14 atkv. gegn 13 að við
höfðu nafnakalli. Með dagskrár-
till. voru íhaldsmennirnir allir
nema Sigurjón, og auk þeirra P.
Þ. og Sveinn í Firði, en á móti
Jón Baldv., Magn. Torf., Ben. Sv.,
Jakob, „Framsóknar“-flokksmenn-
irnir aðrir en þeir P. Þ. og Sveinn,
og Sigurjón. Bjarni f. V. var fjar-
staddur. — Þá var stýfingarfrv.
tekið út af dagskrá og ákveðnar
tvær umræður um leigu á 500
smálesta skipi til strandferða.
Það er þingsál.till. frá samgöngu-
málanefnd n. d. Er skipinu ætlað
að vera í förum ásamt „Esju“ frá
í ágústmánuði og fram í dezem-
ber n. k. Annist það einkum vöru-
flutninga, en hafi þó nokkurt far-
þegarúm. Er þetta ein af tillögum
5 manna milliþinganefndarinnar í
strandferðamálinu.
Allshn. n. d. hefir skilað nefnd-
arálitum um frv. Jóns Baldv. um
sérstakan þingmann fyrir Hafnar-
fjörð. Auk Jóns Baldv. er Pétur
Þórðarson með frv., og fylgir
með áliti þeirra áskorun til al-
þingis um að samþ. slíkt frv. nú
þegar, vegna mismunandi hags-
muna kaupstaðar og sýslna, og
með tilliti til fólksfjölda annara
kaupstaða, sem eru sérstök kjör-
dæmi. Hefir öll bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar ritað undir áskorunina.
Meira hluti allshn., þeir J. Kjart.,
Árni frá Múla og P. Ott., leggj-
ast þrátt fyrir það á móti frum-
varpinu.
Efri deild.
Þar var frv. um kosningar í
málefnum sveita og kaupstaða
vísað til 3. umr. með nokkrum
breytingum, en rakarafrv. felt að
gömlum vana í 3. sinn eftir tals-
verðar deilur. Var nafnakall haft,
og voru allir föstu íhaldsmenn-
irnir á móti að meðtöldum Gunn-
ari Ólafssyni, en hinir með. Féll
það þannig með 7 atkv. gegn 7.
Samtðk aiDýOunnar.
Verkakvennafélag síofnað
i Vestmannaeyjum.
í gær var stofnað verkakvenna-
félag í Vestmannaeyjum að til-
hlutun verkamannafélagsins „Dríf-
anda“ með 100 félögum. í stjórn
eru: Þóranna Ögmundsdóttir,
Kristín Jóhannesdóttir, Jóhanna
Einarsdóttir, Kristin óladóttir og
Ingibjörg Magnúsdóttir. Félagið
ákvað þegar í stað að ganga' í AÞ
þýðusamband Islands.
Vinnusamningur,
er giidir í Hafnarfirði.
Við undirritaðir, Kjartan ólafs-
son, Guðjón Gunnarsson og Björn
Jóhannsson, f. h. verkamannafé-
lagsins „Hlíf“, og við undirritaðir
atvinnurekendur í Hafnarfirði ger-
um með oss svo feldan samning:
1. gr. Almennur vinnudagur
reiknast frá kl. 7 árdegis til kl.
7 síðdegis, og skal einn klukku-
tími dragast frá til matar og auk
þess skal tvisvar fjórðung stund-
ar gefið frí til kaffidrykkju, sem
þó ekki dregst frá vinnutímanum.
Helgidagar reiknast helgidagar
þjóðkirkjunnar, svo og sumardag-
urinn fyrsti , en engin vinna skal
framkvæmd frá kl. 12 aðfaranótt
og til kl. 7 árdegis annars dags
stórhátíðanna: jóladags, nýjárs-
dags, páskadags og hvítasunnu-
dags. Föstudagurinn langi skal
einnig friðhelgur frá kl. 12 að-
faranótt til kl. 4 árdegis á laugar-
dagsmorgun fyrir páska.
2. gr. Tímakaup verkfærra karl-
manna skal vera, sem hér segir:
Fyrir dagvinnu kr. 1,20 — ein
króna og tuttugu aurar — fyrir
klukkustund. Fyrir helgidaga- og
nætur-vinnu kr. 2,20 — tvær krón-
ur og tuttugu aurar — fyrir
klukkustund.
3. gr. Vinnuveitendur skuldbinda
sig til að láta innanbæjarmenn
sitja fyrir allri vinnu, meðan
þeirra er kostur; sama gildir einn-
ig um vinnu þá, er þeir láta vinna
í samningsvinnu.
Vinnuveitendur skuldbinda sig
enn fremur til, að gera ekki á-
kvæðisvinnusamning í stærri stíl,
nema verktakinn hafi éður undjr-
skrifað þenna verkkaupssamning.
4. gr. Samningur þessi gildir frá
1. janúar 1926 til 1. janúar 1927,
og skal uppsegjanlegur fyrir 1.
nóvemberár hvert, en sé honum
ekki sagt upp af öðrum hvorum
aðilja, gildir hann alt komandi ár,
5. gr. Samningur þessi er gerð-
ur í tveim samhljóða frumritum,.
og heldur hvor aðili sínu.
Hafnarfirði, 6. jan. 1926.
Fyrir hönd verkamannafélagsins
„Hlífaí".
Kjartan ólafss. Björn Jóhannss.
Gudjón Gunnarsson.
Einar Þorgilsson,
Þórður og Ingólfur Flygenring,
Ingólfur Flygenring.
pr. s.f. Akurgerði,
Þórarinn Egílson.
pr. Hellyer Bros Ltd.
Þórður Einarsson
Verzlun Böðvarsbræðra,
Ólafur Böðvarsson.
pr. Forst. G. Zoega.
Geir Zoega.
F. h. h. f. Víðir.
Þórarinn Böðvarsson.
pr Ján Einarsson og fél.
Sigurg. Gislason.
Sjúkrasamlag
Reykjavikn'r
hélt aðalfund sinn í gærkveldL
Tala hluttækra sainlagsmanna
var 1. jan. s. 1. 1802 (645 karl-
menn og 1157 konur) og 20 hlut-
lausir. Tala hluttækra samlags-m.
1. jan. 1925 var 1592.
Formaður var endurkosinn Jón
Pálsson bankagjaldkeri og í
stjórn Guðgeir Jónsson, Jón Jóns-
son frá Bála og Felix Guðmunds-
son, allir endurkosnir. 1 stjórn-