Alþýðublaðið - 05.03.1926, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐID
1
Stumpasirs
mikið og gott úrval nýkom-
ið i verzlun.
Aaunda Ámasonar.
áð fjara ut og því eru þau þarna
á skipinu, — en þó án þess aö
-taka nokkurn verulegan þátt í því,
ér gerist með farþegunum. Þau
eru óboðnir gestir — viliingar,
éins og höfundurinn kallar þau.
Er skipið tekur höfn, er þeim
bönnuð landganga og þau verða
að fara með skipinu afíur til jarð-
iifsins. —- Þeim hefir mistekist til-
raunin til þess að ráða sig af
dögum.
Auk farþeganna eru í leikritinu
tvíer persónur, Scrubby, þjónn og
leiðsögumaður hinna framliðnu
férðamanna, og séra Frank Thom-
son, rannsóknardómarinn, er tek-
m á móti farþegunum, er ferð-
inni er lokið, og gerir um mál
þeirra og fær hverjum um sig
samastað eftir því, sem hann hefir
unnið til í fyrra lífi sínu. —
Sutton Vane er vafalaust frum-
legastur þeirra leikritahöfunda
er fram hafa komið með Eng-
lendingum eftir ófriðinn mikla.
Hann hefir mikla hugsæisgáfu, en
hugsun hans er eigi djúp og fast
mótuð að sama skapi. Hann er
óvenjulega fundvis á skemtileg og
frumleg viðfangsefni, en hann
stiklar að eins á þeim, en krýfur
þau ekki til mergjar. Er þetta
í sjálfu sér bæði kostur og ókost-
ur. Og kosturinn er sá, að hann
verður aldrei leiðinlegur og er
Iaus við allan predikanatón. En
engu að síður er honum sýnt um,
að vekja hugsun manna um efni
þau, er hann tekur til meðferðar.
formgáfa Suttons Vanes er mikil,
og hann er snillingúr i því að
mynda samtöl. Er þetta einn af
höfuðkostunum við „Á útleið“. Þö
dvlst engum, að fyrri helmingur
leikritsins ber langt af hinum sið-
ari, bæði um fjörlega framsetn-
ingu og „dramatiskan" þrótt. Þó
nær höfundurinn sér aftur í leiks-
)ok.
c „Á útieið“ bendir éigi á neina'
Kérstaka trúrækni höfundarins,
éins og súmir hafa haídið frain,
og það er eigi samið til þess að
flytja mönnum nein trúarsannindi.
Höfundurinn færir að eins gamla
goðsögn í nýtízkubúning, og til
þess tekur hann í þjónustu sína
þær hugmyndir manna um annað
lif, sem efstar eru á baugi nú.
En hann flytur þær eigi með
þeirri alúð, er maður, sannfærð-
ur í þeim efnum, myndi gera.
(Frh.)
Almar.
Verkakonur noita
kauplækkunarkröSum
atvinnurekenda.
Verkakvennafélagið „Framsókn“
hélt mjög fjölmennan fund í gær-
kveldi. Var fundarsalurinn full-
skipaður verkakonum. Kauptilboð
atvinnurekenda lá fyrir fundinum.
Það var 80 aurar um kl.st. í dag-
vinnu, 1 kr. í kvöldvinnu frá kl.
ð—S, 110 aurar 1 helgidaga- og
nætur-vinnu og 135—140 í helgi-
daga- eða nætur-vinnu við upp-
skipun. Var tilboð þetta borið
undir atkvæði eftir mjög ítarleg-
ar umræður, og var felt með 170
atkv. gegn 3 að ganga að því.
Þá var kauptilboð atvinnurekenda
í samningsvinnu við fiskþvott
borið undir atkvæði. Vildu þeir
greiða kr. 2,20 fyrir stórþorsk,
hundrað, 1,80 fyrir smærri þorsk,
1,20 fyrir smáfisk, 90 fyrir stór-
„Labra", 60 fyrir smærri „Labra“
(þ. e. innan 18 þuml.), 130 fyrir
ýsu, 145 fyrir stór-upsa og 110
aura fyrir smá-upsa. — Um tilboð
þetta greiddu þær konur einar
átkvæði, sem þá atvinnu stunda,
en aðrar sátu hjá þeirri atkvæða-
greiðslu. Var felt að ganga að því
með 130 atkv. gegn 2. Þegar til
atkvæða var gengið, vár kl. orðin
12,30 um nóttina og því sumar
fundarkonur farnar heim. Konur
voru yfirleitt mjög einbeittar gegn
kauplækkunartilraunum atvinnu-
rekenda, og ætla þær ekki áð
skrifa undir samning, sem þann,
er atvinnurekendur bjóða nú.
Maður ferst i snjóflóði.
, Sú fregn hefir borist hingaö, aö
Ingólfur Þorvarðsson úr Súgahda-
firði hafi orðið fyrir snjóflóði í
gær, á ferð milli Súgandafjarðar
og Önundarfjarðar, og beðið bana
af. Voru þeir Sigurður Greipsson
glímumaður á ferð saman. Slapp
Sigurður óskemdur.
Isinlend tiðindi.
Akureyri, FB., 6. marz.
Tiðarfar.
Síðustu daga hefir verið austan-
stormur með talsverðum kulda.
Slæmar gæftir á sjó, en fiskafli
sæmilegur, er gefur. Snjólaust að
kalla.
Leikfélagið
æfir leik Gustafs Wieds: „Förste
Violin“. i
Samtimaskák
verður hér á sunnudaginn. Stefán
Ólafsson teflir við 25 menn sam-
tímis, sína skákina við hvern.
Fiskveiðanýjungar.
Maður frá Húsavik, Jón Mýrdal,
gerði í fyrra vetur tilraun til þess
að veiða þorska nálægt Gríms-
ey. Hafði hann 4 net í sjó og
veiddi við umvitjun 12—1400 pd.
af fullorðnum þorski. Þykir senni-
legt mjög, að víðar sé hægt að
stunda slíkar veiðar hér nyrðra
nú. Nú ætlar Jón í félagi við fleiri
Húsvíkinga að reka netaveiði við
Grímsey með 40—60 netum.
Um daginn og veginn»
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeldsted, Lauga-
vtegi 38. Sími 1561.
Á Borðeyri
var í gær i símtali sagt norðan-
hreinviðri og töluvert frost, — jarð-
næði nægilegt handa sauðfénaði, —
heilsufar gott.
Veðrið.
Frost um alt land, mest 15 st..
minst 2 st. Átt austlæg og norðlæg,
hvöss suðvestanlands. Djúp loftvæg-
islægð fyrir suðvestan land á léiö
norðaustuí-. Veðurspá: í dag austan-
átt, hvöss á Suður- og Vestur-lándi,
allhvöss fyrir Norðurlandi, snjókoma
Um alt land, mest á Suðurlandi. í
nótt austlæg átt, senniíega hvöss
súnnan lantís, allhvöss annárs staðar.