Alþýðublaðið - 12.03.1926, Qupperneq 1
'Gefið út af Alpýðaflekkraaaa
1926.
Föstudaginn
12. marz.
61. tölublað.
Hörmulegt manntjön.
Tólí sjómeim taldir af.
ísafirði, FB., 12. marz.
Skipshöfnin'á „Eir“ (sem nú er
talin af) var ‘þessi: 1. Magnús
Friðriksson skipstjóri, giftur, 5
börn, 2. Guðmundur Jóhannsson,
stýrim., ógiftur, Súgandafirði, 3.
Valdimar Ásgeirsson vélstjóri,
giftur, 1 barn, 4. Gísli Þórðarson,
giftur, 4 börn, 5. Sigurður Bjarna-
son, giftur, 3 börn, 6. Bjarni Thor-
arensen, ógiftur, 7. Kristján Ás-
geirsson, Bolungavík, giftur, 2
börn, 8. Steindór bróðir hans,
Svarthamri, ógiftur, 9. Þorsteinn
Þorláksson, Bolungavík, ógiftur,
10. Magnús Jónsson, Súðavík, ó-
giftur, 11. ólafur Valgeirsson og
12. Magnús Magnússon, ógiftur, úr
Árneshreppi í Strandasýslu. V.
Erleiiel sSmskeytl.
Khöfn, FB., 10. marz.
Kröfur um fast sæti i Þjóða-
bandalagsráðinu.
Frá Genf er símað, að sérstak-
ur fulltrúafundur Þjóðabandalags-
ins hafi verið settur í fyrra dag.
Ákaflegur spenningur út af kröf-
um urn fast sæti í ráðinu. Kvisast
hefir.^að sumar þjóðir hafi í hót-
tinum að segja sig úr Þjóðabanda-
laginu, verði kröfum þeirra urn
fast sæti í ráðinu ekki sint.
Afvopnunarfundinum frestað.
Frá Genf er símað, að umsím-
uðum afvopnunarfundi hafi verið
frestað þar til í maímánuði.
hafi lagt að ríkisforsetanum að
leggja hart að Briand að mynda
ráðuneyti á ný. Lofaði hann loks
að gera tilraun til stjórnarmynd-
unar. Caillaux verður líklega fjár-
málaráðherra.
Shakespeare-leikhúsið,erbrann,
endurreist.
Frá Lundúnum er símað, að
samþykt hafi verið að endurreisa
Shakespeare-Ieikhús það, sem
brann nýlega.
Mussolini hræddur.
Frá Römaborg er símað, að
þegar lagt var fram frumvarp um
umbætur á hernum, hafi Musso-
lini sagt, að tímarnir væru ó-
tryggir og bezt að vera viðbúinn.
Ný stjórn i Frakklagdi.
Frá París er símáð, að Briand
hafi tekist ráðuneytismyndunin.
Flestallir ráðherrarnir, sem áður
voru í stjórninni, voru teknir i
hana aftur. Nýi fjármálaráðherr-
ann heitir Raoul Peret.
Khöfn, FB., 12. rnarz.
Auðvaldsálit i kolanámamálinu.
Frá Lundúnum er símað, að
kolanámanefndin hafi afhent
stjórninni nefndarálit, og er aðal-
innihald þess að ráða fastlega frá
því, að námurnar séu þjóðnýttar.
Bent er á það, að nú verandi
fyrirkomulag þurfi mikilvægra
umbóta, en sami vinnutími og
hingað til og dálítil launalækkun
sé nauðsynleg.
Uns dapisn og veginn.
H.F.
EIMSKIPAFJELAG
ÍSLANDS
fer héðan í dag kl. 6 siðdegis austur
og norður um land.
?,ILnga!»f©ss‘4
fer héðan á morgun 13. marz kl. 4
síðdegis til Hull og Leith.
Amtmannsstíg. Var hann fluttur til
læknis, en reyndist lítt eða ekki
meiddur.
Ólafur Gunnarsson
læknir er á góðum batavegi. Var
gerður á honum uppskurður við
botnlangabólgu og hepþnaðist ágæt-
lega.
„Dagsbrún“.
15 nýir félagar bættust við í gær-
kveldi.
Gamla Alþýðuhúsið
er nú verið að flytja á lóð flokks-
ins. Gafc það ekki fengið að standa
lengur þar, sem það var áður.
Vinsmyglunarmálið.
Réttarhöldum er lokið, og síðan
heldur málið áfram á venjulegan
hátt.
Togararnir.
Jón forseti kom af veiðum í gær
með 60 tunnur lifrar. Maí kom frá
Englandi i gær, en Gulltoppur er
væntanlegur í dag.
Skipafréttir.
Viílemoes kom að vestan í gær-
kveldi til Petersens & Co.
„Á útleið“
verður ekki leikið í kvöid sökum
þess, að einn leikendanna, Ágúst
Kvaran, er veikur. 1 stað þess verð-
ur „Eldvígslan" leikin.
Flugslys.
Frá Stokkhólmi er símað, að
iarþegi hafi dottið út úr flugvél
I 350 metra hæð. Líkið var hræði-
lega útleikið.
Khöfn, FB., 11. marz.
Briand reynir að mynda stjórn.
Frá París er símað, að allflestir
Næturlæknir
er í nótt Jón Hj. Sigurðsson,
Laugavegi 40, sími 179.
Fulltrúaráðsfundur
verklýðsfélaganna verður kl. 8,30
i kvöld í Ungmennafélagshúsinu.
Lá við slysi.
Rétt fyrir hádegið í dag rakst bif-
reið á dreng, sem var á sleða á
Leiðbeining.
Þar eð „Mgbl.“ er nú aftur byrjað
að akneytast við ríkiseinkasölur, er
því hér með bent á að snúa sér til
Magnúsar Guðmundssonar og fá hjá
honum upplýsingar um tekjurnar,
sein ríkið hefir fengið af þeim und-
an farið. Það ætti þó að geta trúað
honum. Væntanlega skýrir hann því
rétt frá og í samræmi við það, sein
hann liefir áður sagt á alþingi.