Alþýðublaðið - 22.03.1926, Page 1
Gefid út af Alþýðuflokknum
1926.
Mánudaginn 22. marz.
Verkfallið víkkað.
Vinna stöðvuð við afgreiðslu allra flutninga~
skipa fra kl. 6 i morgun.
Til þess að gera samúðarverk-
fall verkamanna í kaupdeilu
verkakvenna enn áhrifameira og
J)ar með skammvinnari deiluna,
hefir stjórn Alþýðusambandsins
ákveðið að skipa fyrir um verkfall
við öJI kola- og sait-skip og önnur
vörufiutningaskip, er hingað koma,
og hófst það verkfall kl. 6 í morg-
un. Frá þeim tíma er öll eiginleg
hafnarvinna niður failin þangað
til, að samkomulag kemst á milli
stéttanna um kaup kvenna eða
kauptaxti þess er viðurkendur.
Erlend simske^ti.
Khöfn, FB., 19. marz.
Föstu sætin sett i nefnd.
Frá Genf er sínjað, að sett hafi
verið á laggirnár sérstök nefnd
íil þess að rannsaka, hvernig
leysa skuli úr kröfunum um föstu
sætin.
Tilræði við prinzinn af Wales?
Frá Lundúnum er símað, að
öskju með calciumcarbid hafi
verið kastað inn á gistihús, þar
sem prinzinn af Wales sat að
veizlu. Kom afskaplegur gasþefur
af, og héldu sumir, að hér hefði
verið um tilraun að ræða til þess
að drepa prinzinn.
Khöfn, FB., 20. marz.
Coolidge um Þjóðabandalagið.
Frá Washington er símað, að
Coolidge sé svartsýnn vegna at-
burðarins í Genf. Álítur hann
framtíð Þjóðabandalagsins óvissa
og afvopnunarfund þýðingarlaus-
an sem stendur, og útlit fyrir
styrjaldir hafi ekki minkað að áliti
hans.
íbúatala Bandarikjanna.
Frá New-York-borg er símað,
að íbúatala Bandarikjanna hafi
aukist um 1.1 railljónir síðan 1920
og er nú 117 milljónir. (Var tek-
ið manntal í júlílok 1925, og mun
nú búið að vinna úr manntals-
skýrslunum.)
Landhelgisbrot.
„Fylla kom í morgun með togar-
ann „Surprise“. Tók hún hann fram
af Öndverðarriesi fyrir landhelgis-
brot.
Göuþrællinn
er í dag.
Verkakvennafélagið „Framsókn“
heldur fund í kvöld kl. 8,30 í Bár-
unni niðri. Rætt verður um kaup-
gjaldsmálið. Allar konur, sem starfa
að fiskvinnu, eru boðnar á fundinn.
Óþarft mun að áminna konur um
að fjölsækja fundinn. Þær vita sjálf-
ar, hve nauðsynlegt það er, að
standa sameinaðar.
Veðrið.
Hiti mestur 4 st. (í Vestm og víð-
ar); minstur 6 stiga frost (á Gríms-
stöðum); 3 stig í Rvík. Átt austlæg,
allhvass í Vestm.eyj., hægur ann-
arsstaðar. Veðurspá: í dag suðaustl.
átt við Suðvesturland. Kyrt veður
á Norður- og Austur-Iandi. I nótt:
Sennilega suðaustan, fremur hægur
á Suðvestur- og Vesturlandi. Breyti-
leg vindstaða, hægur á Norður- og
Austurlandi.
„Morgunblaðs‘‘>samkvæmni.
Samkvæmnin er ekki vön að vera
mikil hjá „Mgbl.“, og ekki batnar,
69. tölublað.
Safflhufuf
verkalýðsias.
.Verkalýðsfundurinn i gær
oo ályktun hans.
Verkalýðsfundurinn, sem hald-
inn var i Bárubúð í gær, var fjöl-
sóttur, eins og kosningafundur
væri. Var mjög greinileg samstill-
ing fólksins og vissa um mátt
samtaka sinna. 1 einu hljóði sam-
þykti mannfjöldinn svo felda yfir-
lýsingu:
Fundurinn. lýsir yfir því, að
hann telur sjálfsagt, að verka-
kvennafélagið sé styrkt á allan
þann hátt, sem unt er, í kaup-
deilunni.
þegar margs er að gæta. Annað
veifið segir það nú, að verkakonur
vinni þrátt fyrir verkfallið, en hið
sanna kemur í ljós, þar sem það
segir, að ekki sé unnið á fisk-
stöðvunum — „af þvi að þar er
ekkert að gera.“
Samskotin til isfirzku ekknamia.
Afhent Alþýðublaðinu frá verka-
mörinum í Pípuverksmiðju Reykja-
vikur krónur 75,00.
Vitar og sjómerki.
Tilkynningar uin breytingar á
þeim, þær, er þurfa að berast fljótt
til sjófarenda, verða framvegis send-
ar út með veðurskeytunum, aug-
lýsir vitamálastjórinn.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund. . . . . kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 119,54
100 kr. sænskar .... — 122,44
100 kr. norskar . . . . — 98.14
Dollar.................— 4,57
100 frankar franskir . . — 16,38
100 gyllini hollenzk . . — 183,19
100 gullmörk þýzk . . ,— 108,66
Skinnastaðaprestakall
í Þingeyjarsýslu er auglýst laust
til umsóknar til aprílloka. Veitist
frá 1. júní.